Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1948, Síða 22

Náttúrufræðingurinn - 1948, Síða 22
164 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN an. í Tungu er t. d. mikil nýrækt í nesinu neðan við brekkurnar. Þar hvería sáðgrösin fljótt, og skriðlíngresi kemur í staðinn. Var.þar mjög loðið og lieygott. Lítið er um vatnagróður, nema Iielzt í Tungunesi. Þar vaxa mó- grafabrúsi, síkjamari, lónasóley, grasnykra, þráðnykra, fjallnykra, vatnsnál og lófótur í tjörnunum. Fjörugróður er fátæklegur. Mrím- blaðka, fjöruarfi og blálilja vaxa hér og hvar, en lítið af jreim Skarfakál sést á stangli í gjám og klettum við sjóinn. Alls sá ég 243 tegundir blómjurta og byrkninga í Fáskrúðsfirði (auk slæðinganna). Fjörðurinn er fjölskrúðugur um gróðurfar, þrátt fyrir nafnið. Surtarbrandur í Vörðufelli Síðastliðið vor sýndi Loftur Bjarnason á Iðu í Biskupstungum mér sýnishorn af surtarbrandi, er hann kvaðst hafa fundið þá fyrir skömmu í læk eimtm allofarlega í hlíðum Vörðufells að norðaustanverðu. — Lagði ég svo leið mína þangað nokkru síðar og fann brátt staðinn, þar sem brandurinn er. Hafði laékjarvatnið nýlega grafið sig þarna niður, nokkru dýpra en áður, og þá hafði surtarbrandurinn komið í ljós. Er hann aðeins sýnilegur á örlitlu svæði, þvert yfir gilfarveginn, og er í tveimur iögum, aðskildum af um 10 cm þykku, gráu leirlagi. Neðra lagið virðist mjög þunnt, en hið efra, sem er allmiklu þykkara, er 10—12 cm. Bæði lögin eru greinilega lagskipt og klofna auðveldlega í þunnar flögur. Surtarbrandslög þessi eru að líkindum hvergi þykk, né mikil ummáls. En þar sein þctta mun vera í fyrsta skipti, sem slík lög finnast hér sunnanlands, taldi ég rétt að gcra grein fyrir fundi þessum. Helgastöðum, 1. janúar 1949, pypór Erlendsson.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.