Náttúrufræðingurinn - 1948, Síða 35
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
177
í Skagafirði náðist liri'a dægurflugunnar Cloeon praetexturn, og
tókst að láta hana þroskast í subimago (næsta þroskastig á nndan
imago, sem er fullorðið dýr). Þessi tegund verður rannsökuð nánar.
[Síðar kváðu leiðangursmenn hafa fnndið þessa tegund hjá Strönd
á Rangárvöllum.]
9,—10. Landliðdýr. — J. Slípka. —- Slípka lagði sérstaklega stund á
að safna tvívængjum. Samt fann hann á Kaldadalssvæðinu aðeins
urri y4 þeirra tegunda, sem vitað er um á íslandi, en nokkrar, sem
ern mjög líklegar til að reynast nýjar á íslandi eða jafnvel með öllu
óþekktar áður. Mest var sótzt eftir að athuga mý. Allmiklu var
safnað af bjöllum. Rannsökuð voru áhrif míkróklíma á lifnaðarhætti
mýsins og samfélag þess við aðrar lífverur.
J. Brédk. — Bréák safnaði á Kaldadalssvæðinu: fiðrildum, æð-
vængjum, skortítum, stökkmori, köngurlóm og dýralusum, en lagði
mesta stund á að safna fiðrildum, náði h. u. b. 46% af öllum teg-
undum, sem áður hafa fundizt á íslandi. Ættkvíslin Cidaria (af
henni er birkifiðrildið) verður rannsökuð sérstaklega. Af æðvængj-
um var safnað tveimur vængjalausum tegundum (e. afbrigðum), og
önnur þeirra mun ekki hafa fundizt fyrr á landinu.
11. Fuglar. — Z. Kluz. — Fuglalíf svæðisins var rannsakað, einkum
í nágrenni Biskupsbrekku og við Reyðarvatn, og mælingar gerðar á
um 25 tegundum. Athugað var hreiðurlíf J^essara fugla: kríu, sand-
lóu, heiðlóu, óðinshana, hrossagauks, straumandar, grátittlings,
spóa, rjúpu, lóms og máríuerlu. — Sníkjudýr fugla og magainnihald
var rannsakað í samvinnu við aðra leiðangursmenn.
12. Krabbadýr. — O. Pravda. — Krabbadýrum var safnað í flestum
stöðuvötnum og tjörnum á svæðinu. Árangurinn kemur ekki í ljós,
fyrr en smásjárrannsóknir Jiafa verið gerðar. Leitazt verður við að
lýsa einstökum krabbadýrafélögum.
Auk Jiessa starfs vann Pravda að vísindalegri ljósmyndun.
III. Veðurfrœði og loftslag
13. —14. V. Struzka og V. Skalda. — í bækistöðinni nndir Bisknps-
brekku var sett upp venjuleg veðurathugunarstöð, I. flokks, með
sjálfritandi liitamæli og rakamæli, og var Jiar haldið uppi venju-
12