Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1951, Síða 8

Náttúrufræðingurinn - 1951, Síða 8
102 NATTÚRUFRÆBINGURINN byggðir eru til að sjá ínjög svartar og eldbrunnar. Liggja frá þeirn tvær aurrákir, er brátt renna saman í eina, og nær hún suðaustur þangað, sem Jökulsá kemur undan Breiðamerkurjökli." Á fyrri staðnum virðist hann eiga við núkallaðar Mávabyggðir. Enda ber mun meira á þeim víðast framan af sandinum en Esjufjöllum. Á síð- ari staðnum er hins vegar greinilega átt við Esjufjöll, sbr. aurrákina. En er þá örnefnið Mávabyggðir í raun og veru eldra nafn á Esju- fjöllum? Eða nafn á fjöllunum báðum saman? Sennilega hefur Sveinn ekki þekkt rétta nafnið, þ. e. Jrar sem heitir Esjufjöll. í minni núlifandi manna í öræfum, liafa Mávabyggðir og Esjufjöll ætíð ver- ið nefnd livort sínu nal'ni.1 Eins og áður segir, er ekki vitað um fleiri ferðir í fjöll þessi á næstu árum eftir að þeir E. Ol. voru liér á l'erð. En vafalaust má telja, að lerðir þangað hafi algerlega lagzt niður langan tíma. A. m. k. er svo að sjá, um einni öld síðar, að þá hafi mönnum verið mjög ókunnugt um þessar slóðir. Um liaustið 1850, 8. okt., sendi séra Þorsteinn Einarsson á Kálfafellsstað fjóra menn í könnunarferð inn með Veð- urárdalsljöllum. Fóru þeir norður að Veðurárdalnum innri, og virðist lýsing þeirra á lionum koma vel heim við staðhætti. En það er eftirtektarvert, að nafn vissu Jreir ekkert á honum og virðist meira að segja ekki hafa verið kunnugt um hann áður. Er augljóst, að ekki hefur verið farið í Mávabyggðir eða Esjufjöll á þeim árum, ella hefðu menn líka hlotið að vita af dal Jressum, sem sést allvel frá ofanverðum Breiðamerkurjökli. En næst — eftir ferð Hornfirðinganna á 18. öld — er svo lagt upp þangað, eða réttara sagt gerð tilraun til að fara Jiangað, að tillilutan séra Þorsteins Einarssonar og er það að líkindum skömmu eftir lerð- ina til Veðurárdals. Minnist ég á Jretta hér, vegna Jtess að Jrar sem á jrað hefur verið minnst, er ekki öll sagan sögð. Segir Þorvaldur Thoroddsen svo frá: „Fyrrum var jrað trú manna, að Jrar Jí Máva- byggðum] byggju útilegumenn. Séra Þorsteinn Einarsson sendi Jrangað vinnumenn sína eitt sinn til þess að ná fugli, en Jieir urðu liræddir og sneru aftur, af Jrví að Jreir þóttust hafa séð tún og húsa- garð í fjallinu." Það er rétt, að Jreir fóru ekki alla leið og að saga 1) Svo er það t. d. að sögn Þorláks Jónssonar, bónda að Hofi, nú á níræðisaldri; ólzt hann npp hjá föður síum, er Jrar l)jó lengi; báðir skilríkir menn. En varla ætti neinum að vera kunnara um örnefni þessi en Hofsmönnum, sem á hverju ári smöluðu Breiðamerkurfjall, en þaðan sjást fjöll þessi vel, og ólíklegt að slfk örnefni hafi ruglazt fyrir þeim eða gleymzt.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.