Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1951, Qupperneq 10

Náttúrufræðingurinn - 1951, Qupperneq 10
104 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN uðu þeir fjöllin dálítið daginn eftir. Munu þeir liafa talið þau aðal- Jega mynduð af móbergi. Smálón sáu þeir við Esjufjöll, þó að mestu Hvannalindum um kvöldið 19. júní. Tóku 19 stunda hvíld á miðj- tæmd. Héldu þeir svo til baka næsta dag að liðnu hádegi og komu norður að jökulbrúninni að morgni eftir aðeins 18 klst. ferð. Næstu ferðir í Esjufjöll eru farnar árin 1933, 1943 og 1950. Tvær hinar fyrri með viðkomu í Mávabyggðum. Hér verður aðeins lítil- lega frá þeim sagt. Með þeirn kynnast byggðamenn þeim af eigin raun, þótt tínti til athugana og yfirsýnar hafi í öllum ferðunum verið mjög takmarkað- ur. En lýsing á þeint lrá fyrri öldum hafði engin geymzt. Sumarið 1933 vakti Helgi Arason á Fagurhólsmýri máls á því að ganga í Esjufjöll. Lagði hann af stað frá Kvískerjum I. júlí, ásarnt okkur þremur þaðan. Fórum við yfir Breiðamerkurfjall nyrzt, að Mávabyggðum, viðstöðulítið í Esjufjöll. Náðum þangað eftir 13 stunda göngu. Veður var gott á leiðinni, en er við nálguðumst Esju- fjöll, þyngdi í lofti og gerði síðan slyddu í fjöllin. Staðnæmdumst við aðeins tæpar tvær stundir í miðfjallinu fremst. Héldum síðan niður með Esjufjallarönd, er tók rúmar 5 klst. Var leiðin víðast greiðfær, jökullinn snjólaus niður frá Esjufjöllum, en snjór milli þeirra og Breiðamerkurfjalls. 1943 fórum við þrír frá Kvískerjum h. u. b. sömu leið og áður. Lögðum af stað 12. júlí. Staðnæmdumst nokkuð í Mávabyggðum og komum til Esjufjalla litlu fyrir miðnætti. Daginn eftir gengum við talsvert um miðfjallið framan til og austur fyrir það. Lögðum af stað heimleiðis sama dag, komum niður af jökli eftir h. u. b. 5 st. göngu. Jökullinn var víðast sæmilega greiðfær, sprungur þó á köfl- um, meiri en 1933. Höfðum við hug á að skoða fjöllin betur og umhverfið, en af því gat ekki orðið fyrr en 1950. Lögðum við af stað frá Kvískerjum, fjór- ir, hinn 27. júlí og fórum upp Mávabyggðarönd, sent reyndist góður vegur, mun greiðfærari en Esjufjallarönd var nú, þar sem til sást, enda virðist svo vera að jafnaði. Mávabyggðarönd nær ekki að fjöll- um; varð dálítið sprunguhaft á leið okkar nokkru eftir að við fórum af henni, þó ekki teljandi farartálmi. Gengum svo sem leið lá til Esjufjalla og tjölduðum í fremsta fjallinu. Gengum um hálsana framan í fjallinu og morguninn eftir nokkuð inn eftir dalnum vest- an miðfjallsins, og síðan austur fyrir það. Hinn 29. var rigning og loít þungbúið. Gengum þá í nyrzta fjallið um morguninn, en urðunt

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.