Náttúrufræðingurinn - 1951, Page 11
ESJUFJÖLL OG MÁVABVGGÐIR
105
að láta þar við sitja og snúa síðan heimleiðis, enda gerði úrhellis-
rigningu áður við komum aftur til tjaldstaðar og hélzt nokkuð fram
á daginn. Fórurn fram jökulinn sörnu leið og við komum, heirn yfir
Breiðárós. Síðar um daginn gerði aftur dynjandi rigningu, sem hélzt
látlaust hálfan annan sólarhring. (Mun minni snjór var nú á jöklin-
um við Esjufjöll en 1943, og þó aðeins hálfum mánuði síðar).
Legu og afstöðu fjallanna er áður lýst.
Mávabyggðir eru hár og þverhníptur hamraveggur, sem gnæfir
upp úr jöklinunt, og liggur einnig jökull eða lijarn fram á brún.
Hamrarnir eru h. u. b. í beina stefnu SV—NA, 3—4 km að lengd, en
stefna síðan spölkorn til SA og enda þar í einstökum klettum og
klappahryggjum. Hinn hæsti þeirra, ,,Fingurbjörg“ 1137 m. y. s., er
að sjá að vestan sem fingurbjargarlagaður drangur. Nafnið er að lík-
indum frá tímum landmælingamannanna. Framan við hamrana,
sunnan til, gengur einnig lægri klettarani dálítið fram á jökulinn.
Örnefni eitt garnalt er í Mávabyggðum (örskammt suður af hæða-
bungu 1449 m), „Kaplaklif“. Ofurlítið vik er þar í hamravegginn,
en þverhnípt berg sem annars staðar. Þorvaldur Thoroddsen segir í
„Ferð um A.-Skaftafellssýslu 1894“ (án þess að geta heimildarmanns),
að Kaplaklif sé austast í Mávabyggðum. Að vísu er þar lægð í hamra-
vegginn. Hins vegar hafa menn í Öræfum, sem átt hefðu að þekkja
til, talið það vera í fyrrgreindum stað, þ. e. talsvert vestan til. Eru
þar einnig fjörumörk miðuð við, milli Fjalls- og Breiðamerkurfjöru.1
Gróður er sem vænta má, næsta lítill í Mávabyggðum, þó vaxa þar
nokkrar tegundir blómjurta (svo sem grasvíðir, Ólafssúra, lamba-
blóm, melskriðnablóm, burn, mosasteinbrjótur, fjallasmári, fífill
(óákv.), grámulla, ennfremur grastegundir tvær). — Fugla sáunr við
þar enga.
Esjufjöll eru allmikill fjallaklasi nokkru norðar. Ber þar rnest á
þrem fjallaröðlum, er ganga út frá aflöngum hæðahrygg, sem er 17—
18 km að lengd eða vel það, hulinn hjarnjökli. Hæstur er hann
vestan til, talinn 1760 m, lækkar austan til, um 1480 m. Klettanípur
og smáfell sjást upp úr jöklinum á stöku stað. En tilkomumesta hæð-
in í bungu þessari er um miðju, 1680 m há. Er þar að suðvestanverðu
hár og mikill hamar. Festir þar ekki snjó lengi fram el'tir vetri og
leysir fljótt. Mun sú hæð bera nafnið Esja. Er þó vafasamt að örnefn-
1) Nokkru vestar er brúnin lægri og gengur þar nijó skora eða ,,klif“ skáhallt niður
að jökli.