Náttúrufræðingurinn - 1951, Qupperneq 17
GRÓÐIJR OG DÝRALÍF í ESJUFJÖLLUM
111
Auk þessara 78 plöntutegunda, eru 2 tegundir sem við höfum ekki
fengið nafngreindar enn. Önnur tegundin er fífilstegund (Taraxa-
cum), er verður ekki ákvörðuð nema af sérfræðingi. Hin tegundin er
maríustakkstegund (Alahemilla) og er sennilega alveg ný smátegund ■
fyrir ísland.
2 bastarða fundunr við í Esjufjöllum. Annar var Salis herbacea X
lanata, en hinn var. Epilobium anagallidifolium X Hornemanni.
Mjög er sennilegt að finna nregi fleiri plöntutegundir í Esjufjöll-
um, en hér liafa verið taldar.
Dýralíf í Esjuf jöllum
Dýralífið er þar ekki fjölskrúðugt. Aðeins 6 fuglategundir hafa
sézt þar, og fátt hefur fundizt þar af öðrum dýrum. Þó er sennilegt
að finna megi nokkrar skordýrategundir fleiri en hér eru taldar, ef
vel væri leitað.
2. júli 1933
Þá sáust þar 5 eða 6 stórir svartbakar og 2 hreiður, sem þeir áttu.
Svartbakarnir voru búnir að unga út eggjunum. Ungar þeirra fund-
ust ekki, en mávarnir höguðu sér svo sem þeir ættu þar unga. 4 kjóar
sáust þar og 1 kjóahreiður með 1 eggi fannst um 4—5 krn framan við
miðfjallaranann, á rönd, sem nær frá Esjufjöllum og að Jökulsá. Þá
lreyrðist jrar í snjótitling og sást nýlegur rjúpnasaur.
Af skordýrum fannst 1 mosabjalla (Byrrhus fosciatus Forst), 1 gull-
smiður (Amara Quenseli Sahönh), 1 randafluga (Syrphidae), 1 vor-
fluga (Limnophilidae) og 1 jarðlús (Orthezia cataphracta Olafsen).
Einnig fannst þar 1 köngurló.
13. júlí 1943
Stóru svartbakarnir voru þá horfnir úr Esjufjöllum. 1 litli svart-
bakur sást Jrar. 4—6 kjóar sáust þar, 1 snjótitlingur og 1 rjúpa.
Af skordýrum fannst 1 fiskifluga (Tachinidae), 1 randafluga (Syr-
phidae) og 1 fiðrildi (Lepidoptera). Einnig fundust 2 eða 3 tegundir
af köngurlóm.
28-29. juli 1930
6—10 snjótitlingar og 5—7 steindeplar sáust í Esjufjöllum. Voru
]>að bæði fullorðnir fuglar og ungar, sem voru komnir á flug. 4 kjóa
sáum við Jrar og fundum þar 1 kjóahreiður með 1 eggi. Hætti kjó-