Náttúrufræðingurinn - 1951, Síða 35
Ingimar Óskarsson:
Nýtt hefti af The Zoology of Iceland
Árið 1949 kom út rit F. Jensenius Madsens um samlokur í sjó (Marine Bivalvia,
Zool. of Icclaiul Vol. IV, part 03). Helztu niðurstöður þcssa rits eru ræddar í grein þess-
ari.
Enn hefur einu nýju hefti af hinu yfirgripsmikla ritsafni The
Zoology of Iceland verið hleypt af stokkunum. í fyrstu var svo til
ætlazt, að heftin yrðu alls 90, og að útgáfu þeirra yrði lokið á 20 ár-
tun. En nú eru þessi 20 ár senn á enda og verkið að heftafjölda að-
eins ríflega hálfnað. Margar orsakir liggja til þessa seinlætis, en þó
mun lieimstyrjöldin síðasta liafa verið úrslitaorsökin. En þessi drátt-
ur á útgáfunni hefur líka orðið til þess að gera hvert hefti auðugra
að efni en ella, því að árlegar rannsóknir með aukinni tækni bæta
drjúgum við þekkingu á útbreiðslu tegundanna. Vonandi er nú
kominn skriður á útgáfuna og skeiðið runnið til enda á næstu árum.
Allir, bæði leikir og lærðir, sem fást við rannsóknir á dýralífi
landsins, rnunu fagna því og óska þess, að útkoma ritsins geti gengið
sem greiðlegast.
Eg veit, að sumir dýrafræðingar sakna þess, að tegundunum skuli
ekki vera stuttlega lýst og myndir látnar fylgja. En með því Iiefði
ritsafnið orðið of dýrt, og útkomutíminn að minnsta kosti tvöfald-
azt. Eins og ritið er, þá er það prýðilegur Jiekkingargrundvöllur, sem
næsta kynslóð dýrafræðinga getur byggt ofan á, og eiga þeir menn.
sem voru frumkvöðlar að Jressari útgáfu, miklar þakkir skyldar.
Þetta nýja hefti Marine Bivalvia eða sem mætti eins vel nefna
Alarine Lamellibranchiata, er 116 blaðsíður í 8 bl. broti, og fjallar
um samlokur í sjó, eins og nafnið bendir til. Er Jrað fyllilega sam-
bærilegt við hliðstæð hefti að nákvæmni og efnismeðferð.
I innganginum getur höfundurinn nokkurra heimildarrita um
sæskeljar og allmargra dýrafræðinga, sem safnað hafa skeldýrum við
strendur landsins. En allar athuganir á því sviði voru ófullkomnar
Náttúrufraðingurinn, 3. h. 1951 9