Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1951, Qupperneq 38

Náttúrufræðingurinn - 1951, Qupperneq 38
132 NÁTTÚRUFR/EBINGURINN við Norður- og Austur-Ameríku. Aðeins 1 teguncl (Portlandia iris) er lireinræktaður Ameríkani. Því miður er enn mjög takmörkuð þekking á viðkomu skeljateg- undanna, og eiga dýrafræðingar þar eins og á fleiri sviðum ærið verkefni óleyst. Höfundurinn telur fullvíst, að lirfur 24 tegunda klekist svífandi og 6 tegundir hafi botnklak. Um viðkomu og klak 58 tegunda er ekkert vitað með vissu. Höfundur drepur lítillega á hagnýta þýðingu skeljanna og telur og það með réttu, að engin tegundanna sé notuð til manneldis nú á dögum. Aftur á móti séu þær mikilsverð fæða fyrir nokkrar tegundir fiska, sér í lagi ýstina og nefnir í því sambandi 10 skeljategundir, er liann telur algengar í fiskamögum. Sakna ég hér tveggja tegunda, sem eru mjög algengar í ýsumögum við strendur Norðurlandsins, en þær eru Nucula Lenuis og Leda minuta. Annars eru sárafáar Iieim- ildir til um þessi efni, aðrar en söfnin sjálf. En vissa er fengin fyrir 44 tegundum úr ýsu- og skarkolamögum, og fer sú tala efalaust liækk- andi við frekari rannsóknir. í lok þessa kafla sýnir svo höfundur 2 tegundaskrár. í annarri þeirra eru nefndar allar íslenzku skeljarnar, sýnd útbreiðsla þeirra með X við strendur landsins, skýrt frá landfræðilegri útbreiðslu þeirra og tilgreint dýpi. Skrá þessi er að mestu byggð upp úr I. kafla ritsins. Hin tegundaskráin geymir 211 tegundir ásamt fundardýpi þeirra eða allar þær tegundir, sem fundizt hafa í Norður-Kyrrahafi, Beringshafi og Síberíuhafi, við Grænland og Svalbarða og þaðan við strendur Atlantshafslandanna suður til Miðjarðarhafs og Azoreyja. Og þar að auki þær djúpsævistegundir, sem l’undizt hafa í grennd við ísland. Höfundur bendir á, að tafla þessi geti orðið dýrafræðing- um leiðarvísir um það, hvaða tegunda megi vænta til viðbótar hinni íslenzku skeljafánu í framtíðinni. í ritinu eru kort yfir útbreiðslu 34 tegunda við strendur landsins og auka þau mjög á gildi ritsins. Þá er einnig kort, þar sem allir kunnir söfnunarstaðir íslenzku tegundanna eru merktir. Á korti þessu kemur í ljós, að Faxaflói er lang bezt rannsakaða svæðið. Myndir eru og af 3 sjaldgæfum tegundum. Frágangur ritsins er góður og hafa sárafáar villur smogið í gegn við prófarkalesturinn. Fyrir hönd íslenzkra dýrafræðinga þakka ég svo að lokum höfundi fyrir vel unnið starf.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.