Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1953, Page 19

Náttúrufræðingurinn - 1953, Page 19
tJR SÖGU HELLISKVlSLAR 13 reyndi að rekja áfram dýpstu lægðir hraunsins, og ég lenti í Rangár- botnum. En ég var ekki öruggur um að hafa farið rétt. Eftir þessa ferð var ég sannfærður um, að Helliskvísl mundi sjálf svara spurningu minni og falla annaðhvort fram i Rangárbotna eða út í Þjórsá — ef ekki á næsta sumri, þá a. m. k. áður en mörg ár liðu. Af ófyrirsjáanlegum ástæðum hefur samt hvorugt orðið enn. Þrjú siðastliðin ár hefur úrkoma verið langt undir meðallagi um mik- inn hluta lands, ekki sízt á Suðurlandi. Af þeim sökum hafa lindir og vatnsföll orðið fádæma lítil. T. d. í Hekluhraunum var þegar sumarið 1950 orðin einhver hin mesta vatnsþurrð, sem gamlir menn muna, í lindum og brunnum. Árið eftir var hún enn meiri og tví- mælalaust einsdæmi í manna minnum, og síðastliðið sumar sótti enn því nær í sama horfið. Þessi óvenjulegi þurrviðrakafli hefur knúið Helliskvísl til undan- halds — í bili. Hún hefur aldrei komizt fram úr þvi meti, er hún setti sumarið 1949. Haustið 1950, 24. september, fékk ég Sigurjón Rist, vatnamælinga- mann Raforkumálaskrifstofunnar, með mér inn að títtnefndu hraun- nefi. Hann hafði tæki til hallamælinga, og með þeim gengum við úr skugga um, hvora leiðina Helliskvísl tekur, þegar hún sækir næst fram um ófarinn veg: Hún fer í Rangárbotna. En þetta munar afar litlu, aðeins 20—30 cm hár þröskuldur úr vikri og hraunurð bægir framtíðarfarvegi hennar frá Þjórsá. En hvenær nær Helliskvísl því takmarki að renna í upptök Rang- ár og lengja hana þar með upp á við um 45 km? Um ártalið skal hér engu spáð, en það verður ekki síðar en næsta hlýindasumar eftir snjóavetur. Fyrstu árin kemst Helliskvísl vitanlega ekki alla leið nema í mestu vatnavöxtum. En það er nú sýnt, að farvegur hennar verður smám saman þeim mun greiðari, því lengur sem hún rennur um hann. Þess vegna má búast við, að eftir fáa áratugi renni hún fram í Rangá á hverju sumri vikum eða mánuðum saman.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.