Náttúrufræðingurinn - 1953, Page 56
48
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
um í Vindásbrekkum, spöl innan við bæinn. Yindás er stór kletta-
hryggur, alllangur, sem liggur í boga og er fjærsti og hæsti kletta-
hryggurinn, séð frá bænum. Aðallyngbrekkan er í króknum til hægri
við ásinn, í hvarfi frá bænum. En dálítið af lynginu vex fram með
endilöngum ásnum, niður að gömlum vegi við Fossá. Rennur Afrétt-
ará þar beint á móti (hinumegin dalsins) í Fossá. Einnig sá ég lyng-
ið í brekkum nær bænum. Telur bóndinn það heldur vera að breið-
ast úr. RauSberjalyngib vex i lágu, víða jarðlægu birkikjarri, innan
um sortulyng, aðalbláberjalyng, bláberja- og krækilyng, hrútaberja-
lyng, loðvíði, blágresi, beitilyng, ilmreyr og tígulfífla. [Tígulfífill
(Hieracium arctocerinthe) er auk Islandsfífils langalgengasti unda-
fífillinn í Berufirði og Breiðdal]. Rauðberjalyngið ber rauð ber seint
í september. Standa þau fram undir jól og eru stundum tínd dálítið.
Berin eru ágæt i aldinmauk og oft flutt inn frá útlöndum (tyttebær).
Rauðberjalyng fannst fyrst í Núpasveit í Axarfirði (Guðmundur
Hjaltason). Síðar er það fundið i Breiðdal í Reyðarfirði; við Uxa-
hver og ef til vill víðar. En stundum villast menn á því og sortu-
lyngi og skollaberjum. Skollaberjalyngið ber ávöxt miklu fyrr en
rauðberjalyngið og aðeins í toppinn. Blöðin eru útbreidd. BlöS rauS-
berjalyngsins eru meS niSurorpnum röndum og meS kirtildílum á
néSra borSi. Er það auðþekkt á þeim einkenum, bæði frá sortulyngi
og skollaberjalyngi.
1 Fossárfelli vex gömul reynihrísla i stórurð undir klettum ofan
við nýbýlið Lindarbrekku og sést langt að. Hefur urðin hlíft við
ágangi búfjár. Muna gamlir menn eftir smáhríslu þarna fyrir um
60 árum. Nú er hríslan um 5 m. há og tvö rótarskot nokkru lægri.
Tvær litlar 40 cm. hríslur standa skammt frá í gróðurlítilli brattri
urðinni. (Þar og viðar við Berufjörð og i Breiðdal sá ég stóru, rönd-
óttu tígurköngulærnar, sem áður hefur verið lýst í Náttúrufræðingn-
um. Virðast þær allvíða á Suðausturlandi, og i sumar fann ég þær i
klettum nálægt Hvítárbrú í Borgarfirði.)
Frá Berufirði fór ég til Breiðdals og leit einkum eftir gróðri að
Eydölum og í Höskuldsstaðaseli. Klettafrú vex í Tinnudalsárgljúfri.
Einnig í Þverhaniri ofan við Breiðdalsvík og í Skriðugiljum vestan
Breiðdalsár. Hátt í Höskuldsstaðaselsfjalli, t. d. við Seldalshnjúk, og
í Seldal og Blágili vaxa hnoSamaríustakkur, jöklasóley, dvergsóley,
laukasteinbrjótur, fjalladúnurt, fjallhæra, fjallanóra, rjúpustör o. fl.
fjallajurtir. Baldursbrá er fágæt í Breiðdal, og lítið sá ég af njóla og
smára. Þrenningarfjóla og skriðsóley vaxa sem slæðingar að Eydölum