Náttúrufræðingurinn - 1953, Page 58
50
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
háskólalóðinni og víðar í Reykjavík. Piparrótin hefur líka lengi vax-
ið í Reykjakoti í Ölfusi. Ikornabyggið hefur einnig fundizt í Gunn-
arsholti; steinasmáramir á Sámsstöðum.
IV. Velrarblómgun jurta 1952/53.
Veður var rakt og hlýtt 8.—20. nóvember. Ýmsar jurtir stóðu þá
enn í blómi, og voru blóm stöðugt að springa út. Sá ég 46 tegundir
í blómi í Reykjavík 14.—20. nóvember; 12 villijurtir og 34 garða-
blóm. Túnfíflar voru víða að springa út. Ennfremur haugarfi, hjart-
arfi, krossfífill og varpasveifgras; og einstaka sóley, njóli, baldurs-
brá, gullbrá, vallarfoxgras, rýgresi og axhnoðapunktur. Hvarvetna í
görðum voru stjúpublóm, morgunfrúr, dvergfíflar (bellis), ljóns-
munnar, gulltoppar og ilmskúfar (levkoj) í blómi. Færra var blómg-
andi hjá hinum 28 tegundunum. 17. nóvember sprakk út stór gul
rós í garði við Hringbraut 78. Rlómknappar sáust enn á skúfrósum
og gömul blóm ekki öll fallin.
SólbruSur (Sineraria) byrjaði að blómgast úti í garði um vetur-
nætur og var flutt inn í fullum blóma 16. nóvember. Garðar grænk-
uðu af arfa. „Líftréð1* bak við stjómarráðið o. fl. víðihríslur stóðu
enn með dálitlu laufi. Man ég ekki eftir þvílíku vetrarblómgunar-
skrúði nema árið 1945. Þá blómguðust rúmlega 40 tegundir jurta
í Reykjavík fram að 24. nóvember (sbr. Náttúrufræðinginn 1946).
Frostakafla gerði 21. og 28. nóvember. Þann 29/11 hlýnaði að nýju.
Var veður rakt og kyrrt. 1. desember voru borðuð fersk jarSarber úr
vermireit á Húsavík. Einstaka sóleyjar sáust þá í blómi bæði nyrðra
og úti á Seltjamarnesi. 4. desember blómguðust rósir í garði á Siglu-
firði. 9. desember sáust allmargir túnfíflar, krossfíflar og stjúpur enn
í blómi; allt nýútsprungið. Ennfremur fáeinir dvergfíflar, ilmskúf-
ur, næturfjóla, völskueyra, gulltoppur og grænkál. Garðar grænkuðu
enn af haugarfa, sem stóð með fjölda blómhnappa. Smáralauf var
iðgrænt og súrblöðkur uxu. 11. desember gerði frost að nýju, en í
janúar kom enn hlýviðri. 11. janúar voru levkoj og primúla í blómi
í garði við Ásvallagötu 52 í Reykjavík, og 20. janúar vom prímúla
og sifjarlykill í blómi í garðinum við Tjamargötu 14.