Náttúrufræðingurinn - 1953, Blaðsíða 69
SILUNGUR í GJÁNtJPSVATNI
61
ekki von á verulegu dýralífi í vatni, sem lokað er af jökli, fór ég að
athuga þetta nánar.
Kom þá i ljós, að þarna voru silungsseiði á sveimi, og virtust þau
una sér hið bezta. Ég gizka á, að ég hafi séð þar 40—50 seiði. Hin
stærstu voru 5—6 cm á lengd, en hin minnstu varla meira en 3-—4
cm. Ekki er nokkrum efa bundið, að þarna var um silung að ræða.
Til þess að komast i Gjánúpsvatn hefur silungurinn orðið að fara
langa leið, líklega 3—4 km, undir jökli. Er þá annaðhvort, að seiðin
sjálf hafa farið það, eða, að fullorðinn silungur hefur komizt í vatnið
og hrygnt þar. Ég sá seiði aðeins í syðra vatninu.
Yfirleitt mun vera talið, að silungur gangi ekki í ofanverð Horna-
fjarðarfljót. 1 þessu sambandi má geta þess, að í nýjustu og fullkomn-
ustu handbók í jöklafræði, eftir R. von Klebelsberg í Innsbruck: Hand-
buch der Gletscherkunde und Glazialgeologie (Wien 1948), er full-
yrt, að fiskur haldi sig ekki í námunda við jökla.
I ritinu segir (Bd. I, bls. 235): „Fische hingegen beginnen erst in
viele Kilometer weitem Abstand von den Gletschertoren aufzutreten".
SUMMARY
Last summer the author observed several small trouts in the ice-dammed lake
Gjánúpsvatn at the E. margin of Hoffellsjökull.
Ritstjórarabb
Með þessum árgangi flyzt prentun Náttúrufræðingsins úr Hóla-
prentsmiðju í prentsmiðjuna Leiftur. Voru þessi prentsmiðjuskipti
ákveðin af meiri hluta félagsstjórnar á fundi þ. 29. janúar. Um leið
og ég læt í ljós von um góða samvinnu við Leiftur, vil ég þakka
prentsmiðjustjóra Hólaprents, Hafsteini Guðmundssyni, og starfs-
mönnum þeirrar prentsmiðju, ágæt vinnubrögð og einstaka samvinnu-
lipurð þau ár, sem prentun Náttúrufræðingsins hefur verið í þeirra
höndum. Mæli ég hér einnig fyrir munn þeirra annarra ritstjóra
Náttúrufræðingsins, sem við Hólaprent hafa átt skipti. Þegar bóka-
flóð tók að færast í vöxt á uppgripaárum annarrar heimsstyrjaldar-
innar, þótti prentsmiðjum lítill slægur í að prenta rit sem Náttúru-
fræðinginn, og leit svo út um tima, að engin prentsmiðja fengist til