Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1954, Blaðsíða 4

Náttúrufræðingurinn - 1954, Blaðsíða 4
114 NÁTTtJRUFRÆÐINGURINN l.mynd. Landbrotshólar. Loítmynd. — The Landbrotshólar. Aerial photo. Ljósm. Jón Jónsson. venjulegir eldgígir, en aðrir hafa enga gíglögun, heldur eru meira eða minna strýtumyndaðar gjallhrúgur. Þegar farið er um þetta afar sérkennilega landslag, er ekki unnt að sjá neina röð eða reglu í legu hólanna. Séð úr lofti úr nokkurri hæð, kemur þó í Ijós, að þessu er ekki þannig farið. Hólar og hólaþyrpingar liggja í sjálfu sér i röðum, sem mynda nálægt því rétt horn við hraunröndina á hverjum stað. Þetta sýnir, að um venjulegan hraunstraum hefur ver- ið að ræða. Hólarnir eru engir gígir, heldur aðeins gervigígir, mynd- aðir í hrauninu sjálfu. Hólaraðirnar segja til um stefnu hraun- straumsins. 1 þessu sambandi má einnig geta um, að sums staðar, einkum vestan til í Landbroti, má sjá langar og lágar, nokkuð óreglulegar, bogadregnar öldur, sem mynda nokkurn veginn rétt hom við hólaraðirnar. Ég hygg, að þær séu fornir straumgárar, svigður (Strömungsbögen) á hrauninu. Gervigígir myndast, þar sem hraun rennur yfir votlendi, og Þor- valdur Thoroddsen gefur þá skýringu á myndun Landbrotshólanna. Dr. Sigurður Þórarinsson hefur nýlega ritað rækilega um þess

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.