Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1954, Blaðsíða 8

Náttúrufræðingurinn - 1954, Blaðsíða 8
118 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 4. mynd. Blöðrótt, palagonitiserað gler. Stækkað 80 sinnum. — Vesicular, palagoni- tized glass. Enlarged 80 X. — Ljósm. Jón Jónsson. breytingu glersins (3. og 4. mynd). Kemur það heim við það, sem þekkt er frá móbergsmynduninni (5. mynd). Auðsjáanlega er það sjálft gjallið í hólunum, sem mestmegnis er úr gleri. Stundum er það svo blöðrótt, að það líkist mest neti úr meira eða minna mynd- breyttu gleri (4. mynd) . Eins og áður er getið, er mesti fjöldi af mismunandi stórum bas- alt-molum í bergsteypunni. Við athugun í smásjá kemur í ljós, að margir þeirra hafa um sig húð úr brúnleitu gleri, en eru að innan úr venjulegu, nokkuð blöðróttu basalti (6. mynd). Innan um gjallið í hólunum er mjög mikið af hnöttóttum eða ná- lægt því hnöttóttum hraunkúlum af mismunandi stærð, og hugði ég það í fyrstu vera venjulegar hraunkúlur (bombur). Oft er það líka svo, en við nánari athugun sést, að mikið af þeim er annars eðlis. Ef svona kúla er brotin, kemur í ljós, að hún er að innan úr venjulegu, blöðróttu basalti, en það verður því þéttara sem nær dreg- ur yfirborði kúlunnar, og yzt er það glerkennt og svart að sjá með berum augum. Við athugun í smásjá sýnir það sig, að hin dökka húð er í raun

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.