Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1954, Blaðsíða 17

Náttúrufræðingurinn - 1954, Blaðsíða 17
ISLENZKIR FUGLAR IX 127 Jökulsár í Lóni og ef til vill einnig á fjörunum framan við Papa- fjörð og Lónsfjörð. En hér endar útbreiðslusvæði skúmsins á Suður- landi, því að vitað er með vissu, að skúmur verpur hvorki í Álfta- firði né Hamarsfirði í S.-Múl., enda þótt skilyrði virðist vera þar ákjósanleg fyrir hann. Sýslutakmörkin milli A.-Skaft. og S.-Múl. eru því jafnframt austurtakmörk útbreiðslusvæðisins. Þá er aðeins ógetið tveggja einangraðra skúmabyggða í öðrum landshlutum. Önnur þeirra er á eyrum í Jökulsá á Brú (N.-Múl.) og í grennd við hana, nokkru ofan við árósinn, en hér mun þó vera um fremur lítið varp að ræða. Hin er skammt ofan við ós Jökulsár á b’jöllum, einkum í svonefndum Viðibakka. Talið er, að á þessu svæði verpi nú 150—200 pör. Hér að framan hef ég rakið allrækilega það, sem vitað er um út- breiðslu skúmsins hér á landi. Mér er sjálfum ljóst, að þetta yfir- lit er ófullkomið, enda er hér um fyrstu tilraun að ræða. Ég væri því mjög þakklátur öllum þeim, er þetta lesa, fyrir hvers konar leið- réttingar og viðauka, sem gætu stuðlað að því að auka þekkingu okkar í þessu efni. Ég hef reynt að gera mér grein fyrir því, hve mörg skúmapör muni verpa hér á landi, og hef ég komizt að þeirri niðurstöðu, að á Skeiðarársandi verpi 3000 pör, á Breiðamerkursandi 1500 pör, á Mýrdalssandi og ósasvæði Kúðafljóts 500 pör og á öðrum íslenzk- um varpstöðvum 1000 pör. Til samans verða þetta á öllu landinu 6000 pör eða 12000 fullorðnir varpfuglar. Auðvitað er hér að all- verulegu leyti um ágizkanir að ræða, en ég tel þó ólíklegt, að miklu geti skakkað frá því rétta, en úr því verða framtíðarathuganir að skera. Talið er, að 1000 skúmapör verpi á Hjaltlandseyjum og í Orkneyjum og 200 pör í Færeyjum. Heildarfjöldi varppara í Norður- Atlantshafinu verður því 7200 pör eða 14400 fuglar. Skúmurinn verður því að teljast til hinna sjaldgæfari sjófugla Norður-Atlants- hafsins. Þar sem um 83% af heildarstofni skúmsins í Norðurhöfum verpur á íslandi, stendur það okkur Islendingum næst að kanna sem ræki- legast útbreiðslu hans og lífshætti. Skúmurinn er stór og áberandi fugl, og hann er auk þess grimmur og ágengur á varpstöðvunum. Af þessum orsökum, svo og vegna hinnar takmörkuðu útbreiðslu, er hann ein af þeim tegundum eða öllu heldur deilitegundum villtra fugla, sem vel gerlegt ætti að vera að telja með mikilli nákvæmni. Og ég tel vel framkvæmanlegt á einu sumri að telja nákvæmlega

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.