Náttúrufræðingurinn - 1954, Blaðsíða 22
130
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
ófleygir skúmsungar hafa jafnvel fundizt á Breiðamerkursandi fram
að þeim tíma.
Það er vitað, að skúmurinn leitar til hafs á veturna, eins og kjó-
inn, en skúmurinn sést þó oftar nær landi á þessum tíma árs en
kjóinn. Talið er, að vetrarlieimkynni skúmsins í Atlantshafinu séu
á svæðinu frá 60° n.br. suður að hvarfbaugnum nyrðri (23Y20 n.br.).
Talsvert hefur verið merkt af skúm hér á landi, og hafa það ein-
göngu verið ófleygir ungar, sem merktir hafa verið. Aðeins 5 skúm-
ar hafa náðst aftur að vetrarlagi, og gefa þessar endurheimtur þvi
tiltölulega litla hugmynd um hin raunverulegu vetrarheimkynni
íslenzka skúmsins. Einn þessara skúma, sem allir náðust aftur á
1. vetri, var skotinn við Nýfundnaland (Horse Islands) í október,
annar var skotinn á Ermarsundi (út af Montmartin sur Mer, Frakkl.)
í nóvember, sá þriðji var skotinn við strönd Belgíu (30 km norður
af Blankenberge) í desember, sá fjórði var skotinn í desember í suð-
austurhomi Biscayaflóa, rétt við landamæri Frakklands og Spánar,
og sá fimmti fannst dauður í janúar á eyjunni Skye við vestur-
slrönd Skotlands.
Talsvert meira af merktum skúm hefur náðst aftur að sumarlagi.
At skúmum á l.sumri var einn skotinn við Nýfundnaland (Strait
of Belle Isle) í júlí. Af skúmum á 2. sumri voru 2 skotnir við SV.-
Grænland í ágúst, og 3 voru skotnir við norðurströnd íslands i júní—
ágúst. Af fuglum á 3. sumri var 1 skotinn við SV.-Grænland í ágúst,
og 6 voru skotnir við norðurströnd Islands í maí—júlí, þar af 1 á
varpstað, þar sem hann hafði verið merktur (við Jökulsárósa í Ax-
arfirði). Af fuglum á 4. sumri voru 2 skotnir við norðurströnd Is-
lands, í maí og snemma í ágúst. Loks voru 5 ára gamall skúmur og
8 ára gamall skúmur skotnir á Breiðamerkursandi, þar sem þeir
höfðu verið merktir sem ungar. Þá má geta þess, að skúmur, merkt-
ur sem ungi í Færeyjum, náðist á 2. sumri við austurströnd Islands.
Af árangri merkinganna má draga þair ályktanir, að íslenzkir
skúmar yfirgefi íslenzk hafsvæði á veturna og leiti lengra eða skem-
ur suður á bóginn, einkum til SA. (strendur Vestur-Evrópu), en þó
einnig til SV. (Nýfundnaland). Mér er heldur ekki kunnugt um,
að vart hafi orðið við skúma hér við land að vetrarlagi, að minnsta
kosti ekki á tímabilinu frá nóv.—jan. Eina undantekningin, sem mér
er kunnugt um, er hamur af skúm i Náttúrugripasafninu, er skot-
inn var í Faxaflóa 28. desember. Hins vegar virðist skúmurinn fara
að koma upp að landinu tiltölulega snemma á vorin eða seinni part