Náttúrufræðingurinn - 1957, Page 23
ÁSTAND EFNISINS í IÐRUM JARÐAR
17
DÝPI
2. mynd. Þrýstingur, ósamþjappanleiki og festa í iðrum jarðar.
km. Jeffreys hefur nýlega sýnt fram á, að sú dýpt er rétt, svo að ekki
skakkar meiru en örfáum kílómetrum. Ekki hefur tekizt að finna
neinar S-bylgjur, sem borizt hafa gegnum kjarnann. Það ásamt
fleiri upplýsingum bendir til, að kjarninn hafi sömu eiginleika og
fljótandi efni (með tilliti til jarðskjálftabylgja), að minnsta kosti
niður á um 5000 km dýpi frá yfirborði jarðarinnar.
Svæði G, sem Iiefir um 1250 km geisla, er innri kjarninn (inner
core). Það var fyrst árið 1936, að danskur jarðskjálftafræðingur,
magister Inge Lehmann, sýndi fram á, að til væri þessi innri kjarni.
Svæði E er oft nefnt ytri kjarninn (outer core), þar eð betra nafn
vantar. Rannsóknir Jeffreys benda til, að millisvæði F sé milli E og