Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1957, Side 27

Náttúrufræðingurinn - 1957, Side 27
RÖSKUN Á JAFNVÆGI í NÁTTÚRUNNI 21 er hér útdautt, en mœðiveikin hefur reynzt lífseig — og baráttan við hana dýr og erfið. — Einu sinni var héramálið mikið hitamál í land- inu. Virðulegum þingmönnum hljóp kapp í kinn, ekki síður en þegar friðun rjúpu er á döfinni. Menn vissu, að hérasteik er herra- mannsmatur og vildu sumir flytja inn héra lianda íslenzkum veiði- mönnum. En kunnugt var líka, að hérar geta verið meinvættir í skóglendi og görðum. Alþingi neitaði að leyfa innflutning héranna. Ver tókst til í minkamálinu. Fjáraflamenn höfðu sannfrétt, að vest- ur í Ameríku lifði sundmörður einn grimmur, hinn svonefndi minkur, sem gæfi af sér dýrmætan loðfeld. Mikill áróður var haf- inn. Náttúrufræðingurinn Guðmundur G. Bárðarson varaði við slíkum innflutningi. Taldi hann sundmörð þennan skaðsemdar- dýr, hættulegan fuglalífi landsins og jafnvel varasaman silunga- stofninum í lækjum, ám og vötnum. Málsvarar loðdýranna töldu liins vegar enga hættu á ferðum, þar eð dýrin myndu verða lokuð rambyggilega inni í búrum. Og minkavinirnir sigruðu. Minkarnir voru fluttir inn, settir í búr og sluppu út úr þeim sums staðar. Hér var minkurinn í essinu sínu, hann átti enga hættulega óvini meðal dýranna á íslandi, en gat ótruflaður veitt fugla og fiska, dreifðist um landið og jók kyn sitt í ergi og gríð. Minkaeldið í búrunum dróst hinsvegar saman og var loks bannað með öllu eins og hvert annað „karakúl". En villiminkurinn lifir og er orðin plága, eins og Guðm. Bárðarson o. fl. náttúrufræðingar höfðu sagt fyrir. Er minkurinn nú orðin mesti vargur í varplöndum víða um land og er fé lagt til höfuðs honum. Virðist erfitt að útrýma honum og er ekki enn séð fyrir endann á „minkamálinu". Hliðstæð dýrainnflutningsævintýri eru alkunn erlendis. Árið 1870 voru desmerdýr flutt til Yamaica í Vesturindíum — frá Ind- landi. Desmerdýrin áttu að eyða rottum, sem gerðu mikinn usla á .sykurökrum á Yamaica. Desmerdýrið er frægt, sem „Rikki-tikki- tavi“ í sögum Kiplings, þar sem lýst er bardögum þess við slöngur. Það drepur bæði slöngur og rottur. Desmerdýrin eyddu líka rott- um sykurakranna með heiðri og sóma. En þegar rotturnar voru lagðar að velli, vantaði desmerdýrin mat. Þeim fjölgaði óðum og tóku nú að ráðast á fugla, ketti, hunda, eðlur og slöngur og réðust líka inn í hænsnahús og grísastíur til fanga. Slæmt þótti að missa grísina, hænsnin og önnur húsdýr, en dauði fuglanna og eðlanna varð þó jafnvel örlagarikari. Ýms skaðsemdarskordýr, sem fuglarnir

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.