Náttúrufræðingurinn - 1957, Blaðsíða 30
Jóhannes Áskelsson:
r
Myndir úr jarðfræði Islands VI
Þrjár nýjar plöntur úr surtarbrandslögunum í Þórishliðarfjalli
Um gróðurmenjar í jarðlögum í Þórishlíðarfjalli í Seldárdal var
skrifað í Andvara 1946 (1) Jarðlagaskipun Þórishlíðarfjalls var
þar rakin. Verður því aðeins lítillega drepið á hana hér, en vísað
til Andvaragreinarinnar í því efni.
Þórishlíðarfjall liggur vestanmegin við botn Selárdals, suðvest-
ur frá bænum Uppsalir. Það er venjulegt vestfirzkt blágrýtisfjall,
hlaðið úr hraunlögum með móbergskenndum millilögum. Sigurð-
ur J. Gíslason, bóndi í Uppsölum, benti mér á fyrir nokkrum ár-
1. Mynd. Þórishlíðarfjall við Selárdal. Örin bendir á plöntulagið. Teikning
eftir ljósmynd.
The Mt. Þórishlíðarfjall. The arrow points at the fossiliferous layer.
um, að áberandi blaðför væri að finna í einu millilaginu. Plöntu-
lag þetta liggur í nálega 360 m liæð yfir sjó, en hæð fjallsins er, sam-
kvæmt herforingjaráðskortinu, 500 m. Liggur því um það bil 140
m þykk blágrýtishella ofan á plöntulaginu. Millilagið, sem plöntu-
steingervingarnir liggja í er um 20 m þykkt, en steingervingana hef
ég aðeins fundið í 12—20 cm þykku smálagi, sem kemur í ljós um
mitt millilagið. Steingervingalaginu má fylgja eftir endilangri fjalls-