Náttúrufræðingurinn - 1957, Page 46
38
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
Enda þótt lýsing Biblíunnar á fyrirbærinu sé of ógreinileg til
þess að auðvelt sé að átta sig á því, hvers eðlis það manna var, sem
ísraelsmenn neyttu í eyðimörkinni, þá hafa sumir látið sér detta
í hug, að þar hafi verið um að ræða skóf eina (Lecanora esculenta),
sem vex á steinum víða í Litlu-Asíu. í þurrkum losnar skófin og
molnar í smáhluti, sem fjúka fyrir vindum og safnast saman í
sprungum og gjótum. Skófin gat verið góð fæða hungruðum, en
kemur ekki með dögginni, bráðnar ekki við sólu og verður ekki
ormétin, eins og sveppir. En þess vegna hafa aðrir látið sér detta í
hug, að manna biblíunnar hafi einmitt verið sveppur. Og þessu til
stuðnings er talið, að í Arabíu finnast sveppagró í eyðimörkinni,
sem innfæddir telja vera af Guði send. Eru þau hvít og sæt á
bragðið, en bráðna í sólskini, og skríða þá út í ormum. Hvorki
þessi sveppagró né heldur skordýrakvoðan mundi þó geta verið
aðalfæðan fyrir stóran hóp manna í lengri tíma. En hafi ísraels-
menn rekizt á einhverjar ofangreindar hunangsdaggir í eyðimörk-
inni, hafa þær sannarlega getað orðið hungruðum hóp manna örv-
un til þess að halda áfram ferðinni og neyta með meiri lyst þeirrar
einhæfu fæðu, sem þeir höfðu að nesti sínu.
Sturla Friðriksson.
íslenzkir rannsóknarleiðangrar 1956.
Á vegum Náttúrugripasafnsins störfuðu þeir Finnur Guðmunds-
son, Guðmundur Kjartansson og Sigurður Þórarinsson.
Finnur Guðmundsson vann að fuglarannsóknum og söfnun íugla
í Mývatnsveit, í Þjórsárverum við Hofsjökul og í suðurhluta
Strandasýslu. í maí dvaldist hann um vikutíma í Mývatnssveit og
safnaði öndum í vorbúningi. Síðustu viku maímánaðar vann hann
að rannsóknum á varpháttum heiðagæsarinnar í Þjórsárverum við
Hofsjökul. Auk hans tóku þátt í þeim leiðangri menntaskólanem-
endurnir Agnar Ingólfsson og Jón Baldur Sigurðsson, og ennfrem-
ur Björn Björnsson frá Norðfirði, sem var ljósmyndari leiðangurs-
ins. Bandaríkjaher á Keflavíkurflugvelli lagði til tvær þyrilvængj-
ur og annan útbúnað, sem til leiðangursins þurfti. í júní vann
Finnur um þriggja vikna skeið að fuglarannsóknunt og söfnun í
sunnanverðri Strandasýslu, allt norður til Bjarnarfjarðar. Aðstoðar-