Náttúrufræðingurinn - 1957, Síða 48
40
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
4. Dr. M. Vuagnat frá háskólanum í Genf fékkst við jarðfræði-
rannsóknir víðs vegar um landið og rannsakaði einkum bólstra-
berg.
5. Dr. G. Walker frá Lundúna-háskóla hélt áfram rannsóknum
sínum á basaltlögum á Austfjörðum. Með honum störfuðu þrír
brezkir jarðfræðistúdentar.
6. Tveir jarðfræðistúdentar frá Bristol-háskóla gerðu athuganir
á basalti í fjöllunum milli Skagafjarðar og Eyjafjarðar.
7. Um 60 brezkir skólapiltar æfðu útiveru og náttúruskoðun við
Hagavatn.
(Frá Rannsóknaráði ríkisins).
Náttúrufrœðingar Ijúka prófi.
Síðustu árin hafa bætzt allmargir í hóp íslenzkra náttúrufræð-
inga. Verða hér taldir þeir, er lokið hafa prófi í grasafræði og dýra-
fræði undanfarin ár og ekki hefur áður verið getið hér í ritinu.
Pétur Jónasson, mag. scient., í dýrafræði við háskólann í Kaup-
mannahöfn, 1952. Sérgrein: vatnalíffræði (zooplankton). Starfar
við rannsóknastöðina í Hilleröd á Sjálandi.
Svanliildur Jónsdóttir, mag. scient., í grasafræði við liáskólann í
Kaupmannahöfn, 1953. Sérgrein: fléttur (Lichenes). Hlaut gull-
heiðurspening sama háskóla fyrir ritgerð um íslenzkar fléttur. Dvel-
ur í Danmörku.
Jakob Magnússon, dr. phil., í dýrafræði við háskólann í Kiel,
1955. Sérgrein: fiskifræði. Starfar við Fiskideilcl Atvinnudeildar
Háskólans.
Sigurður Jónsson, lic. es sc., í grasafræði við Sorbonne-háskólann
í París, 1955. Sérgrein: jurtalífeðlisfræði. Dvelur í París.
Halldór Þormar, mag. scient., í dýrafræði við háskólann í Kaup-
mannahöfn, 1956. Sérgrein: dýralífeðlisfræði. Starfar við rann-
sóknastöðina á Keldum.
Högni Böðvarsson, dr. phil., í dýrafræði við háskólann í Kiel
1956. Sérgrein: skordýrafræði. Starfar við háskólann í Lundi.
Jakob Jakobsson, B.S. í dýrafræði við háskólann í Glasgow, 1956.
Sérgrein: fiskifræði. Starfar við Fiskideild Atvinnudeildar Háskól-
ans.
Þórunn Þórðardóttir, mag. scient., í grasafræði við háskólann í