Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1957, Síða 49

Náttúrufræðingurinn - 1957, Síða 49
SITT AF HVERJU 41 Osló, 1956. Sérgrein: Haflíffræði (phytoplankton). Starfar við Fiski- deild Atvinnudeildar háskólans. Sigurður Pétursson. Félagsmál. JÓ7i Hjálmsson, verkamaður, er síðast bjó í Bröttugötu 6 í Reykjavík og andaðist 25. apríl 1956, eftirlét Hinu íslenzka nátt- úrufræðifélagi allar eigur sínar. Er þessi gjöf um 20 þúsund krónur, mest í peningum, en að nokkru leyti í bókum, og þar með allur Náttúrufræðingurinn, sem nú er orðinn fágæt eign. Jón Hjálmsson var unnandi náttúrufræða. Hann gerðist ævifélagi í Hinu íslenzka náttúrufræðifélagi árið 1946 og var virkur meðlimur þess til hins síðasta. Félagið minnist tryggðar Jóns Hjálmssonar með þakklæti fyrir gjöf hans, sem mun verða félaginu rnikill styrkur. Höfunda- og efnisskrá Náttúrufræðingsins yfir 25 fyrstu áragang- ana, 1931-1955, kemur út með þessu hefti. Skrárnar eru ca 4 arkir að stærð með sérstöku blaðsíðutali. Sendast þær sem kaupbætir öllum áskrifendum Náttúrufræðingsins. Sigurður Pétursson. MARTIN SCHWARZBACH: Geologenfahrten in Island. 67 bls. 53 myndir og 1 kort. Georg Fischers Verlag, Wittlich (Eifel) 1956. Allt frá dögum Roberts liunsens og Sartoriusar von Waltershausen hafa þýzkir vísindamenn lagt drjúgan skerf til jarðfræði- og landafræðirannsókna á íslandi og skrifað fjölmargt um þær rannsóknir, bæði bækur og ritgerðir. Einkum kvað mikið að rannsóknum þýzkra jarðfræðinga liér á landi á fyrsta áratug þessarar aldar. Þá störfuðu hér jarðfræðingarnir W. v. Knebel, H. Reck, K. Sapper, H. Spethmann, M. v. Komorowicz o. fl. Erá millistríðsárunum má nefna W. Ivan, F. Bernauer, O. Niemczyk og E. M. Todtmann. Todtmann tók upp rannsóknir hér að nýju eftir aðra heimsstyrjöldina. Nú liefur nýr maður bætzt í hóp þeirra þýzku jarðfræðinga, er leggja leið sína hingað til rannsókna. Sá er Martin Schwarzbach, prófessor við Kölnarháskóla. Schwarz- bacli hefur dvalið hér tvö sumur, 1954 og 1955 og ferðazt víða um landið,

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.