Náttúrufræðingurinn - 1969, Side 10
4
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
úti í högunum og fram með
þjóðvegunum morar allt í
syngjandi þistilfinkum, þessum
óvenjulega litfagra spörfugli. —
Við og við bregður fyrir sjónir
Italiusþör með brúnu húfuna;
hann er hér staðgengill grdsþörs-
ins, sem er algengur á megin-
landi Evrópu.
Bærinn Calvi liggur við logn-
sælan flóa í skjóli klettahöfðans
Revellata. I vitanum á höfðan-
um velja bláþröstungshjón sér
gjarnan varpstað. Og skammt þar
lrá finnast turnfálkahreiður og
sþarrhaukshreiður. Þegar siglt er
til bæjarins, getur að líta nokkra
3. mynd. Turnfálki. hella í klettunum. í góðu veðri
er auðvelt að komast inn í þessa
liella. Á klettasyllununr verpir hjargdúfan, ,sem álitin er formóðir
tömdu dúfunnar. Innst við klettahöfðann er víð jarðsprunga. Er
dembt í hana öllu sorpi og öllum úrgangi, sem bærinn þarf að
losa sig við. Hér getur að líta heila lierdeild af hröfnum. Er auð-
sætt, að hrafnarnir vinna þarna mikið þrifnaðarstarf í þágu bæjar-
ins, jafnframt því sem jjeir hafa sjálfir nóg að bíta og brenna. Þeir
eru gæfir og gera sér hreiður á klettastöllum þar skammt frá, svo
að segja rétt við jjjóðveginn. Sums staðar sést á kollana á ungun-
um Jreirra, þegar þeir eru að bylta sér í hreiðrinu, sem er ekki
annað en ofurlítil dyngja af kvistum og greinabútum. En það eru
fleiri dýr en hrafnarnir, sem hafa lífsviðurværi sitt í sorpstöðinni
og í grennd við hana. Mörg skordýr eiga þarna sældardaga, en
jjau verða líka kviðfylli fyrir margan spörfuglinn. Mariuerlan og
nœfurfinkan hremma skordýrin á flugi. Og það lætur hátt í múr-
svölungum og alþasvölungum. Á þjóðveginum eru tordyflarnir
önnum kafnir við að velta áburðarkúlum, eins og þeirra er venja
áður en varpið hefst, því að kúlurnar eru næringarforði handa
lirfunum, er jjær koma úr egginu.
Hvarvetna er fjölbreytt gróðurlíf í margvíslegum litum. í skurð-