Fréttablaðið - 06.06.2009, Page 1

Fréttablaðið - 06.06.2009, Page 1
HELGARÚTGÁFA Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI6. júní 2009 — 133. tölublað — 9. árgangur sjómannadagurinnLAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2009 FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL FERÐAMÁLASKÓLINN ICELAND SCHOOL OF TOURISM G ð matur [ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MAT ] júní 2009 Hressandi í heitu veðri Brynjólfur Garðarsson, yfirmatreiðslumeistari Portsins í Kringlunni, framreiðir gott og fljótgert brauð og tvo svalandi drykki. BLS 6-7 ÍS LE N SK A /S IA .I S /N AT 4 40 74 1 0/ 08 TÓNLIST 56 HELGARVIÐTAL 28 TVÖ SÉRBLÖÐ Í DAG RANNSÓKNIR 30 Hefur gert merki- legar uppgötvanir um háfjallaveiki Harpa Magnúsdóttir er undirlautinant í bandaríska hernum Umhverfið er okkar leikvöllur Íslenskir strákar iðka „Free Running“-íþróttina MYNDAÞÁTTUR 40 KLASSÍSKAR BAÐFATABOMBUR LITIÐ UM ÖXL 32 VORTILTEKTREKKJUNNAR LÍKUR Í DAG! H E I L S U R Ú M ALLT AÐ 50% AFSLÁTTUR! SUMARÞJÓNUSTA Viðbótarsýning Frétta Stöðvar 2 og Íslands í dag kl. 21.00 alla virka daga á Stöð 2 Extra Gagnagrunnur tonlist.is marg- faldast að stærð SETJA SVIP Á MIÐBORGINA Leikur Íslands og Hollands í undankeppni fyrir heimsmeistaramótið í knattspyrnu fer fram í kvöld en undanfarna daga hafa stuðningsmenn hollenska landsliðsins sett litríkan svip á miðborg Reykjavíkur. Þessir herramenn höfðu gert góð kaup í sölubás í Austurstræti í gærdag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON STJÓRNMÁL Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra efast um að Seðlabanki Íslands eigi að vera sjálfstæð stofnun áfram. Hann segir í helgarviðtali við Fréttablaðið að bankinn ætti að hafa hagsmuni alls samfélagsins undir. „Ef bankinn rís ekki undir því að axla samfélagslega ábyrgð sína, hvers vegna er hann þá ekki færður aftur undir lýðræðislegt ákvörðunarvald?“ spyr hann. Sjálf- stæði Seðlabankans segir Ögmund- ur hluta af peningahyggju liðinna áratuga. „Þessi tími er á enda runninn. Auðvitað á Seðlabank- inn, eins og allar aðrar stofnanir í lýðræðissamfélagi, að vera háður þeim sem huga að almannahag.“ Um hvort til standi að breyta lögum um bankann á kjörtíma- bilinu, segir Ögmundur: „Ég held að þegar við tölum um þetta kjör- tímabil, eigum við aldrei að segja aldrei um neitt. Allt hlýtur að vera í stöðugri endurskoðun, lög um Seðlabankann líka. Ef hann er farinn að ganga gegn þjóðar- hag, þá hljótum við að taka hans starfsemi til endurskoðunar. Það er sem betur fer ekki bannað með lögum að breyta lögum.“ Spurður hvernig eigi að skapa stöðugleika í efnahagsmálum utan ESB, og þá sérstaklega í gjald- miðlamálum, segir hann að þetta þurfi að íhuga vel. „Ég hef ekki komist að niðurstöðu í því. En ég vil að við skoðum alla kosti.“ Gagnrýni á ríkisstjórnina, um skort á gagnsæi og fleira, eigi að taka alvarlega. Stjórnin sé þó rétt að byrja. „Það er heilmikill tími til stefnu því við ætlum að sitja hérna næstu tólf árin.“ - kóþ / sjá 24 og 25 Lögum verði breytt um Seðlabankann Heilbrigðisráðherra útilokar ekki að lögum um Seðlabanka verði breytt. Bank- inn eigi ekki að ganga gegn þjóðarhag. Hann hefur ekki gert upp hug sinn um hvað geti komið í stað ESB-aðildar, en segir stjórnina ætla að sitja í tólf ár. FÓLK Þorsteinn Gunnar Bjarnason kvikmyndaleikstjóri gæti varla óskað sér betri byrjun á ferlin- um. Í fyrstu kvikmynd Þorsteins í fullri lengd leikur Þórhallur Sig- urðsson (Laddi) aðalhlutverkið og mótleikari hans er Stefán Karl Stefánsson. - fgg / sjá síðu 66 Stefán Karl og Laddi: Saman í mynd

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.