Fréttablaðið - 06.06.2009, Qupperneq 2
2 6. júní 2009 LAUGARDAGUR
PARÍS, AP Brakið sem fannst um
650 kílómetra norðaustur af Bras-
ilíu á þriðjudag mun ekki vera úr
flugvél Air France sem hvarf á
leið sinni frá Brasilíu til Frakk-
lands á mánudag. Dominique
Bussereau, samgönguráðherra
Frakklands, gaf út yfirlýsingu
þess efnis í gær.
Allt leikur því enn á huldu um
afdrif vélarinnar. Bussereau sagð-
ist harma þá yfirlýsingu brasil-
ískra leitarsveita, sem gefin var
út á fimmtudag, að víst væri að
brakið sem fannst væri úr vélinni.
Hann hvatti til ítrustu varkárni í
öllum yfirlýsingum um málið.
Enn er leitað á sjó og úr lofti að
flugvélinni. - kg
Flugvélin sem týndist:
Brakið ekki úr
vél Air France
LÖGREGLUMÁL Karlmaður á fimm-
tugsaldri sem lögreglan handtók í
vesturbæ Reykjavíkur í fyrrinótt
fannst látinn í
fangaklefa sínum
á ellefta tíman-
um í gærmorg-
un. Samkvæmt
heimildum
Fréttablaðsins
virðist sem mað-
urinn hafi hengt
sig með teppi.
Maðurinn var
færður í fanga-
geymslu á fimmta tímanum eftir
að hafa gengið berserksgang í
húsi við Framnesveg. Nágrannar
höfðu tilkynnt að hann væri með
háreysti um miðja nótt og þegar
lögregla kom á staðinn hafði hann
lent í útistöðum við nágrannana.
Maðurinn streittist á móti við
handtöku og ógnaði meðal annars
lögregluþjónunum með hnífi. Mað-
urinn, sem hefur margoft komið
við sögu lögreglu, var í annarlegu
ástandi.
Að sögn Geirs Jóns Þórissonar
yfirlögregluþjóns kveða starfs-
reglur á um það að fangaverðir
skuli líta til með hverjum fanga á
minnst tuttugu mínútna fresti. Nú
verði þetta andlát rannsakað og
kannað hvort ekki hafi verið eðli-
lega að öllu staðið.
Engar öryggismyndavélar eru í
fangaklefum. Geir Jón segir það
helgast af því að Persónuvernd
hafi lagst gegn því.
- sh
Maður fannst látinn eftir að hafa verið handtekinn fyrir að ganga berserksgang:
Fyrirfór sér í fangaklefanum
GEIR JÓN
ÞÓRISSON
LÖGREGLUSTÖÐIN HVERFISGÖTU Komið
var að manninum látnum í klefa sínum
skömmu fyrir klukkan ellefu í gærmorg-
un. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
EFNAHAGSMÁL Íslenska ríkið mun
ábyrgjast um 640 milljarða króna
skuld til Breta vegna Icesave-
reikninga Landsbankans í Bret-
landi og Hollandi, samkvæmt
samkomulagi sem náðst hefur við
bresk yfirvöld. Lánið mun bera
5,5 prósenta vexti á ári, en hvorki
þarf að greiða afborganir né vexti
næstu sjö ár.
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra fékk fullt umboð
ríkisstjórnarinnar í gær til að leiða
málið til lykta.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins töldu fulltrúar í samn-
inganefnd ríkisins sig með þessu
tilboði vera komna á endastöð í
viðræðunum. Annaðhvort yrði því
tekið eða viðræðunum yrði slitið.
Stjórnvöld vonast til að á þess-
um sjö árum takist að selja eign-
ir Landsbankans upp í skuldirn-
ar. Jóhanna Sigurðardóttir segir
erlend matsfyrirtæki telja að eign-
irnar geti dugað fyrir 95 prósent-
um skuldarinnar, en svartsýnustu
spár geri ráð fyrir að fjórðungur
skuldarinnar lendi á Íslendingum.
Ekki fékkst uppgefið í gær hvort
það mat tekur aðeins tillit til upp-
haflegs höfuðstóls lánsins eða
vaxta einnig.
Það er tryggingasjóður inn-
stæðueigenda sem tekur lánið, en
vegna ríkisábyrgðarinnar þarf
Alþingi að samþykkja lántökuna.
Að árunum sjö liðnum skal lánið
greiðast upp á næstu átta árum.
Árlegir vextir munu í upphafi
nema ríflega 35 milljörðum króna,
en hafa ber í huga að þeir lækka
með höfuðstólnum komi til þess að
eignir verði seldar upp í skuldina á
lánstímanum eins og líklegt er.
Svavar Gestsson, formaður
samninganefndarinnar, kynnti
utanríkismálanefnd og þingflokk-
um þessa tillögu að samkomulagi
í gærmorgun.
Stjórnarandstaðan deildi hart
á ríkisstjórnina vegna málsins á
Alþingi lungann úr gærdeginum.
Hún krafðist þess að fallið yrði frá
hefðbundinni dagskrá og fundi slit-
ið svo unnt væri að taka málið til
umræðu á þinginu.
Steingrímur svaraði því til að
Alþingi hefði fyrr á árinu veitt
framkvæmdavaldinu umboð til að
semja um málið, en að sjálfsögðu
kæmi málið inn á borð þingsins
þegar rætt yrði um ríkisábyrgð-
ina og afstaða tekin til hennar.
Stjórnarandstæðingum var mjög
heitt í hamsi og þeir létu þung orð
falla í garð stjórnarliða. Sérstak-
lega var það gagnrýnt að á kynn-
ingarfundi um samningaviðræð-
urnar fyrir þingflokkum fyrr um
daginn hafi trúnaður verið áskil-
inn um efni viðræðnanna, en á
sama tíma hefðu ráðherrar tjáð sig
um efni þeirra í fjölmiðlum. Talað
var um trúnaðarbrest, ógeðfellt
leynimakk og pukur, blekkingar
og landráð.
stigur@frettabladid.is
Vextir af Icesave-láni
35 milljarðar á ári
Ríkið ábyrgist um 640 milljarða lán vegna Icesave. Ekki þarf að byrja að borga
fyrr en eftir sjö ár. Samningamenn töldu sig komna á endastöð í viðræðunum.
Stjórnarandstaðan gagnrýndi harðlega að fá ekki að fjalla um málið á Alþingi.
EFNAHAGSMÁL „Eignarhalds- og
eigendastefnumálin eru hér í
vinnslu og þess vonandi skammt
að bíða að stefnumótun og reglur
þar að lútandi
verði birtar,“
segir Steingrím-
ur J. Sigfússon
fjármálaráð-
herra.
Formaður við-
skiptanefndar,
Álfheiður Inga-
dóttir, hefur
krafist þess að
staðið verði við
stjórnarsáttmála og mótuð eig-
endastefna. Nýlegar mannaráðn-
ingar bankanna, án þess að stöð-
urnar hafi verið auglýstar, hafa
komist í hámæli.
„Bönkunum er ætlað að ástunda
góða stjórnsýslu og viðhafa gagn-
sæi og fagleg vinnubrögð,“ segir
Steingrímur. „En fyrir einstakar
ákvarðanir verða bankastjórar og
bankaráð að svara.“ - kóþ
Fjármálaráðherra um banka:
Vonandi stutt í
eigendastefnu
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
Vill opna Græna lónið
Kona að nafni Siiri Christine Graupne
hefur óskað eftir lóð í Hafnarfirði og
samstarfi við bæinn um rekstur á
sjálfbæru húsi. Verkefnið ber enska
heitið The Green lagoon – the center
for sustainable living, eða Græna
lónið – miðstöð fyrir sjálfbæran lífsstíl.
Nöfn hringtorga
Bæjaryfirvöld á Akranesi munu innan
skamms auglýsa samkeppni um nöfn
á hringtorg bæjarins.
Tólf afgirtar landnámshænur
Kona ein í Mýrdalshreppi hefur fengið
heimild sveitarstjórnar til að halda 12
íslenskar landnámshænur við gisti-
heimilið Norður-Vík með því skilyrði
að hænurnar verði á afmörkuðu og
afgirtu svæði.
SVEITARSTJÓRNARMÁL
SVEITARSTJÓRNIR „Námsmenn af
landsbyggðinni eyða hverri krónu
á höfuðborgarsvæðinu í húsaleigu
og kaup á annarri þjónustu og
því ekki nema sanngjarnt að þeir
njóti sömu kjara hjá höfuðborgar-
sveitarfélögunum og þeirra eigin
íbúar,“ segir í svari til Stúdenta-
ráðs Háskóla Íslands frá sveitar-
stjórn Mýrdalshrepps sem kveðst
ekki telja eðlilegt að hreppurinn
niðurgreiði rekstur almennings-
samgangna í höfuðborginni.
„Meginhluti menntastofnana
Íslendinga er á höfuðborgarsvæð-
inu og sveitarfélögin þar hagnast
á því að fá unga fólkið okkar til sín
í nám,“ segja Mýrdælingar. - gar
Sveitarstjórn Mýrdalshrepps:
Niðurgreiðum
ekki strætó
Á ALÞINGI Hart hefur verið tekist á um Icesave og fleiri mál á Alþingi síðustu daga.
Hefur þar reynt á þol Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Steingríms J.
Sigfússonar fjármálaráðherra til svara. FRÁTTABLAÐIÐ/ANTON
LÖGREGLUMÁL Maður á miðjum
aldri var stunginn í öxlina í íbúð
að Hafnarstræti á Akureyri um
klukkan rúmlega sex í gærdag.
Að sögn Gunnars Jóhannssonar,
lögreglufulltrúa lögreglunnar á
Akureyri, sat maðurinn að sumbli
ásamt öðrum karli og konu þegar
til deilna kom með fyrrgreindum
afleiðingum. Hann er þó ekki talin
alvarlega slasaður.
Bæði árásarmaðurinn og fórnar-
lambið hlupu út á götu eftir árás-
ina og mátti sjá blóðslettur um
strætið.
Lögreglan lokaði götunni og bað
íbúa í húsinu, þar sem atvikið átti
sér stað, að halda sig inni meðan
lögreglan var að átta sig á því hvað
gerst hefði. Árásarmaðurinn var
síðan tekinn höndum og farið með
hann niður á lögreglustöð. Hann
reyndist hins vegar ekki vera í
ástandi til að standa í yfirheyrsl-
um svo þær voru látnar bíða uns
hann væri búinn að sofa úr sér.
Að sögn Gunnars er maðurinn 49
ára gamall og hefur oft komið við
sögu lögreglunnar fyrir óreglusak-
ir. Konan var einnig óviðræðuhæf
vegna ölvunar og var því einnig
látinn sofa úr sér á lögreglustöð.
- jse
Hnífstunga á Akureyri um kvöldmatarleytið í gær:
Gripið til hnífs í drykkjudeilu
UMMERKI UM HNÍFSTUNGUNA Fórnarlambið hljóp alblóðugt út á götu eftir árásina í
gær. Það gerði árásarmaður einnig en náðist fljótlega. MYND/ÖRLYGUR HNEFILL
EFNAHAGSMÁL „Samningurinn
verður sennilega undirritaður í
kvöld eða nótt, ég er samt að vona
ekki,“ sagði Sig-
mundur Davíð
Gunnlaugs-
son, formaður
Framsóknar-
flokksins í gær-
kvöldi. Hann
segir samning-
inn afar slæm-
an. „Reyndar
hafa breskir
sem og íslensk-
ir lögfræðingar
haldið því fram að íslenska ríkinu
beri ekki að axla þessa ábyrgð en
þarna erum við að afsala okkur
þeim möguleika. En síðan eru
vextirnir alltof háir, 5,5 prósent.
Alveg á svo eftir að koma í ljós
hvaða áhrif þetta hefur á láns-
hæfismat ríkisins og síðan gjald-
miðilinn,“ og telur í því samhengi
vert að hafa í huga að milljarð-
arnir 640 séu reiknaðir út frá
gengi Seðlabankans. „Ef gengið
fellur þá hækkar þessi upphæð
allverulega.“ - jse
Samningar um Icesave:
Óttast að þeir
semji af sér
SIGMUNDUR DAVÍÐ
GUNNLAUGSSON
SPURNING DAGSINS
Jóhannes, fór pungurinn eitt-
hvað illa í stelpurnar?
Þær eru sennilega vanar honum
aðeins ferskari.
Fyrirsætur úr raunveruleikaþættinum
Britain´s Next Top Model fóru á Fjöru-
krána og þar var fyrir þær lagt að borða
hrútspunga og annan þorramat. Reyndist
það þeim hin þyngsta þraut. Jóhannes
Viðar Bjarnason er eigandi Fjörukrárinnar.