Fréttablaðið - 06.06.2009, Page 4
4 6. júní 2009 LAUGARDAGUR
Tilboð
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
25°
16°
18°
19°
16°
16°
13°
16°
15°
15°
21°
17°
16°
30°
17°
20°
26°
12°
Á MORGUN
Hæg breytileg átt
MÁNUDAGUR
Hæg breytileg átt
13
8
10
8
12
11
12
9 10
10
BEST Á SUÐUR-
LANDI
Í dag verður hægviðri
eða hafgola á land-
inu. Upp úr hádegi
verður víða komið
bjartviðri vestan
til á Suðurlandi og
suðvestanlands.
Annars staðar verður
þungbúnara og sýnu
þungbúnast Norð-
austan- og Austan-
lands og jafnvel kann
að dropa þar og á
Suðausturlandi.
13
11
8
8 9
8
6
8
11
12
15
3
2
1
2
2
2
3
3
2
5
3
Sigurður Þ.
Ragnarsson
Veður-
fræðingur
SJÁVARÚTVEGUR Hafrannsókna-
stofnun (Hafró) leggur til að
þorskkvótinn á næsta fiskveiðiári
verði 150 þúsund tonn. Það er tíu
þúsund tonnum minna en á yfir-
standandi fiskveiðiári. Þó ber þess
að geta að upphaflega var úthlut-
að 130 þúsund tonnum í fyrra og
þar með farið eftir ráðlegging-
um Hafró en
síðan var 30
þúsund tonnum
bætt við. Útlit
er fyrir að þess
verði að bíða
í þrjú til fjög-
ur ár uns hægt
verði að úthluta
verulega meiri
afla en nú.
Einnig legg-
ur stofnunin
til að verulega
verði dregið úr
veiðum á ufsa
og ýsu. Þar að
auki er útlit-
ið ekki gott
fyrir loðnuver-
tíð næsta vetur
en hins vegar
mun betra fyrir
veturinn þar á
eftir.
Í skýrslu stofnunarinnar sem
kynnt var fjölmiðlum í gær segir
að heildarafli úr íslenska þorsk-
stofninum árið 2008 hefði verið
147 þúsund tonn sem sé lægsti
ársafli í hartnær 70 ár. „Þessi
litli afli helgast náttúrlega af því
að við erum að skera niður til að
byggja upp til framtíðar,“ segir
Jóhann Sigurjónsson, forstjóri
Hafró. „Hefðum við veitt af sama
sóknarþunga og við gerðum fyrir
nokkrum árum þá gætum við auð-
veldlega veitt 250 þúsund tonn en
þá værum við heldur ekki að ná
markmiðum okkar um uppbygg-
ingu á hrygningarstofni þorsks og
að ná þeirri aldursbreidd í stofn-
inum sem við teljum algjörlega
nauðsynlega til að auka líkurn-
ar á nýliðun í framtíðinni.“ Hafró
hefur frá árinu 2007 miðað við 20
prósenta veiðihlutfall og hefur ný
ríkisstjórn staðfest þá nýtingar-
stefnu til næstu fimm ára.
Jóhann segir enn fremur að
árangurinn af uppbyggingunni
komi í ljós eftir þrjú, fjögur ár
eða þar til hægt verður að veiða
úr þorskárganginum 2008.
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands
íslenskra útgerðarmanna (LÍÚ),
segir að þótt sjómenn hafi fundið
fyrir góðu fiskiríi upp á síðkastið
komi þessi niðurstaða þeim ekki á
óvart. „Við vorum búnir að sjá það
eftir togararallið að við ættum
von á einhverju á þessa leið,“
segir hann. Hann segir enn frem-
ur að ljóst mætti vera að dregið
verði úr ýsuveiðum en þær hafa
verið meiri en nokkru sinni und-
anfarin ár. „En almennt eru sjó-
menn þeirrar skoðunar að ástand
stofnanna sé mun betra en þessi
gögn Hafró gefa til kynna,“ segir
hann.
jse@frettabladid.is
Rýr kvóti næstu ár
Hafrannsóknastofnun leggur til að þorskveiðikvótinn verði 150 þúsund tonn á
næsta fiskveiðiári. Bíða verður í þrjú til fjögur ár uns hægt verður að heimila
mun meiri kvóta en það. Kemur ekki á óvart segir LÍÚ þótt vel gefi á miðum.
FRIÐRIK J.
ARNGRÍMSSON
JÓHANN
SIGURJÓNSSON
SÁ GULI KOMINN Í ÍS Aflaklær verða að bíða uns þorskárgangi 2008 vex fiskur um
hrygg en þá verður hægt að úthluta mun meiri kvóta.
TILLÖGUR HAFRÓ
2008 2009
Þorskur 130 150
Ýsa 83 57
Ufsi 50 35
Tölur í þúsundum tonna
DÝRAHALD Örflögumerkingar á kött-
um, sem krafist er í samþykkt um
kattahald í Reykjavíkurborg frá
árinu 2005, hefur gefið afar góða
raun og hafa fjölmargir kattaeig-
endur endurheimt ferfætlingana
eftir langa útlegð.
„Þess eru dæmi að kettir hafi
komist til eigenda sinna eftir að
hafa verið týndir í tvö ár,“ segir
Ómar Dabney, rekstrarfulltrúi
meindýravarna Reykjavíkurborg-
ar.
„Við heyrðum af einu slíku til-
felli fyrir nokkru en þá urðu mikl-
ir fagnaðarfundir þegar högni kom
í leitirnar eftir að hafa verð týnd-
ur í tvö ár. Þetta er ekki einsdæmi
og sýnir okkur það að þessar merk-
ingar eru að virka og í raun mættu
margir kattaeigendur taka sig
verulega á.“
Örmerki er kubbur sem dýra-
læknir kemur fyrir undir húð á
herðakambi kattar. Umhverfis-
svið heldur skrá yfir merkta ketti
og þangað verða eigendur að til-
kynna númer örmerkisins og nafn
eiganda. Ekki lýkur útlegð katt-
anna alltaf jafnvel og hjá þessum
tiltekna högna en Ómar segir það
mikilvægt fyrir kattaeigendur að
vita um afdrif katta sinna hver
sem þau eru. Nóg er að gera hjá
meindýraeyði nú í sumarbyrjun,
til dæmis var tilkynnt um mink á
vappi hjá Rafstöðvarhúsinu við Ell-
iðaár í gær og vonast Ómar til að sá
muni fyrr en síðar komast í búr.
- jse
Örflögumerkingar auka líkur á að fólk endurheimti týnda ketti:
Kettir snúa heim úr áralangri útlegð
ÓMAR DABNEY MEÐ KÖTTINN SINN Sé
þér annt um köttinn þinn skaltu láta í
hann örmerki segir Ómar.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
BUGL fær tugi milljóna
Kvenfélagið Hringurinn hefur gefið
barna- og unglingageðdeild Landspít-
alans, BUGL, gjöf sem nemur tugum
milljóna króna til framkvæmda við
húsnæði deildarinnar. Gjöfin var
afhent á göngudeild BUGL í gær.
GJÖF
Stal sex dekkjaumgöngum
Tæplega tvítugur Akureyringur hefur
verið ákærður fyrir ýmis afbrot.
Honum er gefið að sök að hafa stolið
samtals sex dekkjaumgöngum úr
gámi í eigu Brimborgar, torfæruhjóli
og geisladiski, haft í vörslu sinni rúm
20 grömm af amfetamíni og selt um
fimm grömm, og borið á sér hníf með
9,5 sentimetra löngu blaði.
DÓMSTÓLAR
DÓMSMÁL Norðlendingur um
fimmtugt, Hans Alfreð Kristjáns-
son, hefur játað á sig fíkniefna-
brot, en hann var gripinn með
lítilræði af amfetamíni á Café
Amor á Akureyri.
Hans Alfreð hlaut þriggja ára
fangelsisdóm árið 2007 fyrir að
stinga fyrrverandi unnustu sína
með hnífi í brennandi húsi. Þá var
hann líka ákærður fyrir að hafa
reynt að stinga mann sem hún var
með, láta undir höfuð leggjast að
bjarga þeim úr brennandi húsinu,
ógna lögreglu með hnífi og hella
bensíni yfir sömu konu með það að
augnamiði að kveikja í henni, en
var sýknaður af því öllu. - sh
Gripinn með amfetamín:
Ofbeldismaður
aftur fyrir dóm
ÞÝSKALAND Tvær samkynhneigð-
ar mörgæsir hafa komið unga á
legg og ala hann nú upp í
dýragarðinum í Bremerhaven í
Þýskalandi.
Mörgæsirnar eru báðar
karlkyns og pöruðu sig saman
fyrir nokkru, að sögn starfsfólks
dýragarðsins. Þegar líffræðilegir
foreldrar, annað mörgæsapar í
dýragarðinum, höfnuðu eggi sínu
kom starfsfólkið egginu fyrir hjá
karlmörgæsunum tveim sem
tóku það að sér og nú er unginn
orðinn fjögurra vikna gamall og
dafnar vel. - þeb
Samkynhneigt mörgæsapar:
Tóku að sér og
ala upp unga
CHILE, AP Ung kona var handtekin
í Chile fyrr í vikunni fyrir
fíkniefnasmygl. Konan ætlaði að
fara um borð í flugvél á leið frá
Chile til Spánar með tvær
ferðatöskur, sem voru gerðar úr
kókaíni.
Haft var eftir lögreglumanni á
Santiago-flugvelli að eiturlyfin
hafi ekki verið falin í töskunum
heldur hafi töskurnar sjálfar
verið gerðar úr blöndu af kókaíni
og fleiri efnum. Með réttum
aðferðum hefði svo verið hægt að
aðskilja kókaínið frá hinum
efnunum. - þeb
Ung kona í Chile:
Með töskur úr
kókaíni í flug
ÞÝSKALAND, AP Dómstóll í Þýska-
landi úrskurðaði á miðvikudag
að tveir gyðingar, sem unnu
nauðungarvinnu í fangabúðum
í Póllandi í seinni heimsstyrj-
öldinni, eigi rétt á að fá bætur.
Dómstóllinn taldi að þar sem
mennirnir fengu mat og annað
fyrir vinnu sína hafi þýska ríkið
borið ábyrgð á þeim. Því eigi
þeir rétt á bótum.
Dómurinn gæti haft mikla
þýðingu fyrir þúsundir fórnar-
lamba sem neydd voru til að
vinna í gettóum og afkomendur
þeirra. Talið er að bótagreiðslur
ríkisins gætu orðið allt að millj-
arði evra. - þeb
Dómstóll í Þýskalandi:
Nauðungarvinna
verði bætt
FÍKNIEFNAMÁL Lögreglan hefur
farið fram á að gæsluvarðhaldi
yfir manni, sem handtekinn var
þann 22. maí síðastliðinn
grunaður um aðild að fíkniefna-
smygli, verði framlengt til 12.
júní.
Þetta kom fram í kvöldfréttum
stöðvar 2 í gær. Maðurinn er á
þrítugsaldri og hefur nú verið í
gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni í
tvær vikur. Hann er grunaður
um að eiga aðild að innflutningi á
um fimm kílóum af hörðum fíkni-
efnum, samkvæmt heimildum
fréttastofunnar. - jse
Fíkniefnasmygl í rannsókn:
Framlengja
gæsluvarðhald
GENGIÐ 05.06.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
210,2287
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
122,24 122,82
196,59 197,55
173,24 174,2
23,257 23,393
19,28 19,394
15,827 15,919
1,2615 1,2689
173,24 174,2
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR