Fréttablaðið - 06.06.2009, Blaðsíða 18
18 6. júní 2009 LAUGARDAGUR
greinar@frettabladid.is
FRÁ DEGI TIL DAGS
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is
MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is VIÐSKIPTARITSTJÓRI: Óli Kr. Ármannsson olikr@markadurinn.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Emilía Örlygsdóttir emilia@frettabladid.is
og Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf.
RITSTJÓRAR: Jón Kaldal jk@frettabladid.is og Þorsteinn Pálsson thorsteinn@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI:
Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á
höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur
sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
Nú þegar fjármálakreppan virðist ekki jafn ógnvænleg
(í bili að minnsta kosti) og sér-
fræðingar þykjast vera farnir
að greina „græna sprota“ end-
urreisnarinnar, færist aukinn
kraftur í leitina að sökudólgum.
Fjármálakreppan færir okkur
að því er virðist ótakmörkuð
tækifæri til að afhjúpa svik,
misgjörðir og spillingu. En það
liggur ekki alveg ljóst fyrir
hverja og hvað á að afhjúpa.
Forystusauðirnir í bankageir-
anum voru upphaflega augljós-
asti sökudólgurinn. Þeir réðu
yfir stofnunum sem rökuðu inn
háum fjárhæðum á tilteknu
tímabili með bjagaðri verð-
lagningu á áhættu og reyndu að
sækja sér stuðning almennings
á þeim forsendum að þeir væru
of stórir til að falla. Þeir virt-
ust hrokafullir og oflaunaðir og
auðvelt að gera grýlu úr þeim.
En hvað um pólitíska svið-
ið? Hvers vegna var ekki meira
taumhald og betra eftirlit með
bönkunum? Stjórnmálamenn
voru ekki „keyptir“ í einföldum
skilningi þess orðs; þeir frek-
ar sannfærðu sjálfa sig um að
nýstárlegir fjármálagjörning-
ar væru vísir að almennri hag-
sæld, skaffaði fleirum þak yfir
höfuðið og auðvitað þeim sjálf-
um auknu fylgi í kosningum.
Hið reglulega bakslag
Næstum allstaðar eiga stjórn-
völd erfitt uppdráttar og stjórn-
málamenn undir högg að sækja.
Ríkisstjórnir hafa riðað til falls
í Tékklandi, Ungverjalandi, á
Íslandi og Írlandi. Uppþot og
verkföll hafa lamað Taíland,
Frakkland og Grikkland. Ríkis-
stjórnin í Kúveit setti þingið af.
Bretland nötrar útaf hneykslis-
málum, sem eiga sér ekki sinn
líka frá því á 19. öld.
Gagnásakanir í kjölfar efna-
hagshruns eiga sér langa sögu
og endurtaka sig með reglu-
legu millibili. Mikill uppgangur
í verðbréfaviðskiptum snemma
á 8. áratug 19. aldar endaði með
hruni árið 1873 og nornaveiðum
á þeim sem báru ábyrgð. Árið
1907 var J.P. Morgan í fyrstu
álitinn bjargvættur markað-
arins en í næstu andrá óvinur
almannahagsmuna. Á 4. áratug
20. aldar var skuldinni skellt
á bankamenn og fjármálaráð-
herra. En það sem eftir lifði af
20. öldinni virtist sem hið reglu-
lega bakslag í efnahagslífið
væri á bak og burt.
Síður ástæða til að forðast
mistök
Nú til dags eru ásakanir ekki
bundnar við stjórnmála- og
fjármálasviðið. Gagnrýnend-
ur reyna líka að koma auga á
hugmyndir og hagsmuni sem
stuðluðu að hinum efnahags-
legu óförum. Að þessu leyti er
kreppan sem nú gengur yfir ólík
forverum sínum; nú virðist sem
hin fjárhagslega nýjungagirni
hafi verið keyrð áfram af hug-
myndafræðilegum og tæknileg-
um nýjungum.
Þar sem um fjármálakreppu
er að ræða beina flestir í leit að
hugmyndafræðilegum rótum
hennar sjónum sínum að hag-
fræðingum, sem virðast, með
nokkrum undantekningum, sér-
lega rúnir trausti. Endalaust er
vitnað í orð sem Robert Lucas,
höfundur kenningarinnar um
hagsýnisvæntingar, á að hafa
látið falla árið 2003 í forsetaá-
varpi sínu á fundi Bandaríska
hagfræðifélagsins (American
Economy Association), á þá leið
að fundist hefði hagnýt lausn
á grundvallarvandanum við að
fyrirbyggja fjármálakreppur.
Það liggur líka ljóst fyrir
að akademískir hagfræðing-
ar höfðu áhrif á stefnumörk-
un. Larry Summers, núverandi
forstöðumaður efnahagsráðs
Obama Bandaríkjaforseta,
komst að þeirri niðurstöðu þegar
hann var ungur hagfræðing-
ur að „áföll á sviði fjármála og
peningastefnu hafa minni áhrif
á upptök kreppu en við gerð-
um ráð fyrir“. Ef hagkerfið var
pottþétt og til voru margir góðir
kostir til að takast á við kreppu
og samdrátt, var síður ástæða til
að forðast mistök. Það var alltaf
hægt að laga hlutina eftir á.
Áhrif póstmódernismans
Fulltrúar annarra fræðigreina
hafa glott drýldnislega yfir
opinberri niðurlægingu kollega
sinna í hagfræði. Fræðigreinar
sem styðjast ekki við stærðfræði
virðast hafa náð fram hefndum,
þar sem ógöngurnar sem trölla-
trú á flókin táknkerfi og torræð-
ar formúlur hefur leitt hagkerfið
í koma sífellt betur í ljós.
Það er hins vegar svo að
straumar og stefnur í öðrum
fræðigreinum, sem og út í sam-
félaginu, að minnsta kosti stuðl-
uðu að fáránlegri áhættusækni,
ásamt vilja til að búa til og með-
taka virðismat á fjármálagjörn-
ingum, sem voru svo flóknir að
ekki nokkur leið var að skilja þá.
Hið almenna samfélagsástand
er stundum kennt við póstmód-
ernisma, sem felur í sér að rök-
hyggju er skipt út fyrir innsæi,
tilfinningu og vísanir.
En sjálfur póstmódernisminn
er sprottinn upp úr tækni sem
hann á í margræðu sambandi
við. Ólíkt gangvirkinu í gömlu
gufuvélunum og fyrstu bílunum
sem var auðvelt að skilja, eru
nútímabílar og flugvélar orðin
svo flókin að þeir sem stýra
þeim hafa ekki hugmynd um
hvernig tæknin sem knýr tækin
áfram virkar. Internetið hefur
búið til veröld þar sem skýr rök-
hugsun hefur vikið fyrir hlið-
skipun áberandi mynda.
Póstmódernisminn stígur burt
frá rökrænni menningu þess
tíma sem kenndur var við „mód-
ernisma“. Margir koma auga á
sífellt fleiri hliðstæður við lífið
á miðöldum, þar sem fólk hrærð-
ist í atburðum og ferlum sem
það skildi ekki. Fyrir vikið fékk
það á tilfinninguna að það lifði
í veröld þar sem púkar og yfir-
náttúrlegar verur byggju líka.
Hruninn heimur
Hið nýlega tímabil alþjóða-
fjármála (kannski heyrir það
fortíðinni til?) var ólíkt fjár-
málabylgjunni fyrir einni öld.
Menningarlegar birtingarmynd-
ir þess virkuðu líka frumleg-
ar; gáskafullar, tilvísanahlaðn-
ar og á jaðrinum – í einu orði
sagt: póstmódernískar. Á þessu
tímabili var ekki litið á hefðir
og fortíðina sem fjötra, held-
ur sem uppsprettu írónískra
vísana. Á hápunkti tímabilsins
sönkuðu margir stórlaxar að sér
rándýrri abstrakt list. Póstmód-
ernísk vanræksla eða andúð í
garð raunveruleikans bjó til þá
tilfinningu að heimurinn væri
síbreytilegur og sveigjanlegur,
jafnvel álíka skammgóður og
merkingarsnauður og verðmæti
hlutabréfa.
Til varð bandalag fjármála-
sérfræðinga, sem töldu sig
vera að selja nýjar hugmynd-
ir, pólitískrar elítu sem studdi
lágmarksregluverk, og menn-
ingarástands sem aðhylltist til-
raunamennsku og hafnaði hefð-
bundnum gildum. Niðurstaðan
varð sú að öll gildi – þar á meðal
í fjármálaheiminum – voru álit-
in handahófskennd og í rauninni
fáránleg.
Það kemur ekki á óvart að
þegar skilningsleysi hættir að
leiða af sér hagsæld, en fer þess
í stað að valda efnahagshruni
og upplausn, breytist það í reiði.
Leitin að sökudólgnum minn-
ir sífellt meir á nornaveiðarnar
seint á miðöldum: þetta er leið
til að láta sundurlausa og fjand-
samlega veröld koma heim og
saman.
Harold James er prófessor í
sagnfræði og alþjóðamálum við
Princeton-háskóla. ©Project
Syndicate. (Millifyrirsagnir eru
Fréttablaðsins.)
Leitin að sökudólgnum
Til varð bandalag fjármála-
sérfræðinga, sem töldu sig
vera að selja nýjar hugmyndir,
pólitískrar elítu sem studdi
lágmarks regluverk, og menn-
ingarástands sem aðhylltist
tilraunamennsku og hafnaði
hefðbundnum gildum.
HAROLD JAMES
Í DAG |Heimur í upplausn
H
ik er á mönnum og margir hrylla sig yfir niður-
skurði sem væntanlegur er. Nú kann einhverjum
að þykja það vorkunnarefni að í fjárlagagerðinni
verði menn allt í einu aumir þegar þarf að draga
saman í ríkisútgjöldum, en þeim sem hafa stór-
an hlut úr starfsævi sinni staðið í einkarekstri og mátt haga
rekstri eftir tekjum og því hvernig áraði finnst ekki mikið til
þessa vandræðagangs koma. Sannleikurinn er sá að ríkið hefur
þanist hér út meira en nokkur skynsemi var í á tímum liðinna
ríkisstjórna þar sem Sjálfstæðisflokkurinn var við forystu.
Einar Oddur Kristjánsson heitinn varaði við því ár eftir ár á
Alþingi að skattgleði og útþenslustefna í ríkisfjármálum myndi
á endanum koma okkur í koll. Því er afar fróðlegt að heyra
forystumenn stóru stjórnarandstöðuflokkanna, Bjarna Bene-
diktsson og Sigmund Davíð Gunnlaugsson, tala digurbarkalega
um úrræðaleysi stjórnarinnar: hvar eru þeirra tillögur um nið-
urskurð í fjármálum ríkisins, rekstri og framkvæmdum? Hvar
er sá uppbyggilegi og málefnalegi niðurskurðarpakki sem þeir
hafa látið vinna í því örþrifaástandi sem nú er um rekstur ríkis-
ins? Varla ætla þeir að sitja þá brosandi út í annað yfir óförum
stjórnarliða í erfiðu verkefni.
Hinum er ekki vorkunn: nú verða menn að líta af skynsemi,
sanngirni og gagnrýni á það yfirgripsmikla sporslukerfi sem
hér hefur dafnað. Leggja niður stofnanir, sameina, draga úr
umsvifum með forgangsröðun og endurskipulagningu. Það
verður erfitt því hagsmunagæsla fyrir héruð og bæi er inn-
gróin meinsemd í pólitískri valdauppbyggingu í landinu. Þar
hugsar hver um sitt: hin augljósa endurskipulagning háskóla
mætir strax mjálmi bæjarstjórnar Akureyrar. Styttingu skóla-
árs mótmæla kennarar þótt hvert foreldri á skólaskyldualdri
viti af raun að lengingin bætti engu við námið, aðeins við laun
kennara.
Og eins verður að líta til stofnana ríkisins: þar hefur verið
byggt upp starfsmannahald sem lýtur ekki hagkvæmniskröfum,
valdastrúktúr sem byggir á launauppbótum með titlagjöfum.
Forstjórar ríkisins eiga að fá það verkefni að stramma rekstur
sinn af, styrkja afköst og skilvirkni sem er ekki nægjanleg
eins og hver maður þekkir sem hefur sent ríkisstofnun bréf.
Úr hægum setum verða yfirmenn að víkja sem standast ekki
þolraunina. Það er veruleikinn fyrir okkur hin, og sá tvískinn-
ungur sem tekist hefur að innræta þjóðinni um veika stöðu
opinberra starfsmanna í starfskjörum verður að heyra sögunni
til.
Þingmenn buðu sig fram til starfa við niðurskurð og hafa haft
til undirbúnings nokkrar vikur. Umþóttunartími þeirra hefur
verið nægur, rétt eins þeirra sem sitja í ráðuneytum og stofn-
unum. Nú viljum við fara að sjá markvissan árangur þeirrar
vinnu sem þetta fólk var ráðið til. Ekki bara hugmyndir og
tillögur um bættar tekjur sem falla á okkur sem gjöld, heldur
tillögur um niðurskurð í kostnaði á rekstri hins ofþanda ríkis
Framsóknar og Sjálfstæðisflokks.
Svo skal brýna að bíti.
Niðurskurðartími
PÁLL BALDVIN BALDVINSSON SKRIFAR
Eltir upp á Arnarhól
Vinnumálastofnun segir frá því að
tveir menn sem voru við vinnu á
Hverfisgötu hefðu lagt á flótta þegar
menn frá Vinnueftirlitinu komu þar
að. Fór mennirnir upp á Arnarhól.
Það kom svo upp úr dúrnum að þeir
voru á atvinnuleysisbótum en svo
lítur út sem þeir hafi verið að
drýgja þær nokkuð með auka-
vinnunni. Ekki fylgdi sögunni
hvort þeir hafi verið syngjandi
á Arnarhóli: „Við erum í góðum
málum, tralalalala.“
Skemmtistaður-
inn Alþingi
Mörður Árnason fjallar
á bloggi sínu um
æsinginn í þinghúsinu í gær, og segir
stjórnarandstöðuna hafa lokast inni í
stemningu sem stundum komi upp
í þinghúsinu - og minni á hávað-
ann á börum borgarinnar á kvöldin.
Skemmtistaðurinn Alþingi er líklega
ekki eitthvað sem kemur upp í huga
margra annarra við tilhugsunina
um þingið.
Icesave-karp við
Hollendinga
Það er hægt að taka margt inn
í myndina þegar Icesave-
málið verður gert
upp. Englending-
ar hafa leikið
okkur grátt
og nú er
sendinefnd þaðan og frá Hollandi
að karpa við okkar fólk um lendingu
í þessu máli. Mikilvægt er talið fyrir
okkur Íslendinga að taka inn í mynd-
ina áhrif af hryðjuverkalögunum sem
Bretar beittu okkur og ættum við að
fá afslátt af þeim sökum. Svo er að
bíða og sjá hvernig landsleikur okkar
gegn Hollendingum endar
í dag. Ef þeir fara illa með
okkur má kannski fá smá
afslátt út á það.
jse@frettabladid.is
thorunn@frettabladid.is