Fréttablaðið - 06.06.2009, Blaðsíða 32
32 6. júní 2009 LAUGARDAGUR
Klassískar baðfatabombur
Bikiníið, eins og við þekkjum það, var fyrst kynnt almenningi árið 1946 en það er uppfinning Frakkanna Louis Réard og Jacques
Hein. Það er nefnt eftir eyjunni Bikini Atoll, en þar voru stundaðar tilraunir með kjarnorkuvopn. Bikiníið átti að valda álíka usla
og spennu og kjarnorkutilraunirnar. Júlía Margrét Alexandersdóttir hitti fyrir bikiníbombur af gamla skólanum.
Atriði lífsins
Það hefur enginn þótt ná því að koma tánum þar sem
svissneska leikkonan Ursula Andress hefur hælana í
bikiníheimi Bond-myndanna. Halle Berry reyndi og
komst ansi nálægt því að margra mati en það getur
aðeins verið eitt Andress-bikiní. Í Dr. No, frá 1962,
birtist hún í hvítu bikiníi en Berry fékk eins útgáfu,
nema appelsínugula, í myndinni Die Another Day.
Ursula sjálf hefur sagt að hún eigi feril sinn bikiníinu
að þakka.
Sundbolurinn hjó á bikinívinsældirnar
Það er ekki hægt að sleppa því að minn-
ast á hinn ógurlega gyllta sundbol sem Bo
Derek klæddist árið 1979 í myndinni 10.
Fólki þótti það ekki hafa séð neitt jafn töff,
fléttað og gyllt lengi og bikiníið átti um
tíma í vök að verjast.
Ekki alveg tilbúin til að taka þetta alla leið
Leikkonan Ava Gardner sat fyrir árið
1943 í toppi en bikiníbuxurnar voru enn
þá hálfgert pils. Enn voru tíu ár í að
bikiníbuxurnar litu dagsins ljós.
Bikiníatriðið í kvik-
myndinni One Million
Years B.C. hefur oftar en
einu sinni verið valið kyn-
þokkafyllsta atriði kvik-
myndasögunnar en þar
kynnir Raquel Welch okkur
fyrir eins konar steinaldar-
útgáfu af bikiníi. Myndin
er frá árinu 1966 og bik-
iníið setti svip sinn á
baðfatatískuna næstu
árin. Raquel Welch
varð í kjölfarið
helsta kyntákn
7. áratugar-
ins.
Britta hjálpaði til
Brigitte Bardot kom þessu öllu af stað, og að sjálfsögðu
voru það Evrópubúar sem voru fljótari að taka við sér
en Ameríkaninn í þeim efnum en vestanhafs tók það
nokkur ár í viðbót að samþykkja þennan klæðaburð.
Árið 1953 baðaði Bardot sig í athyglinni á Cannes-kvik-
myndahátíðinni og hneykslaði heiminn með því að sýna
sig í doppóttu bikiníi. Hún var síðar mynduð í alls kyns
bikiníum en þetta er líklega það frægasta.
Ekki alveg nýtt af nálinni
Þótt heimurinn hafi ekki þekkt
bikiníið í nokkur þúsund ár er
hægt að fara aftur til ársins
1400 fyrir Krist og skoða gamlar
grískar myndir sem sýna konur
klæðast einhvers konar bikiníi.
Það voru íþróttaföt þess tíma.
Tvískipt sundföt fyrir konur fóru
að birtast í kringum 1943 en voru
þó ekki orðin að eiginlegu bikiníi. Í
kvikmyndinni Gold Digger frá 1933
var kynntur til sögunnar undanfari
bikinísins, þótt myndin hafi
ekki haft þau áhrif að inn-
leiða nýja tísku.