Fréttablaðið - 06.06.2009, Blaðsíða 34
34 6. júní 2009 LAUGARDAGUR
G
jaldþrotum hefur
fjölgað mikið eftir
bankahrunið og sífellt
fleiri fyrirtæki lenda
í erfiðleikum með að
greiða af lánum. Skuldir íslenskra
fyrirtækja lentu hjá nýju bönkun-
um þegar kerfið var stokkað upp,
og það er því starfsmanna hinna
nýju ríkisbanka að taka ákvarð-
anir um líf og dauða fjölmargra
íslenskra fyrirtækja.
Þótt viðskiptabankarnir þrír
séu allir í eigu ríkisins hafa þeir
ekki samræmdar starfsreglur
um hvernig bregðast á við þegar
fyrirtæki er komið í vandræði.
Samkvæmt upplýsingum frá bönk-
unum, og samtölum við starfs-
menn þeirra, hafa starfsmenn
bankanna þriggja sömu grund-
vallarsjónarmiðin í huga.
Bankarnir hefja oft afskipti af
fyrirtækjum í vanda eftir að for-
svarsmenn fyrirtækjanna leita
eftir samningum við bankann
vegna lána sem þau geta ekki
lengur greitt af.
Samkvæmt upplýsingum frá
Landsbankanum er nú að hefjast
viðamikil greiningarvinna á lána-
bók bankans, og stöðu fyrirtækja
sem eru í viðskiptum við bankann.
Ætlunin er að ná til fyrirtækja
áður en þau lenda í erfiðleikum.
Vandinn er mikill, og bankarnir
verða að einbeita sér að því að
aðstoða þau fyrirtæki sem þurfa
bráðaúrræði við endurskipulagn-
ingu skulda.
Stefna allra bankanna er að
semja við fyrirtæki um skulda-
mál frekar en að krefjast þess
að þau verði tekin til gjaldþrota-
skipta. Það er í sjálfu sér ekki gert
af góðmennsku. Starfsmenn bank-
anna vita að bankarnir fengju mun
minna til baka af sínum útlánum
ef þeir krefðust gjaldþrotaskipta
yfir öllum fyrirtækjum frekar
en að hinkra og vonast til þess að
fyrir tækin geti greitt verulegan
hluta sinna skulda síðar.
Allir bankarnir líta svo á að
þeirra hlutverk sé fyrst og fremst
það að bjarga verðmætum. Til að
fyrirtækjum sé bjargað þurfa því
að vera góðar líkur á að þau spjari
sig og geti greitt af lánum síðar
meir, þó staðan sé erfið um þess-
ar mundir. Fyrirtækin verða með
öðrum orðum að vera lífvænleg.
Bankarnir hafa ýmsar leiðir til
að bregðast við vanda fyrirtækja.
Frysting á afborgunum lána,
vaxtagreiðslum eða hvorutveggja
eru þær leiðir sem reyndar eru
skoðaðar fyrst. Ef þau úrræði
duga ekki skoða bankarnir hvort
hægt sé að breyta skuldum fyrir-
tækjanna við bankann í hlutafé.
Starfsmenn allra bankanna segja
að skuldir séu ekki afskrifaðar né
þeim breytt í hlutafé nema útilok-
að sé að önnur úrræði dugi.
Ætla sér langan tíma til að selja
Allir bankarnir hafa stofnað eigna-
umsýslufélög, sem ætlað er að sjá
um eignarhald þeirra í fyrirtækj-
um sem bankarnir þurfa að taka
yfir. Aðeins eitt fyrirtæki hefur
farið inn í slík eignaumsýslufélög
frá bankahruninu, en það er flug-
félagið Icelandair.
Önnur félög sem bankarnir
stýra eru enn í endurskipulagn-
ingu. Óvíst er hvort þau verða
seld strax að því loknu, eins og
gert var í tilviki Árvakurs, útgáfu-
félags Morgunblaðsins, eða hvort
þau verða færð inn í eignaum-
sýslufélögin þar til betur árar til
að selja.
Bankarnir gætu þurft að halda í
hluti sína í fyrirtækjum í einhvern
tíma ef þeir ætla ekki að setja þau
á brunaútsölu í miðju hruni. Tals-
verðan tíma getur tekið að endur-
skipuleggja fjárhagsstöðu fyrir-
tækjanna.
Samkvæmt upplýsingum frá
Landsbankanum má búast við
að fyrirtæki verði í eigu bank-
ans í allt að fjögur ár áður en þau
verða seld. Íslandsbanki ætlar
ekki að gefa sér svo langan tíma.
Þar gera áætlanir ráð fyrir því að
fyrirtækin verði seld innan átján
mánaða, og helst innan árs.
Ekki fékkst uppgefið frá Kaup-
þingi nákvæmlega hversu langan
tíma bankinn ætlar að gefa sér
til að selja fyrirtæki sem komast
í eigu bankans. Fulltrúi bankans
segir að stefnt sé að því að selja
fyrirtæki eins fljótt og kostur sé,
en ef aðstæður á markaði verði
óhagstæðar áfram geti þurft að
halda fyrirtækjum innan bankans.
Þá verði eignarhald þeirra fært í
eignaumsýslufélag bankans.
Gagnrýnisraddir hafa heyrst frá
fyrirtækjum sem eru í samkeppni
við fyrirtæki sem bankarnir hafa
tekið yfir eða veitt aðstoð í erfið-
leikum. Starfsmenn bankanna
segjast mjög meðvitaðir um þá
hættu sem tengist því að vera
með samkeppnisaðila fyrirtækis
í vanda í viðskiptum.
Bent er á að þó að bankarnir
komi að stjórnun fyrirtækja sé
það gert í gegnum stjórn þeirra,
og yfirleitt séu starfsmenn bank-
anna ekki að taka ákvarðanir
um daglegan rekstur. Bankarnir
leggja áherslu á að umsýsla með
fyrirtæki í vanda sé aðskilin frá
þeim hluta bankans sem sér um
viðskipti við fyrirtæki sem betur
standa.
Bankarnir hafa einnig skipað
umboðsmann viðskiptavina, sem
á að tryggja jafnræði milli við-
skiptavina. Þá eiga eignaumsýslu-
félögin einnig að skapa ákveðna
fjarlægð milli bankans og fyrir-
tækja sem þar lenda í lengri eða
skemmri tíma.
Bankar fara Lundúnaleiðina
Flóknustu mál tengd erfiðleikum
fyrirtækja eru yfirleitt þau þar
sem fyrirtækin skulda fleiri en
einum banka eða fjármálafyrir-
tæki. Þar hafa bankarnir komið
sér saman um að farin verði svo-
kölluð Lundúnaleið.
Leiðin gengur út á að kröfuhafar
komi sér saman um að einn banki
sjái um samskipti við fyrirtækið,
og að kröfuhafar gangi ekki að
fyrirtækinu ef það myndi hindra
björgun verðmæta.
Loks fallast kröfuhafarnir á að
skuldbinda sig til að samþykkja
úrlausnir einstakra mála svo
framarlega sem þrír af hverjum
fjórum kröfuhöfum samþykkja til-
tekna lausn.
Starfa á mörkum
lífs og dauða
Íslensk fyrirtæki standa mörg frammi fyrir erfiðleikum, og spár gera ráð
fyrir gríðarlegum fjölda gjaldþrota. Viðskiptabankarnir þurfa að taka erfiðar
ákvarðanir um líf og dauða fyrirtækja. Brjánn Jónasson kannaði hverjir þurfa
að taka erfiðu ákvarðanirnar, hvaða starfsreglur þeim eru settar og hvaða
sjónarmið þeir þurfa að hafa í huga þegar þeir reyna að bjarga verðmætum.
FYRIRTÆKI Í VANDA Gjaldþrotum fyrirtækja hefur fjölgað gríðarlega frá því bankarnir hrundu, og fyrir hvert fyrirtæki sem fer í þrot er fjöldi fyrirtækja í erfiðleikum sem bankarnir þurfa að reyna að bjarga frá gjaldþroti.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Bankarnir geta beitt ýmsum aðferðum til að aðstoða fyrirtæki í vanda.
Lykilatriðið er þó að svara þeirri spurningu hvort fyrirtækið sé þess virði að
bjarga því.
Þegar þeirri spurningu er svarað þarf að taka tillit til ýmissa þátta, til
dæmis stærðar, fjölda starfsmanna og mikilvægi fyrirtækisins á samkeppnis-
markaði. Mikilvægast fyrir bankana er þó að kanna sjóðstreymi fyrirtækisins
og almennan rekstrargrundvöll.
Markmið bankanna er að hámarka endurgreiðslur fyrirtækja á lánum. Til
þess verður að koma í veg fyrir að lífvænleg fyrirtæki verði gjaldþrota vegna
tímabundinna erfiðleika.
Ef sjóðstreymi fyrirtækis er jákvætt er metið hvað þarf að gerast til að það
geti staðið undir lánum. Bankarnir geta til dæmis fryst afborganir þannig að
fyrirtækin greiði aðeins vexti, lengt í lánunum eða breytt skuldum við bank-
ann í hlutabréf í fyrirtækinu. Dugi ekkert af þessu til að koma fyrirtækinu á
réttan kjöl aftur er fátt að gera annað en að fara fram á gjaldþrotaskipti.
Ef sjóðstreymið er neikvætt þurfa starfsmenn bankanna að meta hvort
fyrirtækið eigi sér traustan rekstrargrundvöll eða ekki. Ef ekki er eðlilegt að
óska eftir gjaldþrotaskiptum. Ef rekstrargrundvöllur er talinn til staðar getur
bankinn farið fram á að breytingar verði gerðar í fyrirtækinu. Til dæmis að
reksturinn verði endurskipulagður, eignir seldar til að grynnka á skuldum,
nýtt hlutafé lagt til rekstursins eða fyrirtækið selt öðrum. Gangi ekkert af
þessu er líklegt að fyrirtækið verði sett í þrot.
META LÍFVÆNLEIKA FYRIRTÆKJANNA
➜ MAT Á SJÓÐSTREYMI FYRIRTÆKIS Í VANDA*
Mat lagt á skuldastöðu
og greiðslubyrði
Mat lagt á rekstrargrundvöll.
Haft samband við aðra banka ef við á.
Fyrirtæki getur borið
núverandi skuldir en
stendur ekki undir núver-
andi greiðslubyrði.
Fyrirtæki getur ekki borið
núverandi skuldir.
Haft samráð við aðra
banka ef við á.
Rekstrargrundvöllur er
mögulegur.
Rekstrargrundvöllur er ekki
til staðar.
JÁKVÆTT SJÓÐSTREYMI NEIKVÆTT SJÓÐSTREYMI
ÚRRÆÐI ÚRRÆÐI ÚRRÆÐI ÚRRÆÐI
Skoða
vaxtagreiðsluúrræði.
Lánalenging eða
tímabundin frysting.
Skuldbreyting.
Skilmálabreyting.
Skoða
vaxtagreiðsluúrræði.
Lánalenging eða
tímabundin frysting.
Skuldbreyting.
Skilmálabreyting.
Kröfuhafar breyti kröfum
í hlutafé, víkjandi lán eða
umbreytanleg skuldabréf.
Krafa um gjaldþrot.
Endurskipulagning
rekstrar.
Nýtt hlutafé frá þriðja
aðila.
Breyta kröfum í hlutafé.
Sala fyrirtækis.
Krafa um gjaldþrot.
Krafa um gjaldþrot.
*Byggt á úrlausnarkerfi Kaupþings banka.