Fréttablaðið - 06.06.2009, Síða 40
6. JÚNÍ 2009 LAUGARDAGUR2 ● fréttablaðið ● sjómannadagurinn
Aðeins tveir bátar róa með færi
frá Reykjavíkurhöfn um þessar
mundir. Dúan er annar þeirra
og þar er Páll Kristjánsson við
stjórnvölinn.
Höfnin er eins og gljáfægður speg-
ill er Dúan skríður drekkhlaðin inn
að bryggju. Páll og bátsfélagi hans
Brynjar Mikaelsson taka strax til
við löndun og það er asi á þeim.
„Við þurfum að koma aflanum
á markaðinn fyrir klukkan sjö,“
segir Páll til skýringar og bend-
ir á að klukkuna vanti tíu mínútur
í. Hvert karið af öðru er híft upp,
fullt af fallegum fiski, aðallega
þorski en einnig stórufsa. „Eitt-
hvað í kringum tonn,“ segir Páll
ánægjulegur inntur eftir magninu.
Þetta heitir að draga björg í bú.
Þegar búið er að landa hæg-
ist aðeins á og þá er lag að spyrja
fleiri spurninga. Skyldi ekki vera
gaman að vera á sjó í svona veðri?
„Jú, hafið er eins og heiðartjörn,“
segir Páll. Kveðst hafa farið frá
bryggjunni klukkan átta um morg-
uninn og verið tæpa tvo tíma á
miðin. „Við förum svona 32 til 35
mílur út í miðjan flóa. Vorum vest-
an við vestara hraunið. Það er góð
færaslóð,“ útskýrir hann.
Páll er Siglfirðingur og byrj-
aði ungur að stunda sjóinn. „Ég
eignaðist fyrstu trilluna þegar ég
var þrettán ára. Það var nú bara
til að leika sér á,“ segir hann og
broshrukkurnar kringum augun
dýpka. Kveðst lengst af hafa átt
eigin báta en einnig hafa unnið
hjá öðrum í nokkur ár og þá róið
frá Sandgerði á snurvoð, netum og
humartrolli.
Dúan er sex tonna bátur af gerð-
inni Sómi 800. Hana fékk Páll 1991
og kveðst oftast hafa róið einn,
lengst af á línu. „Fyrir þremur
árum seldi ég frá mér ýsukvót-
ann en á þorskinn og ufsann eftir.
Það dugar mér ágætlega yfir sum-
arið.“
Páll viðurkennir að vera
hjátrúar fullur eins og allir aðrir
sjómenn en vill ekki ljóstra upp í
hverju það felist.
„Ég held það sé betra að segja
ekki frá því,“ segir hann. Eflaust
er það hluti af hjátrúnni.
Nú er eftir að þrífa Dúuna og
ganga frá ýmsu áður en farið er
heim. Þeir félagar ætla á sjóinn
aftur að morgni. Svo kemur sjó-
mannadagurinn og hann er heil-
agur. - gun
Páll gæti passað inn í flesta sjómannatexta sem ein af hetjum hafsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Hafið eins og heiðartjörn
Í Fjarðabyggð eru nokkrir dagar
lagðir undir sjómannadags-
hátíðarhöld og teygðu þau sig
aftur á fimmtudag bæði á Norð-
firði og Eskifirði þar sem íburðar-
mikil dagskrá verður alla helgina.
Þá verða viðburðir á Fáskrúðs-
firði á laugardag og á Reyðarfirði
á sunnudag.
Dagskráin er þéttskipuð og
er af mörgu að taka. Á Eski-
firði verður stálskipa-
smíði í Hamri í dag þar
sem tekið verður á móti
börnum og þeim hjálpað
að smíða báta sem síðan
verður fleytt. Þá verður kappróð-
ur á Mjóeyri ásamt belgja slag
og reiptogi á milli Eskfirðinga
og Reyðfirðinga. Í kvöld verður
svo stórdansleikur með Landi og
sonum. Á sjómannadaginn sjálfan
verður hoppukastala land sett upp
í miðbæ Eskifjarðar auk þess sem
Hrafna Idol-stjarna tekur lagið.
Á Norðfirði verður sjóstanga-
veiðimót, dorgveiðikeppni, kapp-
róður, grillveisla og ýmislegt
fleira í dag en hátíðardag-
skrá verður við sund-
laugina á morgun.
Dagskránni lýkur
svo með harmon-
ikkustund með
sveiflu í Sjó-
minja- og smiðju-
safni Jósafats Hin-
rikssonar.
Nánari dagskrá
og tímasetningar
má nálgast á www.
fjardabyggd.is. - ve
Hátíðarhöldin teygja
sig yfir marga daga
Hreimur og félagar í Landi og sonum
slá upp stórdansleik á Eskifirði í
kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Idol-stjarnan
Hrafna tekur
lagið í miðbæ
Eskifjarðar á
morgun.
Bryggjudagur verður haldinn í
fyrsta sinn í Vogum á Vatnsleysu-
strönd í dag í tengslum við sjó-
mannadaginn. „Félagasamtök í
sveitarfélaginu halda bryggjudag-
inn saman að frumkvæði smábáta-
félagsins í Vogum,“ útskýrir Ólafur
Þór Ólafsson, frístunda- og menn-
ingarfulltrúi Voga.
Dagskrá bryggjudagsins fer öll
fram við bryggjuna í Vogum og
stendur frá hálf tíu til þrjú. Á dag-
skrá verður dorgveiði, kappróður,
grillaðar pylsur, stakka sund, kaffi
og vöfflur og margt fleira. Endað
verður á siglingu frá Vogum og
undir Stapann.
„Fólki fannst vanta að eitthvað
væri gert í tengslum við sjómanna-
daginn í sveitarfélaginu. Útgerð er
aldagömul á þessum slóðum þannig
að ákveðið var að drífa í því að setja
saman dagskrá. Við vonumst fyrst og
fremst til þess að íbúar í sveitarfé-
laginu sjái sér fært að mæta og gera
sér glaðan dag,“ segir Ólafur Þór og
bætir við að auðvitað sé alltaf tekið
á móti gestum í Vogunum. - mmf
Fyrsta sinn í Vogunum
Á dagskrá bryggjudagsins verður meðal annars dorgveiði, kappróður og stakkasund.
Suðurhrauni 4 • 210 Garðabæ • Furuvellir 3 • 600 Akureyri • Sími: 575 8000 • Fax: 575 8001 • www.samhentir.is
FRÉTTA
BLA
Ð
IÐ
/G
U
N
Páll og Brynjar koma á
Dúunni að bryggju með tonn
af fallegum fiski eftir túrinn.
M
YN
D
/SVERRIR A
G
N
A
RSSO
N