Fréttablaðið - 06.06.2009, Page 41
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
FUGLASKOÐUN Skógræktarfélags Hafnarfjarðar
og Fuglaverndar verður haldin í Höfðaskógi og við
Hvaleyrarvatn laugardaginn 6. júní klukkan 10. Fugla-
skoðunin hefst í gróðrarstöðinni Þöll og gengið verður í
hring um skógræktarsvæðið að Hvaleyrarvatni.
Gestur hefur búið í Unuhúsi í
röska þrjá áratugi. Hann full-
yrðir að góðir andar séu í hús-
inu en skvaldur í þeim haldi þó
aldrei fyrir honum vöku. „Maður
heyrir bara grát í þjóðarsálinni
þegar verið er að hleypa fólki út
af börum miðborgarinnar,“ segir
hann og kveðst í góðum tengsl-
um við hjartaslög þjóðlífsins. Það
fylgi íbúum Unuhúss. „Þetta er
yndislegt hús finnst okkur sem
búum í því,“ segir hann en auk
hans eru það eiginkonan Guðbjörg
Garðarsdóttir og dóttirin Guðrún
Sóley að ógleymdri tíkinni Matt-
hildi.
Unuhús var athvarf skálda
og annarra menningarforkólfa
Íslands á síðustu öld. Silja Aðal-
steinsdóttir mun fjalla um það og
gestgjafann sjálfan Erlend Guð-
mundsson á dagskránni á Kjar-
valsstöðum sem hefst klukkan 15
og Jón Karl Helgason ræðir um
samband Erlendar og Ragnars í
Smára. Hrafnhildur Schram mun
svo leiða fólk um sýninguna Frá
Unuhúsi til Áttunda strætis og
beina sjónum sérstaklega að þeim
hluta hennar sem sýnir málverk
Louisu Matthíasdóttur og Nínu
Tryggvadóttur sem voru gestir
hússins.
Gestur hefur séð um miklar
endurbætur á Unuhúsi og þá sögu
mun hann segja á Kjarvalsstöðum.
„Húsið var að grotna niður þegar
ég og þáverandi kona mín Erna
Ragnarsdóttir keyptum það af
föður hennar, Ragnari í Smára. Þó
ég sé arkitekt hafði ég ekki hug-
mynd um hvað ég var að fara út
í. Þetta varð miklu meira verk en
við héldum í upphafi,“ segir hann.
Þetta var fyrir daga Torfusam-
takanna og skilningur í þjóðfélag-
inu takmarkaður á því að sniðugt
væri að gera upp gömul hús. „Við
tókum bara af mjólkur peningun-
um,“ segir Gestur þegar spurt er
út í styrki.
Unuhús er nú kjallari, tvær
hæðir og ris. „Við byggðum smá-
vegis aftan við húsið og fórum
með allar græjur sem tilheyra
nútímalifnaðarháttum þangað
eða niður í kjallara. Því er gamla
húsið mestan part eins og það var
í upphafi.“ gun@frettabladid.is
Í góðum tengslum við
hjartaslög þjóðlífsins
Hið sögufræga Unuhús lifnar við kl. 15 á morgun með dagskrá á Kjarvalsstöðum í tengslum við sýning-
una Frá Unuhúsi til Áttunda strætis. Gestur Ólafsson, arkitekt og eigandi hússins, er meðal fyrirlesara.
Gestur Ólafsson arkitekt segir góða anda ríkja í Unuhúsi. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Heimboð á vinnustofuna
Haukur Dór myndlistarmaður hefur flutt í nýja
vinnustofu að Skúlagötu 26. Þeir sem hafa hug á að
heimsækja listamanninn, sjá það nýjasta af trönunum
og afrakstur síðustu mánaða eru hjartanlega
velkomnir.
Vinsamlegast hringið í síma 690 5161.