Fréttablaðið - 06.06.2009, Qupperneq 42
HLÁTURJÓGATÍMI, sá síðasti fyrir sumarið, verður haldinn í Borgartúni
24, Manni lifandi, laugardaginn 6. júní klukkan 10.30. Kjörið tækifæri til að
hlæja hressilega í góðum hópi og byggja sig upp fyrir sumarið.
Volvo XC60 er þriðji meðlimur XC-fjölskyldunnar, en þar voru fyrir sportjepp-
arnir XC70 og XC90. Brimborg frumsýnir bílinn í dag, laugardaginn 6. júní.
XC60 hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga, þar á meðal titilinn
eftirsótta Bíll ársins 2009 í flokki sportjeppa hjá tímaritinu WhatCar?.
Lögð er áhersla á öryggið í XC60 en hann þykir einnig standa vel hvað
varðar gæði, akstursþægindi, umhverfisvernd og framsækna tækni. Þá
tvinnar XC60 saman kraftmikla jeppaeiginleika og sportlega aksturstakta og
þykir bíllinn því höfða til þeirra sem vilja sameina í einum og sama bílnum
öryggi, skemmtun og notagildi.
Frumsýningarbílarnir eru tveir eða
XC60 T6 AWD með 285 hest-
afla Twin Turbo vél og XC60
D5 Turbo dísil með
breytilegu loft-
flæði og einung-
is 7,5 l/100 km í
eldsneytisnotk-
un. Frumsýningin
stendur frá klukk-
an 12 til 16.
Nýr Volvo frumsýndur um helgina
BRIMBORG FRUMSÝNIR VOLVO XC60 Í DAG.
„Allir þeir sem ætla að ferð-
ast innanlands í sumar ættu að
kíkja við hjá okkur í Sólheimum,
það verður vel þess virði,“ segir
Guðmundur Ármann Pétursson,
framkvæmdastjóri Sólheima. Í
dag verður menningarveisla Sól-
heima formlega sett með hátíðar-
dagskrá. Hún mun svo standa yfir
allt til 8. ágúst. „Hér í Sólheimum
er mjög öflugt tónlistarstarf. Það
er því vel við hæfi að Sólheima-
kórinn ætlar að byrja skemmtun-
ina með tónlistaratriði í kirkjunni
okkar. Með honum kemur fram
Samkór Kópavogs. Klukkan eitt
ætlar hún Edda Björgvinsdótt-
ir leikkona svo að setja hátíðina
formlega og munum við ganga hér
á milli og opna allar þær sýningar
sem verða hér í gangi í sumar, sem
eru ansi margar.“
Þeir sem ekki komast á opnunar-
hátíðina í dag þurfa ekki að
örvænta því hátíðin stendur yfir
allt fram í ágúst. Sýningarnar, sem
hafa verið settar upp í Ingustofu,
Íþróttaleikhúsinu og Sesseljuhúsi,
verða opnar alla virka daga á milli
klukkan 9 og 18 og um helgar frá
hádegi fram til klukkan 18.
Jafnframt verða sýningar
undir berum himni. Tilvalið er
að fá sér göngutúr um svæðið og
skoða Ljóðagarðinn, Trjásafnið og
Höggmyndagarðinn, svo eitthvað
sé nefnt.
Í allt sumar verða svo mismun-
andi viðburðir á dagskránni, sem
vert er að fylgjast með á heima-
síðu Sólheima, www.solheimar.
is. Til dæmis verða fræðsluferð-
ir í boði. Hinn 27. júní mun Jón E.
Gunnlaugsson, áhugamaður um
nýtingu jurta til heilsueflingar,
ganga um með gestum og kenna
þeim að þekkja íslenskar lækn-
ingajurtir. Hinn 8. ágúst verður
svo lífrænn markaðsdagur þar
sem fer fram kynning og sala á
lífrænum afurðum. Gómsætir líf-
rænir réttir verða bornir fram á
Kaffihúsinu Grænu könnunni í
tilefni þess.
Tónelskir ættu að velja sér laug-
ardaga til að kíkja í Sólheimana
en á hverjum laugardegi meðan
á menningarveislunni stend-
ur verða tónleikar í Sólheima-
kirkju klukkan tvö. Meðal þeirra
sem fram koma á tónleikunum
eru, auk Sólheimakórsins sjálfs,
Borgardætur, Hljómsveitin Buff,
Raddbandið VoxFox og að endingu
Raggi Bjarna og Þorgeir Ástvalds.
Þeir munu flytja perlur frá liðn-
um árum hinn 8. ágúst, á lokadegi
menningarveislunnar.
holmfridur@frettabladid.is
Tveggja mánaða veisla
Menningarveisla Sólheima er engin smáskemmtun en hún hefst í dag og stendur allt til 8. ágúst. Á dag-
skránni verða til dæmis vikulegir tónleikar fjölbreytilegs hóps tónlistarmanna og fjöldi listsýninga.
M
YN
D
/G
U
Ð
M
U
N
D
U
R
Á
R
M
A
N
N
P
ÉT
U
R
SS
O
N
Listakonan Helga Alfreðsdótt-
ir sýnir verk sín á menningar-
hátíð Sólheima, bæði í Ingu-
stofu og Íþróttaleikhúsinu.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki