Fréttablaðið - 06.06.2009, Side 58
6. JÚNÍ 2009 LAUGARDAGUR4 ● fréttablaðið ● sjómannadagurinn
Sveitadvöl
fyrir fjölskyldur, vina- og gönguhópa í Hestheimum,
aðeins 50 mínútur frá Reykjavík.
Nánar upplýsingar fúslega veittar í síma: 487-6666 og
hestheimar@hestheimar.iswww.hestheimar.is
Notaleg gisting í 2-3 manna herbergjum með sérbaði,
heitur pottur og hægt að panta nudd. Fallegt um-
hverfi og heimilislegt andrúmsloft. Einstakt tækifæri
til að fá innsýn í daglegt líf í sveitinni, njóta sam-
vistanna við náttúruna og öll dýrin. Tilboðsverð á
gistingu með fullu fæði. Daglega er boðið uppá
hestaleiguferðir. Frábærar göngu- og reiðleiðir eru
í nágrenni Hestheima.
Getum sótt hópa til Reykjavíkur gegn vægu gjaldi.
Sögustund í forsetasvítu varð-
skipsins Óðins er einn fjölmargra
viðburða á Hátíð hafsins sem
haldin er nú um helgina í Reykja-
vík. Það er sagnakonan Sigur-
björg Karlsdóttir sem þar býður
gesti velkomna bæði klukkan 15
og 15.30 á laugardag en hún er
víðfræg langt út fyrir landstein-
ana fyrir frásagnargáfu sína.
Sigurbjörg verður frekar
leyndardómsfull þegar hún er
innt eftir söguefninu um borð í
Óðni og bendir á að lítið gaman
sé fyrir fólk að lesa það í blöðun-
um áður en það mæti á svæðið.
„En það verður þjóðsaga sem
tengist sjó,“ lofar hún.
Óðinn liggur við Grandagarð
sem er vettvangur stórs hluta
dagskrárinnar á Hátíð hafs-
ins. Þar verður hægt að klappa
krabba, útbúa flöskuskeyti,
hnýta hnúta og hlýða á fjörug
lög sungin af Erni Arnarsyni
og Ernu Blöndal. Einnig má þar
kitla bragðlaukana með ýmsum
sjávarréttum veitingahúsanna á
svæðinu og fá létta óperusmökk-
un hjá nemendum Söngskóla Sig-
urðar Demetz. - gun
Sögur tengdar sjónum
Varðskipið liggur við Grandagarð og
þar ætlar Sigurbjörg Karlsdóttir að
segja gestum sögur. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
● ÚTIFJÖR Í BORGARFIRÐI Börgunarsveitirnar í héraði, Brák,
Heiðar og Ok, hafa tekið höndum saman og ætla að bjóða íbúum upp á
fjölbreytta dagskrá sjómannadagshelgina 5. til 7. júní.
Dagskráin hefst á föstudaginn klukkan 20 þegar boðið verður upp á
sætaferðir í snjóbíl eða björgunarsveitarbíl upp á Langjökul.
Laugardaginn 6. júní verða þrjár gönguferðir með leiðsögn undir for-
ystu björgunarsveitarmanna. Á laugardagskvöldið verður dansleikur með
hljómsveitinni Sniglabandinu í Reiðhöllinni í Borgarnesi.
Sunnudaginn 7. júní klukkan 13, verður dagskrá við og á
Skorradalsvatni. Þar verða ýmis farartæki á ferð, svo sem
þyrla, traktor, bátar, snjóbílar og björgunarsveitar-
bílar, en þar verður farið í ýmsa
leiki. Þá verða grillaðar pylsur í
boði handa allri fjölskyldunni.
Nánar á www.skessuhorn.is - sg
Allir sem staddir verða á Húsa-
vík á sjómannadaginn geta farið
í klukkutíma siglingu um Skjálf-
anda. Bátar bæjarins, stórir sem
smáir, ætla út klukkan ellefu og
bjóða með sér hverjum þeim sem
vilja. Sérstök áhersla er lögð á að
skemmta börnum. Á bryggjunni
verður dorgveiðikeppni og leik-
hópurinn Lotta verður með atriði.
Þá er hægt að skoða fiska í körum
á hafnarstéttinni. Að öðru leyti er
dagskráin með hefðbundnu sniði.
Koddaslagur, reiptog og kappróður
verður á sínum stað, að ógleymd-
um grilluðum pylsum og gosi. Þá
verður frítt inn á öll söfn. - hhs
Fríar siglingar
Línubeitningarbáturinn Karólína er einn
þeirra mörgu sem bjóða upp á siglingu
um Skjálfandaflóa á sjómannadaginn.
Sigurlag Sjómannalagakeppni
Rásar 2 og Hátíðar hafsins
hefur verið valið. Sniglabandið
og Skapti Ólafsson sigruðu
með lagið Sófasjómaðurinn.
„Þetta hefur gengið bara ljómandi
vel eins og alltaf,“ segir Ólafur
Páll Gunnarsson, betur þekktur
sem Óli Palli útvarpsmaður á Rás
2. „Við fengum inn eitthvað um
fimmtíu lög og svo voru tíu valin
af sérstakri dómnefnd. Eftir það
fékk fólk að hlusta og kjósa,“ sagði
Óli Palli, en kosningu sjómanna-
lagapeninnar lauk í gær með sigri
Sniglabandsins og Skapta Ólafs-
sonar. Lagið kallast Sófasjómað-
urinn.
Að hans sögn var keppnin með
sama sniði og áður þótt örlít-
ið fleiri hafi tekið þátt en síðast.
„Ljótu hálfvitarnir voru afger-
andi sigurvegarar í hitteðfyrra
með lagið Sonur Hafsins. Raggi
Bjarna vann svo líka svolítið af-
gerandi sigur í fyrra þegar hann
söng lagið Faðmurinn eftir Þröst
Sigtryggsson og Kristján Hreins-
son.“
Óli Palli er bjartsýnn fyrir
keppnina á næsta ári og vonast
eftir að fá 100 lög til þáttöku, ef
ekki 300. „Enda bara gaman, gert
til að taka ofan af fyrir íslenskum
sjómönnum,“ útskýrir hann.
Sjómannalagakeppnin er ekki
eina lagakeppnin sem Rás 2 stend-
ur fyrir, meðal annarra má nefna
Jólalagakeppni og Baráttu- og
bjartsýnis lagakeppni hins nýja
lýðveldis í vor. „Með þessu viljum
við fá sem flesta til að vera með,
en einnig að starfandi hljómsveit-
ir og listamenn semji lög sérstak-
lega fyrir þessar keppnir,“ segir Óli
Palli og bætir við að með keppnum
sem þessum verði til ný íslensk tón-
list sem eigi vonandi eftir að lifa í
áratugi. Hann bendir í því sam-
hengi á velgengni Ljótu hálfvitanna
eftir sigurinn 2007.
En hvað fær sigurvegarinn í
verðlaun? „100 bestu plötur Íslands-
sögunnar, út að borða á Panorama
og hvalaskoðunartúr,“ segir Óli
Palli. „Sófasjómaðurinn verður svo
flutt á Hátíð hafsins.“ - hds
Sófasjómaðurinn sigursæll
Óli Palli á Rás 2 er ánægður með innsend lög í sjómannalagakeppnina í ár.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA