Fréttablaðið - 06.06.2009, Page 63
LAUGARDAGUR 6. júní 2009 35
RÍKISVÍXLASJÓÐUR
Þér býðst ekki meira
öryggi en ríkisábyrgð
Kynntu þér Ríkisvíxlasjóð á www.kaupthing.is,
hafðu samband við Ráðgjöf Kaupþings í síma
444 7000 eða komdu við í næsta útibúi.
Víxlar og stutt skuldabréf með ábyrgð
íslenska ríkisins. Sjóðnum er heimilt að
fjárfesta allt að 10% í innlánum.
Hentar þeim sem vilja fjárfesta í þrjá mánuði
eða lengur.
Litlar sveiflur í ávöxtun og enginn binditími.
Lágmarkskaup aðeins 5.000 kr.
Hægt að vera í mánaðarlegum sparnaði.
Ríkisvíxlasjóður er verðbréfasjóður skv. lögum nr. 30/2003, um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Rekstrarfélag sjóðsins er Rekstrar-
félag Kaupþings banka hf. Vakin er sérstök athygli á að almennt fylgir áhætta fjárfestingu í hlutdeildarskírteinum verðbréfasjóða, t.d.
getur fjárfesting rýrnað eða tapast að öllu leyti. Fyrri ávöxtun verðbréfasjóða gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarávöxtun
þeirra. Nánari upplýsingar um sjóðinn, þ.á m. nánari upplýsingar um áhættu við fjárfestingu í hlutdeildarskírteinum þeirra, má finna í
útboðslýsingu eða útdrætti úr útboðslýsingu sjóðanna sem nálgast má á www.kaupthing.is/sjodir.
Tryggingarsjóður innstæðueigenda og fjárfesta tryggir innlán að lágmarki fjárhæð sem samsvarar EUR 20.887. Samkvæmt yfirlýsingu
ríkisstjórnarinnar frá 6. október 2008 eru „innstæður í innlendum viðskiptabönkum og sparisjóðum og útibúum þeirra hér á landi
tryggðar að fullu“. Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er ekki kveðið á um gildistíma, en yrði hún felld úr gildi þá tæki við lágmarksvernd
samkvæmt lögum nr. 98/1999, sem greinir frá að ofan. Tryggingarsjóðurinn tryggir ekki tjón sem verður vegna taps á undirliggjandi
fjárfestingum verðbréfasjóða s.s. skuldabréfum eða víxlum. Sjá nánar lög nr. 98/1999, um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir
fjárfesta, og heimasíðu sjóðsins, www.tryggingarsjodur.is.
10% innlán
90% ríkisvíxlar og
ríkisskuldabréf
Nýr og traustur kostur fyrir einstaklinga,
fyrirtæki og aðra fjárfesta.
Leitað er eftir þátttakendum í klíníska rannsókn á nýju rannsóknarlyfi
Tilgangur rannsóknarinnar er að athuga öryggi og verkun mismunandi skammta
rannsóknarlyfsins við meðhöndlun á þrálátum háþrýstingi, samanborið við lyfleysu
og virkt, markaðssett lyf. Aðalrannsakandi er Karl Andersen, sérfræðingur í
lyflækningum og hjartalækningum. Rannsóknin fer fram á Rannsóknarsetri Íslenskra
lyfjarannsókna ehf. – Encode, Krókhálsi 5d, 110 Reykjavík.
Hverjir geta tekið þátt?
Konur og karlar á aldrinum 18 75 ára með þrálátan háþrýsting
(efri mörk 140 mmHg og <180 mmHg).
Einstaklingar á stöðugri þriggja lyfja meðferð við háþrýstingi sem eru þrátt fyrir
það með of háan blóðþrýsting. Lyfjameðferðin má vera flóknari, þ.e. fleiri en
þrjú lyf notuð, en eitt lyfjanna skal þó vera þvagræsilyf.
Hvað felur rannsóknin í sér?
Þátttaka varir í allt að 14 vikur og gert er ráð fyrir um 13 heimsóknum á
rannsóknarsetur á tímabilinu. Heimsóknirnar taka u.þ.b. 1 til 4 klst. Gerðar verða
blóðþrýstingsmælingar, bæði á rannsóknarsetri og með notkun blóðþrýstingsvaktara
yfir sólarhring. Blóðsýni verða tekin í flestum heimsóknum.
Áhætta af þátttöku felst í mögulegum aukaverkunum af notkun rannsóknarlyfsins,
bæði þekktum og ófyrirséðum. Ekki er hægt að tryggja að þátttakendur fái
tímabundinn bata en niðurstöður rannsóknarinnar geta leitt til framfara í meðferð
sjúkdómsins.
Greitt verður fyrir þátttöku og rannsóknareftirlit verður þátttakendum að
kostnaðarlausu.
Frekari upplýsingar
Ef þú hefur áhuga á að taka þátt, vinsamlegast hafðu samband við hjúkrunarfræðing
rannsóknarinnar í síma 510 9911 milli kl. 8 og 16 eða með því að senda tölvupóst á
clinic@encode.is.
Tekið skal fram að einstaklingar sem svara auglýsingunni hafa á engan hátt
skuldbundið sig til að taka þátt í rannsókninni. Ákveði þeir að taka þátt, geta þeir
dregið sig út úr rannsókninni hvenær sem er, án þess að gefa sérstaka ástæðu fyrir
ákvörðun sinni.
Rannsóknin hefur fengið leyfi Lyfjastofnunar, Vísindasiðanefndar og Persónuverndar.
➜
Gömlu bankarnir. Allar innlendar eignir og innlán færðust í
nýju bankana, allt annað endaði í gömlu bönkunum.
ÍSLANDSBANKI LANDSBANKINN KAUPÞING
Nýju bankarnir. Allar innlendar eignir og innlán færðust í
nýju bankana.
VIÐSKIPTARÁÐHERRA FJÁRMÁLARÁÐHERRA
Skipar stjórn og forstjóra Fjármálaeftirlitsins. Fer með hlut ríkisins í bönkunum, skipar í bankaráð.
Skipar fimm manna skilanefnd yfir gömlu bankana sem
taka yfir hlutverk stjórnar.
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ
SKILANEFND
GLITNIS
SKILANEFND
LANDSBANKANS
Taka ákvarðanir um eignir gömlu bankanna, reyna að
innheimta skuldir og hámarka eignir svo kröfuhafar fái
sem mest í sinn hlut.
SKILANEFND
KAUPÞINGS
BANKARÁÐ
ÍSLANDSBANKA
BANKARÁÐ
LANDSBANKANS
BANKARÁÐ
KAUPÞINGS
Ræður bankastjóra og setur stefnu.
STJÓRNENDUR
OG LÁNANEFND
ÍSLANDSBANKA
STJÓRNENDUR
OG LÁNANEFND
LANDSBANKANS
STJÓRNENDUR
OG LÁNANEFND
KAUPÞINGS
Taka ákvarðanir um fyrirtæki sem eiga í greiðsluerfið-
leikum. Taka ákvörðun um hvort lánum fyrirtækisins er
breytt í eigið fé bankans í fyrirtækjum, og þau færð í
eignaumsýslufélög.
EIGNAUMSÝSLUFÉLAG
ÍSLANDSBANKA
EIGNAUMSÝSLUFÉLAG
LANSBANKANS
EIGNAUMSÝSLUFÉLAG
KAUPÞINGS
Munu fara með eignahlut bankans í fyrirtækjum. Reka
fyrirtækin með það í huga að selja þegar rétt verð fæst.
GLITNIR LANDSBANKINN KAUPÞING
Miklar kröfur eru gerðar til bankanna um að
þeir gæti að samkeppnissjónarmiðum þegar
þeir taka á vanda fyrirtækja. Fjölmargir hafa
bent á hættuna af því að bankarnir styðji við
fyrirtæki á samkeppnismarkaði meðan önnur
fyrirtæki á sama markaði fá enga sérstaka
fyrirgreiðslu.
Samkeppniseftirlitið hefur farið fram á það
við bankana að þegar þeir taki ákvarðanir um
framtíð fyrirtækja hafi þeir til hliðsjónar þá
mikilvægu langtímahagsmuni almennings og
viðskiptalífsins að virk samkeppni fái þrifist í
sem flestum geirum atvinnulífsins hér á landi.
Í áliti eftirlitsins frá 12. nóvember í fyrra er
settur fram listi með þeim meginreglum sem
bankarnir ættu að hafa til hliðsjónar þegar þeir
taka ákvarðanir um framtíð fyrirtækja í vanda.
Í sameiginlegri yfirlýsingu viðskiptabankanna
þriggja frá 9. desember segir að bankarnir
„miði að því“ að starfa eftir þessu áliti Sam-
keppniseftirlitsins, og muni kynna starfsmönn-
um efni þess.
Í áliti eftirlitsins er meðal annars rætt um
eftirfarandi atriði:
■ Við töku allra meiri háttar ákvarðana sem
áhrif geta haft á starfsemi fyrirtækja á að
fara fram mat á samkeppnislegum áhrifum
inngrips. Æskilegt er að óháður aðili sem
þekkingu hefur á samkeppnismálum fylgist
með og jafnvel taki ákvarðanir.
■ Skrásetja skal ferlið við endurskipulagningu
fyrirtækja til að tryggja gagnsæi og vinna
gegn tortryggni, helst af óháðum aðila.
■ Ef nokkrar leiðir koma til greina við endur-
skipulagningu fyrirtækja á að velja þá leið
sem eflir samkeppni, eða raskar henni sem
minnst. Ekki á að stofna til aukinnar fákeppni
né óæskilegra tengsla á samkeppnismörkuð-
um ef hjá því verður komist.
■ Nýta á sem best svigrúm sem kann að
skapast til að draga úr fákeppni, aðgangs-
hindrunum, óæskilegum stjórnunar- eða
eignatengslum eða markaðsráðandi stöðu.
Frekar á að skipta fyrirtækjum upp en að
sameina þau.
■ Gæta á þess að fyrirtækjum sé ekki mismun-
að með ómálefnalegum hætti. Til dæmis
eiga rekstur eða fjárhagsleg endurskipulagn-
ing keppinauta sem eru í viðskiptum við
sama bankann ekki að vera á könnu sömu
aðila innan bankans.
■ Þegar fyrirtæki eða eignir eru seldar á að
tryggja að allir líklegir kaupendur hafi jafna
möguleika á því að gera tilboð og hlutlægni
milli kaupenda skal vera tryggð.
Þeir starfsmenn bankanna sem Fréttablaðið
ræddi við sögðust meðvitaðir um samkeppnis-
sjónarmið. Bankarnir virðast hafa kynnt sjónar-
mið Samkeppniseftirlitsins fyrir starfsmönnum.
Vandinn er hins vegar sá að bankarnir vilja
hámarka virði og endurheimtur lánasafna.
Fulltrúar bankanna segjast almennt hafa
sjónarmið Samkeppniseftirlitsins til hliðsjónar.
Staðan sé þó yfirleitt þannig að aðeins séu
slæmir kostir í stöðunni, og bankarnir verði að
velja þann skásta, þótt hann sé ekki sá skásti
fyrir samkeppni á markaði.
VELJA SKÁSTA KOSTINN AF MÖRGUM SLÆMUM ÞÓTT HANN STANGIST Á VIÐ SAMKEPPNISSJÓNARMIÐ