Fréttablaðið - 06.06.2009, Síða 64
Þ
etta er þegar orðið mjög vinsælt, sérstaklega
meðal yngri krakka, og fer vaxandi. Maður
heyrir oft að það hljóti bara að vera brjálað-
ir unglingar sem eru í þessu en það er alls
ekki rétt. Þetta er viðurkennd keppnisíþrótt,“ segir
Tómas Orri Birgisson, kallaður Torri, sem er með-
limur í hópi sem kennir sig við geislavirkar buxur,
Radio Active Pants. Hópurinn samanstendur af sex
piltum, öllum rétt undir tvítugu, sem ástunda svo-
kallað Free running og Parkour, en það er líkamslist
sem gengur í sem stystu máli út á að nota umhverf-
ið til að framkvæma hinar ýmsu hreyfingar á sem
mýkstan og fljótastan hátt. Í þessu felast mikil hopp,
stökk, klifur og fleira.
„Við hoppum til dæmis fram af húsþökum, veggj-
um og í raun hverju sem er. Umhverfið er okkar leik-
völlur. Þetta snýst mikið um að sýna hvað maður
getur,“ segir Torri. „Þetta er í raun jaðaríþrótt sem
reynir mikið á alla vöðva líkamans.“
Radio Active Pants-hópurinn hefur stundað free
running í tæp tvö ár. Strákarnir þekkjast flestir
frá barnæsku og áhuginn kviknaði út frá æfingum
í fimleikum og á trampólíni. Aðspurður segir Torri
það mjög auðvelt að meiða sig í hamaganginum sem
fylgir íþróttinni. „Einn okkar er fótbrotinn, annar
meiddur í baki og tveir hafa slitið á sér hnén. En það
er lítill fórnarkostnaður fyrir ánægjuna sem felst í
þessu,“ segir Tómas Orri Birgisson.
Umhverfið er okkar leikvöllur
Radio Active Pants er hópur sem stundar líkamslist sem kölluð er Free running eða Parkour. Í því felast mikil hopp, stökk,
hlaup og hamagangur. Kjartan Guðmundsson og Vilhelm Gunnarsson kynntu sér listina og ræddu við einn meðlimanna.
HOPP OG SKOPP Hér sjást fjórir meðlimir Radio Active Pants, þeir Tommi, Torri, Arnar og Andri, í essinu sínu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Í LAUSU LOFTI Meiðsli af ýmsu tagi eru lítill fórnarkostnaður fyrir ánægjuna sem hlýst af íþróttinni, segir Torri. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
JAÐARÍÞRÓTT Free running reynir á alla vöðva líkamans. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FYLGST MEÐ LOFTFIMLEIKUNUM Torri segir líkamslistina ganga mikið út á að sýna
öðrum hvað menn geta. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
40 6. júní 2009 LAUGARDAGUR