Fréttablaðið - 06.06.2009, Síða 70
6. júní 2009 LAUGARDAGUR
Flestir bæir á landinu halda
upp á sjómannadaginn en
óvenjulegt þykir þegar engin
höfn er á staðnum eða langt
í sjó. Í Skaftárhreppi verð-
ur öllu tjaldað til á morgun
í tilefni sjómannadagsins,
þótt um 200 kílómetrar séu
frá Kirkjubæjarklaustri til
vesturs og austurs í næstu
höfn.
„Þetta er hugmynd Skot-
ans Brians Haroldsson sem
er búsettur hér. Hann lang-
aði að gera eitthvað skemmti-
legt á sjómannadaginn fyrst
flestir bæir á landinu halda
hátíð til minningar um sjó-
menn og gera sér glaðan
dag,“ segir Ingólfur Hart-
vigsson, sóknarprestur á
Kirkjubæjarklaustri, þar
sem Brian er organisti.
„Okkur langaði líka til
að enda sunnudagaskólann
svona, prufukeyrðum þetta í
fyrra og þá sló þetta í gegn.
Ég held að yfir 70 manns
hafi mætt og var stemningin
mikil.“ Hann segir hugmynd-
ina ekki langsótta þar sem
Skaftfellingar hafi margir
sótt sjó fyrir aldamótin 1900
en þá var róið út á vorin frá
Meðallandssöndum.
Ekki verður þó um hefð-
bundna sjómannadagskrá
að ræða. „Dagurinn hefst
með fjölskylduguðsþjónustu
í Langholtskirkju í Meðal-
landi klukkan 14. Svo fær-
ist fjörið að Hæðargarðs-
vatni þar sem róðrarkeppni
verður klukkan 16. Þar munu
etja kappi gömlu hrepparn-
ir sem hafa verið sameinað-
ir undir Skaftárhrepp. Mýr-
dælingum hefur verið boðið
til leiks til að gera keppnina
meira spennandi. Svo verð-
ur Kvenfélag Kirkjubæjar-
hrepps með veitingar,“ segir
Ingólfur, sem vonar að dag-
urinn verði að árlegum við-
burði. heidur@frettabladid.is
GUÐMUNDUR FINNBOGASON
LANDSBÓKAVÖRÐUR FÆDDIST
ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1873.
„Sú er listin mest að gera
mikið úr litlu, hitt getur
hver sem vill að gera lítið
úr miklu.“
Guðmundur var prófessor í
sálfræði við Háskóla Íslands
og rektor í eitt ár. Eftir hann
liggur fjöldi rita.
BÚIST VIÐ HARÐRI KEPPNI Fimm lið kepptu í róðrarkeppninni í fyrra
en nú verða þau sex. MYND/ÚR EINKASAFNI
ÓVENJULEG STAÐSETNING Sjómannadagurinn haldinn hátíðlegur á Kirkjubæjarklaustri. MYND/ÚR EINKASAFNI
ÍBÚAR SKAFTÁRHREPPS: HALDA UPP Á SJÓMANNADAGINN
Hátíð lengst inni í landi
Innilegar þakkir til alls þess fólks
sem liðsinnti,
Konráði Þór Snorrasyni,
af alúð í erfiðum veikindum og umvafði fjölskyldu
hans með einstakri elskusemi.
Snorri Sævar Konráðsson Katrín Magdalena
Konráðsdóttir
Snorri S. Konráðsson Soffía H. Bjarnleifsdóttir
Kolbrún Björk Snorradóttir Ellert Jónsson
Snorri Birkir Snorrason
Eyþór Ellertsson
Bjarki Ellertsson
Svanhildur Ásta Haig Gunnarsdóttir
og aðrir vandamenn.
Alúðarþakkir færum við öllum þeim er
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát
og útför ástkærrar móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Bjargar Steindórsdóttur
áður til heimilis að Grænumýri 7,
Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Seli og Kristnesspítala
fyrir góða umönnun. Guð blessi ykkur öll.
Hulda Kristjánsdóttir Gestur Jónsson
Kristján Gestsson Ingibjörg Dagný Jóhannsdóttir
Jón Ásgeir Gestsson Hrund Steingrímsdóttir
Þóra Steinunn Gísladóttir
Gísli Sigurjón Jónsson
Björg Þórhallsdóttir
Höskuldur Þór Þórhallsson Þórey Árnadóttir
Anna Kristín Þórhallsdóttir Runólfur Viðar Guðmundsson
og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts
og útfarar elskulegs eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
Péturs Sörlasonar.
Guð blessi ykkur öll. Fyrir hönd aðstandenda,
Sigríður Vilhjálmsdóttir
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
Selma Friðgeirsdóttir
áður til heimilis að Vogatungu 3,
Kópavogi,
lést á hjúkrunardeild Hrafnistu í Reykjavík,
26. maí sl. Jarðarförin fer fram í Áskirkju mánudaginn
8. júní kl. 13.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hennar er bent á Minningaröldu
sjómannadagsins, Hrafnistu, Reykjavík, sími 585 9500.
Indriði Guðjónsson
Erla Sigurlaug Indriðadóttir Björn Þorsteinsson
Friðgeir Indriðason Stella María Reynisdóttir
Ingibjörg Indriðadóttir
Guðjón Indriðason
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartfólgin eiginkona mín, móðir okkar
og amma
Geirþrúður Kjartansdóttir,
Hraunhólum 9, Garðabæ,
lést á líknardeild Landspítala, Landakoti, miðvikudag-
inn 4. júní. Útför hennar fer fram frá Vídalínskirkju
mánudaginn 15. júní kl. 13.00.
Hreinn Jóhannsson
Kjartan Hreinsson
Guðrún Hreinsdóttir
Sturla Jóhann Hreinsson
og barnabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim er
sýndu okkur hlýhug og vináttu vegna and-
láts og útfarar ástkærs eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
Gunnlaugs Þ. Halldórssonar
Vallholti, Árskógsströnd.
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks á lyflækninga-
deild Sjúkrahúss Akureyrar fyrir góða umönnun og
allan kærleik.
Guðrún I. Kristjánsdóttir
Ingibjörg Gunnlaugsdóttir
Jóhanna E. Gunnlaugsdóttir Sævar Einarsson
Guðný H. Gunnlaugsdóttir Guðmundur Ólafsson
afa og langafabörn.
Útfararþjónusta
Davíðs Ósvaldssonar ehf.
Davíð Ósvaldsson
Útfararstjóri
S. 896 6988 / 553 6699
Óli Pétur Friðþjófsson
Útfararstjóri
S. 892 8947 / 565 6511
MOSAIK
timamot@frettabladid.is
Jóhannes Páll II. páfi
kom til Íslands þennan
dag árið 1989. Hann
söng meðal annars
messu við Landakots-
kirkju sem þúsundir
hlýddu á þrátt fyrir
kalsaveður. Nunnurn-
ar úr Karmelklaustrinu
í Hafnarfirði fengu sér-
stakt páfaleyfi til að
vera viðstaddar guðs-
þjónustuna.
Páfinn óskaði eftir að fá að koma til Þingvalla þar sem kristni-
takan fór fram. Þar var einnig helgihald undir beru lofti. Hann
kom öllum á óvart þegar hann vatt sér upp í rútu að athöfninni
lokinni í stað þess að ferðast til baka í einkabifreið. Sérstaklega
tóku öryggisverðirnir kipp er páfi virtist hafa gufað upp, að því er
fram kemur í Ísland í aldanna rás eftir Illuga Jökulsson. En páfi sat
í besta yfirlæti í biskuparútunni.
ÞETTA GERÐIST: 6. JÚNÍ 1989
Páfinn kom til Íslands
AFMÆLI
ÁSBJÖRN
MORTHENS
söngvari 53
ára í dag.
STEFÁN
EIRÍKSSON
lögreglu-
stjóri er 39
ára í dag.
BRYNJA
VALDÍS
GÍSLADÓTT-
IR leikkona
er 36 ára í
dag.
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.