Fréttablaðið - 06.06.2009, Qupperneq 80
52 6. júní 2009 LAUGARDAGUR
folk@frettabladid.is
Unglinga- og bæjarvinnan
er vel sótt í ár, enda hart í
ári fyrir námsmenn á öllum
aldri. Fréttablaðið skellti
sér út í blíðuna og ræddi við
nokkra starfskrafta Bæjar-
vinnu Seltjarnarness.
„Það er ótrúlega góður mórall
hérna og maður þekkir alla,“ segir
Rannveig Anna Guðmundsdóttir.
Hún, Huld Haraldsdóttir og Stef-
anía Dögg Jóhannesdóttir eru sér-
hæfðar í þökulagningu á Nesinu.
„Við erum ótrúlega mörg í ár,“
segir Stefanía. „Vanalega erum við
um 40 en í ár fengu 120 störf.“ Þær
segjast heppnar að búa á Seltjarn-
arnesi en mörgum umsækjendum í
Reykjavík var vísað frá og þær láta
vel af starfinu. „Það er frábært að
fá að vera úti, sérstaklega ef það
er gott veður,“ segir Rannveig. En
hvað hefðu þær gert á daginn ef
þær hefðu ekki fengið bæjarvinn-
una? „Við hefðum ekki verið með
neina dagvinnu,“ segir Huld. „Ætli
maður hefði ekki bara sofið út, farið
í sund og gert ekki neitt. Það hefði
verið ömurlegt,“ segir Stefanía. Eru
krakkarnir þá almennt þakklátir
fyrir að fá að slá og raka gras, tína
rusl og legga þökur? Rannveig er
fljót að svara og hinar taka undir:
„Mjög þakklátir. Þetta er æðislegt.“
- kbs
VINNA FORRÉTTTINDI
ALSÆLAR Í BÆJARVINNU Huld, Rannveigu og Stefaníu finnst æðislegt að vinna úti.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
„Ég er búin að vera að skipuleggja þetta síðustu fjóra mán-
uði,“ segir Kitty von Sometime, forsprakki Weird Girls
Project, um tökur á tónlistarmyndbandi sem fer fram í
dag fyrir hljómsveitina Agent Fresco.
Stelpurnar koma fram í myndbandinu sem er við
lagið Eyes of a Cloud Catcher, en eins og í flestum verk-
efnum Weird Girls Project vita þær ekki hvar tökurnar
munu fara fram né hvað verður gert á staðnum. „Megin -
atriðið í þessu eru óvænt viðbrögð stelpnanna,“
segir Kitty.
Kitty á von á sínu fyrsta barni með söngv-
aranum Daníel Ágústi Haraldssyni í byrjun
september. Aðspurð segir hún það hafa lítil
áhrif á vinnuna. „Mér líður vel og ég held að
tökurnar á myndbandinu séu akkúrat á réttum
tíma, nú þegar morgunógleðin er búin og áður
en ég verð of þung á mér,“ segir Kitty, sem er
búin að elda fyrir alla sem verða á tökustað, um
45 manns. „Ég gerði meðal annars kjúklingavængi,
pitsur og kúskús. Þetta er liður í því að fá fólk til
að vinna vel,“ bætir hún við og brosir. - ag
Kitty til liðs við Agent Fresco
Í ERLENDUM TÍMA-
RITUM Fjallað hefur
verið um Weird
Girls Project víða,
en Kitty fór nýverið
í viðtal við hið virta
tímarit Dazed and
Confused sem ætlar
að birta myndir frá
tökustað í næsta
blaði.
Útgáfufyrirtækið Kimi Records
gaf út sínar fyrstu plötur á evr-
ópskum markaði á föstudag þegar
Murta St. Calunga með Benna
Hemm Hemm og All Over the
Face með Skakkamanage komu út
á geisladiski og rafrænu formi. Í
júlí koma svo þessar sömu plötur
út á Bandaríkjamarkaði auk þess
sem The Blood með Reykjavík!
kemur út í Evrópu. Hún kemur svo
út í ágúst á Bandaríkjamarkaði.
Plata Sudden Weather Change,
Stop! Handgrenade In The Name
Of Crib Death ‘nderstand?, kemur
út á sömu mörkuðum í september.
Útgáfa víða
um Evrópu
SKAKKAMANAGE Nýjasta plata
Skakkamanage er komin út í Evrópu.
„Ef það er eitthvað sem
ég þoli alls ekki, þá er það
rokkstjarna sem heldur að
hún sé klár. Þær eru alltaf
svo fjandi litlausar.“
IGGY POP
Lítur niður á hljómsveitir eins og
Limp Bizkit og Smashing Pumpkins.
„Þú getur ekki keypt þér
hamingju. Þú kaupir nógu
stóra snekkju svo þú getir
siglt beint upp að henni.“
JOHNNY DEPP
Finnur hamingj-
una á einkaeyju í
Karíbahafinu og
risasnekkjunni
sinni.
„Þessi orðrómur hjálpar
ekki við að fá stefnumót.
Ég er meira fyrir strák-
ana. Ég verð upp með
mér þegar stelpur reyna
við mig og það er æsandi,
en ég er fyrir
stráka.“
KELLY CLARKSON
Þvertekur fyrir sögu-
sagnir um að hún
sé lesbía.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000
Akureyri • sími 461 1099 • www.heimsferdir.is