Fréttablaðið - 06.06.2009, Side 86
58 6. júní 2009 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
Kristinn Jakobsson mun í dag takast á við sitt stærsta verkefni á ferl-
inum að eigin sögn þegar hann dæmir leik Kasakstans og Englands í
undankeppni HM 2010.
„Ég held að maður fái varla að dæma hjá frægara liði en enska
landsliðinu,“ sagði Kristinn í samtali við Fréttablaðið. „Þetta er því
virkilega spennandi verkefni.“
Hann segist þó nálgast leikinn eins og flesta aðra. „Það
verða án nokkurs vafa ellefu leikmenn í hvoru liði,“ sagði
hann í léttum dúr. „En undirbúningurinn er búinn
að vera mjög góður. Við erum fjórir saman í för
og höfum dæmt nokkuð marga leiki saman. Við
þekkjumst því nokkuð vel og erum vel einbeittir
fyrir verkefnið.“
Hann segist engar áhyggjur hafa af því að
stórstjörnurnar frá Englandi láti sér fátt finnast um
dómara frá Íslandi þar sem tímabilið er nýhafið.
„Mitt tímabil hefur talið tólf mánuði undanfarin 2-3
ár. Þeir vita að við erum vel undirbúnir og verðugir að
takast á við þetta verkefni.“
Umræða um dómara frá löndum með sumardeildir komst
af stað á ný eftir að Norðmaðurinn Tom Henning Øvrebø var
harkalega gagnrýndur eftir að hann dæmdi síðari undanúrslita-
leik Chelsea og Barcelona í Meistaradeildinni.
„Mér fannst sú umræða öll á mjög lágu plani. Dómarar í
Evrópu eru með lengra tímabil en aðrir og það á líka við
um dómara frá Norðurlöndunum. Við á Íslandi erum
búnir að dæma 1-2 leiki í viku síðan um áramótin
og erum þannig alveg fram í desember. Dómarar
standa sig einfaldlega misjafnlega.“
Hann segist þó vera stressaður fyrir þennan
leik, rétt eins og alla aðra. „Ég tel að ég
myndi lenda í vandræðum ef stressið væri
ekki til staðar. Ég er með fiðrildi í maganum
fyrir hvern einasta leik. Þessi leikur verður
vissulega stór á mælikvarða íslenskra dómara og
það er engin spurning að þetta er stærsta verkefn-
ið sem ég hef tekist á við. Þegar öllu er á botninn hvolft
eru ellefu leikmenn í hvoru liði – flóknara er það ekki.“
KRISTINN JAKOBSSON: DÆMIR LANDSLEIK KASAKSTANS OG ENGLANDS Í DAG
Englendingarnir eru mesta áskorunin
FÓTBOLTI Ísland tekur á móti einu
besta landsliði heims, Hollandi, á
Laugardalsvelli í kvöld. Það velk-
ist enginn í vafa um að það verð-
ur við ramman reip að draga gegn
flinkum og skæðum Hollendingum
en þrátt fyrir það er landsliðsþjálf-
arinn, Ólafur Jóhannesson, tiltölu-
lega bjartsýnn.
„Ég er bjartsýnn fyrir alla
leiki en eðlilega gerum við okkur
grein fyrir því að við erum að
mæta hörkuliði. Miði er samt allt-
af möguleiki og ég held að það
sé möguleiki núna,“ sagði Ólafur
nokkuð sannfærandi.
Trúi að þeir muni vanmeta okkur
„Hollendingar geta tryggt sér
sæti á HM með sigri á okkur og
leggja þar af leiðandi kannski
aðeins meira upp úr leiknum. Að
sama skapi vonast ég til þess að
þeir muni vanmeta okkur. Tíma-
bilið er búið hjá þeim og kannski
eru þeir aðeins búnir að stimpla
sig út úr fótboltanum.
Ég hef trú á því að þeir van-
meti okkur og það er styrkur
fyrir okkur. Í kjölfarið er ágætis
lag fyrir okkur að gera einhverja
hluti í þessum leik,“ sagði Ólafur
en verður ekki erfitt fyrir hann
að fá menn til þess að trúa á sigur
gegn liðinu sem er í öðru sæti
styrkleikalista FIFA?
„Jú, að sjálfsögðu. Ég hef sagt
við leikmennina að þeir verði að
trúa, ef trúin er engin þá vinnum
við ekki leiki. Við höfum verið að
vinna í því að menn hafi trú á því
sem þeir eru að gera því við þjálf-
ararnir trúum því að það sé hægt
að vinna þessi lið. Til að það gangi
eftir þarf ansi mikið að ganga upp
en af hverju getur það ekki gerst
eins og hvað annað?“ spurði Ólafur
sposkur á svip.
Verð að smita menn af þeirri trú
að þeir geti unnið
„Það er draumur allra leik-
manna að spila á móti svona sterk-
um liðum og það ætti að gefa mönn-
um kraft. Það er síðan ekki verra
að eygja smá möguleika eins og ég
tel okkur hafa. Það sem ég get gert
er að smita menn af þeirri trú sem
ég hef að það sé hægt að gera góða
hluti í þessum leik.“
Þó svo að margir telji leikinn
fyrir fram tapaðan er ljóst að
mikið er undir fyrir íslenska liðið,
en stig í þessum leik gæti reynst
mikilvægt þegar upp er staðið í
baráttunni um annað sæti riðils-
ins.
„Ég hef ekki afskrifað annað
sætið. Á meðan það er enn mögu-
leiki leggjum við okkur fram. Ég
tel mjög mikilvægt að fá fínan
leik og fín úrslit í þessum leik upp
á framhaldið. Við höfum lent í leið-
indaleikjum gegn Skotum þar sem
við vorum spældir að uppskera
ekki neitt en við töldum okkur
eiga meira skilið en við fengum.
Góð úrslit myndu gefa leikmönn-
um mikið og hjálpa okkur í fram-
haldinu.“
Sóknarleikurinn er hausverkur
Flestir geta verið sammála um
að spilamennska landsliðsins hafi
batnað mikið undir stjórn Ólafs
en úrslitin hafa látið á sér standa.
Varnarleikurinn hefur oftast verið
ágætur en sóknarleikurinn hefur
valdið vonbrigðum og oftar en ekki
verið langt frá því að vera nógu
beittur.
„Það er rétt og það er það sem
við höfum verið að fá menn til að
trúa og þora, að koma hærra á völl-
inn. Það hefur verið basl á því, það
verður að segjast eins og er,“ sagði
Ólafur, sem er þokkalega sáttur
við gengið undir hans stjórn.
„Ég get vel viðurkennt að ég var
svekktur eftir Skotaleikinn. Þeir
skora úr hornum sem við eigum
ekki að gefa en auðvitað gera
menn mistök í fótbolta. Auðvitað
voru þessir Skotaleikir vonbrigði.
Við vinnum Makedóna og gerum
jafntefli við Noreg, það var gott.
Ég hef ekki verið að svekkja mig
of mikið á þessu enda þýðir það
ekki,“ sagði Ólafur, sem dregur
ekki dul á mikilvægi þess að fá
eitthvað út úr leiknum.
Verðum að fá eitthvað úr þessum
leik
„Við verðum að fá eitthvað út
úr þessum leik. Það er bara stað-
reynd. Ef við fáum stig út úr þess-
um leik og skoðum hina leikina
þá gæti verið kominn fínn mögu-
leiki aftur. Það er enn möguleiki
til staðar,“ sagði Ólafur en hvernig
ætlar hann að spila í dag?
„Við getum ekki farið og sett
pressu á Hollendingana því þá
munu þeir sundurspila okkur.
Eins og ég hef margoft sagt erum
við á heimavelli og ég er að velta
fyrir mér hvort við eigum ekki að
fara ofar á völlinn en síðast þegar
við duttum allt of langt til baka.
Við munum reyna að fara hærra,
en meirihluta leiksins verðum við
aftarlega að verjast.“
henry@frettabladid.is
Hefur ekki afskrifað annað sætið
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari hefur trú á því að íslenska landsliðið geti gert Hollandi skráveifu.
Hann segist vera að vinna í því að fá leikmenn til þess að trúa því líka. Hann hefur ekki gefið upp vonina
um að ná öðru sæti riðilsins og trúir því að hagstæð úrslit í dag muni hjálpa liðinu mikið í framhaldinu.
Í LYKILHLUTVERKI Það mun mikið mæða á þeim Eiði Smára Guðjohnsen og Her-
manni Hreiðarssyni í dag.- FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
YFIRVEGAÐUR Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari sést hér ásamt Kristjáni Erni Sigurðssyni á landsliðsæfingu fyrr í vikunni.
Ólafur segir að Ísland verði að fá eitthvað út úr leiknum í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
GOLF Atvinnukylfingurinn Birg-
ir Leifur Hafþórsson úr GKG lék
sinn annan hring á Opna velska
mótinu í golfi í gær og komst í
gegnum niðurskurðinn.
Birgir Leifur lék á tveimur
höggum yfir pari Celtic Manor
vallarins og það dugði til en
grunninn að árangrinum lagði
hann í fyrradag þegar hann lék
fyrsta hringinn á tveimur högg-
um undir pari. Hann var því sam-
anlagt á pari.
Útlitið var ekki gott um tíma
á hringnum hjá Birgi Leifi í gær
þar sem hann var um tíma á fjór-
um höggum yfir pari en hann
bjargaði sér fyrir horn með því
að fá tvo fugla á síðustu fjórum
holunum.
Meðal annarra kylfinga sem
komust í gegnum niðurskurðinn
í gær voru gömlu refirnir Colin
Montgomerie frá Skotlandi og
Thomas Björn frá Danmörku. - óþ
Birgir Leifur Hafþórsson:
Komst í geng-
um niðurskurð
BIRGIR LEIFUR Komst í gegnum niður-
skurðinn á Opna velska.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
> Sundkeppni lokið á Smáþjóðaleikunum
Íslenska sundfólkið var í miklum ham á Smáþjóða-
leikunum á Kýpur en keppni í sundi lauk í gær.
Afraksturinn var 17 gullverðlaun, 12 silfurverðlaun og 6
bronsverðlaun. Þá settu íslensku keppendurnir aragrúa
leikjameta ásamt því að setja fimm
Íslandsmet. Að auki jafnaði Ragnheið-
ur Ragnarsdóttir Íslandsmet sitt í 50
metra skriðsundi í fyrradag. Hrafnhildur
Lúthersdóttir (mynd) sló Íslandsmetið í
200 metra bringusundi.
FÓTBOLTI Fabio Capello, landsliðs-
þjálfari Englands, var ákveðinn
á blaðamannafundi fyrir leikinn
gegn Kasakstan í undankeppni
HM 2010 í dag og sagði að engar
afsakanir yrðu teknar gildar,
aðeins sigur og ekkert múður.
„Ef leikmennirnir eru þreyttir
og vilja fara í sumarfrí, þá er það
engin afsökun. Þeir verða bara
að mæta tilbúnir í leikinn og við
verðum að taka öll stigin sem í
boði eru. Þetta er ekkert flókið,“
sagði Capello ákveðinn í gær.
Englendingar eru fyrir leiki
dagsins í toppsæti 6. riðils með
fullt hús stiga en Króatar eru í
öðru sæti, fimm stigum á eftir
þeim. - óþ
Fabio Capello:
Engar afsakanir
teknar gildar
CAPELLO Lætur vel heyra í sér ef til þarf.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES