Fréttablaðið - 06.06.2009, Qupperneq 88
60 6. júní 2009 LAUGARDAGUR
FÓTBOLTI Eyjólfur Sverrisson
stýrði U-21 árs landsliði Íslands
í sínum fyrsta leik í gær þegar
liðið tapaði naumlega, 3-
2, gegn Dönum ytra en
um vináttulandsleik var
að ræða. Eyjólfur var
ánægður með margt í leik
íslenska liðsins þrátt fyrir
tapið.
„Ég var bara mjög
sáttur með margt
í leik íslenska
liðsins og við
tökum margt
gott út úr
leiknum.
Við vorum
ef til vill of
passífir í
fyrri hálf-
leik og lent-
um þarna 2-
0 undir og
mér fannst
við bera of
mikla virðingu
fyrir þeim. En
komum sterkir til
baka eftir það og
náðum að setja
pressu á þá og
jöfnum leikinn
í 2-2. Eftir það
fengum við góð
upphlaup og vorum í raun lík-
legri en þeir til þess að skora en
þetta féll þeirra megin,“ segir
Eyjólfur.
Eyjólfur er ánægð-
ur með að vera kominn
aftur með U-21 árs liðið
en þetta er í annað skiptið
sem hann þjálfar liðið.
„Þetta er bara mjög
skemmtilegt verkefni
og þetta eru góðir
strákar sem vilja
bæta sig og ég
mun gera mitt
besta til þess
a ð hj á lp a
þeim að taka
framförum,“
segir Eyjólf-
ur en leik-
urinn gegn
Dönum í gær
var liður í und-
irbúningi liðs-
ins fyrir undan-
keppni EM. - óþ
Eyjólfur Sverrisson um tapið gegn Dönum í gær:
Tökum margt gott
út úr leiknum
EYJÓLFUR Ánægður
með íslensku
strákana í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
FÓTBOLTI Varnarmennirnir Her-
mann Hreiðarsson og Grétar Rafn
Steinsson ætla að reyna sitt allra
besta til þess að gera Hollending-
um lífið leitt á Laugardalsvelli í
dag þegar liðin mætast í undan-
keppni HM 2010. Þeir félagar hafa
fulla trú á því að Ísland geti náð
jákvæðum úrslitum í leiknum.
„Þetta er heldur betur verðugt
verkefni og það verður gaman að
mæta þessum körlum aftur. Við
áttuðum okkur hins vegar alveg
á því eftir að hafa mætt þeim í
Hollandi í fyrri leiknum, að við
komum alveg til með að fá okkar
færi ef við spilum eins og menn.
Þeir eru náttúrulega mjög góðir í
því að halda boltanum innan liðs
síns, en þeir áttu samt í mikl-
um erfiðleikum með að komast
í gegnum okkur og við ætlum að
gera þeim erfitt fyrir aftur,“ segir
Hermann.
Hermann segir íslenska liðið
vera hungrað í fleiri stig í riðlun-
um og að nú sé ákveðinn stöðug-
leiki kominn í liðið.
„Við erum náttúrulega hunds-
vekktir með að hafa ekki feng-
ið neitt stig úr Skotlandsleikjun-
um, þar sem við vorum síst lakari
aðilinn og fengum nóg af færum til
þess að fá eitthvað út úr þeim. Við
höfum annars verið nokkuð stöð-
ugir í leikjum okkar í riðlinum
og við munum berjast áfram um
annað sætið í riðlinum. Það verð-
ur frábært að spila þennan leik,“
segir fyrirliðinn.
Íslendingar líkamlega sterkari
Grétar Rafn tekur í sama streng
og Hermann og getur ekki beðið
eftir að mæta Hollendingum en
hann missti af fyrri leik liðanna í
Hollandi vegna meiðsla sem hann
hlaut á síðustu æfingu fyrir leik.
„Þetta er algjör draumaleik-
ur og tilhlökkunin er mikil. Þeir
gætu eflaust stillt upp þrem-
ur til fjórum liðum sem væru öll
á heimsmælikvarða þannig að
þetta verður vissulega erfitt. Við
vitum samt alveg að við getum náð
góðum úrslitum gegn stórum þjóð-
um, sérstaklega á heimavelli. Við
erum líkamlega sterkari en þeir
og þurfum að vera fastir fyrir og
þéttir varnarlega. Svo verðum við
einfaldlega að nýta þau færi sem
við fáum, þá sérstaklega úr föstum
leikatriðum. Föst leikatriði eru lyk-
illinn að góðum úrslitum hjá okkur
í þessum leik,“ segir Grétar Rafn.
omar@frettabladid.is
Föst leikatriði eru lykillinn
Hermann Hreiðarsson og Grétar Rafn Steinsson eru klárir fyrir draumaleik
gegn stórstjörnum Hollands. Hafa trú á að Ísland geti náð hagstæðum úrslitum.
TILBÚNIR Í SLAGINN Hermann Hreiðarsson, Grétar Rafn Steinsson og Arnór Smára-
son á blaðamannafundi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
*Verð í Evrópu miðast við gengi á evru 174 | Verð nú eru verð með 30% afslætti
ECCO GOLFSKÓR
Ný endursending af 2009 golflínunni komin
í Ecco búðina
KRINGLAN
Gríptu tækifærið
og fáðu þér golfskó á frábæru verði
3855355608
Stærðir: 36-41
Verð nú: 15.995
Verð í Evrópu: 26.100
CASUAL COOL
3825355605
Stærðir: 36-42
Verð nú: 17.995
Verð í Evrópu: 27.840
ACE
3825353357
Stærðir: 36-43
Verð nú: 17.995
Verð í Evrópu: 27.840
ACE
Verð nú: 19.995
Verð í Evrópu: 31.320
3883355601
Stærðir: 36-41
Verð nú: 17.995
Verð í Evrópu: 27.840
CASUAL PITCH
Verð nú: 23.995
Verð í Evrópu: 32.590
3840453859
Stærðir: 42-45
FLEXOR GTX
30% afsláttur af nýju línunni til 22. júní
Verð nú: 19.995
3948453376
Stærðir: 39 -47
CASUAL COOL II
3948455619
Stærðir: 39 -47
CASUAL COOL II
Verð í Evrópu: 31.320
Verð nú: 19.995
Verð í Evrópu: 29.580
39354 51052
Stærðir: 41-45
CLASSIC GTX
Verð nú: 15.995
Verð í Evrópu: 24.360
3940453582
Stærðir: 39-47
CASUAL COOL II
Golfmót Samiðnar 13. júní
Samiðnargolfmótið verður haldið á Golfvellinum í Öndverðarnesi
laugardaginn 13. júní. Sérstök athygli er vakin á því að mótið er jafnframt
innanfélagsmót aðildarfélaga Samiðnar og er það opið öllum félags-
mönnum Samiðnar og fjölskyldum þeirra. Ræst verður út frá kl. 8:30 - 11.
Vallargjaldið er kr. 3000 og er innifalið samloka og drykkur.
Skráning er í síma 535 6000 eða í tölvupóstfangið
skrifstofa@samidn.is
www.samidn.is
FÓTBOLTI Hollendingar tóku síð-
ustu æfingu fyrir landsleikinn
gegn Íslandi á Laugardalsvellin-
um í gærkvöld og eftir stutta og
snarpa æfingu vellinum var blaða-
mannafundur. Leikmenn Hollands
veittu þó ekki viðtöl þar heldur ein-
ungis landsliðsþjálfarinn Bert van
Marwijk.
Marwijk var ekki með neinar
orðlengingar á fundinum og svar-
aði spurningum íslenskra fjöl-
miðla stutt og skorinort. Hann á
von á erfiðum leik á Laugardals-
velli í dag og segir eldri úrslit
sem Íslendingar hafa náð á
undanförnum árum vera
viðvörun fyrir hollenska
liðið.
„Við vitum að Íslend-
ingar gerðu jafntefli gegn
Spánverjum fyrir einu
og hálfu ári. Þeir
gerðu svo jafn-
tefli gegn Noregi
í þessarri undan-
keppni auk þess
sem þeir unnu
Makedóna.
Þannig að við
höfum fengið
viðvörun. Við
munum gera
allt okkar til
þess að vinna
leikinn,“ segir
Marwijk en
sigur í leiknum
tryggir Hollending-
um endanlega farseð-
ilinn á lokakeppni HM
í Suður-Afríku.
Landsliðsþjálfar-
inn hollenski býst
við því að Íslendingar
muni liggja til baka, en
þó reyna að sækja meira
en þeir gerðu í Rotterdam í
fyrri leik lið-
anna.
„Ég hugsa að
þeir muni nálg-
ast leikinn með
svipuðum hætti og þeir gerðu
gegn Skotum og Makedónum á
heimavelli. Þeir freistast örugg-
lega til þess að spila meiri sókn-
arleik en þeir gerðu í fyrri
leiknum í Hollandi og ég vona
reyndar að þeir færi sig fram-
ar á völlinn,“ segir Marwijk en
þrátt fyrir að Hollendingar hafi
verið mun meira með boltann í
fyrri leik liðanna og unnið verð-
skuldað 2-0 þá áttu þeir í nokkr-
um vandræðum með að komast í
gegnum þéttan varnarmúr Íslend-
inga í leiknum.
Spurður út í hvort að það væri
einhver sérstakur leikmaður hjá
íslenska liðinu sem Hollendingar
þyrftu að hafa áhyggjur af lá ekki
á svari.
„Við þekkjum Eið Smára Guð-
johnsen og vitum hvað hann
getur,“ sagði Marwijk.
Hollendingar eru vitanlega
þekktir fyrir að spila skemmtileg-
an sóknarbolta en Marwijk vildi
ekkert ræða um leikskipulag sinna
manna í dag.
„Þið sjáið bara hvernig þetta
verður þegar leikurinn byrjar,“
sagði Marwijk. - óþ
Bert van Marwijk, landsliðsþjálfari Hollands, á von á erfiðum leik gegn Íslandi:
Við höfum fengið viðvörun
MARWIJK Landsliðsþjálfari Hol-
lendinga á von á erfiðum leik
gegn Íslendingum í dag.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
STÓRSTJÖRNUR Hollendingar tóku stutta og snarpa æfingu á
Laugardalsvelli í gærkvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR