Fréttablaðið - 06.06.2009, Síða 96

Fréttablaðið - 06.06.2009, Síða 96
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Davíðs Þórs Jónssonar 3.11 13.26 23.41 2.14 13.11 0.11 Í dag er laugardagurinn 6. júní, 157. dagur ársins. Um síðustu helgi var ég gest-gjafi nokkurra Norðurlanda- búa sem hér voru í heimsókn. Þeir voru áhugasamir um hrunið og kreppuna og m.a. spurði Finninn mig um bensínverðið hér á landi. Ég sagði honum það og að nýleg hækkun þess hefði ekki gert lukku meðal landsmanna. Hann reiknaði þetta í huganum og tilkynnti mér svo að bensínið væri samt ódýrara hér en það hefur verið í Finnlandi árum saman. UM alllangt skeið hef ég forð- ast að vera á ferð um borgina á ákveðnum tímum sólarhringsins vegna umferðarteppunnar sem þá er viss passi. Síðast þegar ég tók þátt í henni taldi ég að gamni mínu farþegana í hinum bílun- um. Tuttugasti hver bíll reyndist hafa fleiri um borð en bílstjórann einan. Þegar allir eru á ferð í einu og hver einstaklingur þarf 12 fer- metra af stáli undir rassgatið á sér einum er auðvitað ekki von að vel fari. Ég efast um að nokkur maður myndi kæra sig um að búa í borg sem væri undirlögð af vegakerfi sem réði við slík ósköp. Í raun væri einfalt mál að minnka umferðarþungann á álagstímum um helming. Það þyrfti aðeins að skikka fólk til að taka einhvern með sér sem væri á sömu leið. Í sumum löndum er hvatt til þess að fólk taki sig saman um bílferð- ir með sérstökum akreinum fyrir bíla með farþegum. Hér á landi fer neyslustýring á hinn bóginn fram með sköttun og verðlagningu. Í síðustu viku heyrði ég útvarps- mann nokkurn býsnast ósköpin öll yfir því hvað það væri orðið dýrt að aka í vinnuna. Reyndar var honum svo misboðið að hann hvatti til þess að fólk færi niður á Austurvöll með sleifar og potta til að mótmæla því að það væri orðið skynsamlegra að taka strætó í vinnunna eða að nokkrir vinnu- félagar væru samferða á morgn- ana en að rúnta þennan spöl einn á sínum prívatbíl. Það voru ekki hagsmunir atvinnubílstjóra sem honum voru svona hugleiknir, heldur fannst honum einfaldlega með öllu óverjandi að hinar óhjá- kvæmilegu efnahagsaðgerðir vegna óstjórnar undanfarinna ára skyldu miða að því að draga úr svifryks- og koltvísýringsmengun í borginni, jafnframt því að stemma stigu við hinu hömlulausa bensín- bruðli sem Íslendingar hafa tamið sér, með því að gera verðlagningu á eldsneyti hér á landi sambæri- legri því sem tíðkast meðal siðaðra þjóða. ÉG er ósammála honum. Bensínbruðl Opið frá kl. 9:30-19 • Sumarblómamarkaður • Útigrill – ókeypis pylsur og gos kl. 11–17 • Ókeypis íspinnar fyrir börnin • Hoppukastalar kl. 11-17 • Prúttmarkaður í Umbúðalaust • Andlitsmálun kl. 11-17 • Ókeypis myndataka kl. 11-17 • Landsliðskokkur bakar kl. 11-17 • Emil og Lína koma í heimsókn kl. 13-17 Veitingastaður opinn 9-18:30 • Ókeypis brunch kl. 9-11 • 50% afsláttur af sænskum réttum; kjötbollum, laxi og pyttipanna • IKEA tertan og kaffi 250,- Dagskrá helgarinnar: IKEA FESTIVAL helgina 6.-7. júní Í tilefni af þjóðhátíðardegi Svía 6. júní höldum við
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.