Fréttablaðið - 06.06.2009, Blaðsíða 96
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Davíðs Þórs
Jónssonar
3.11 13.26 23.41
2.14 13.11 0.11
Í dag er laugardagurinn 6. júní,
157. dagur ársins.
Um síðustu helgi var ég gest-gjafi nokkurra Norðurlanda-
búa sem hér voru í heimsókn. Þeir
voru áhugasamir um hrunið og
kreppuna og m.a. spurði Finninn
mig um bensínverðið hér á landi.
Ég sagði honum það og að nýleg
hækkun þess hefði ekki gert lukku
meðal landsmanna. Hann reiknaði
þetta í huganum og tilkynnti mér
svo að bensínið væri samt ódýrara
hér en það hefur verið í Finnlandi
árum saman.
UM alllangt skeið hef ég forð-
ast að vera á ferð um borgina á
ákveðnum tímum sólarhringsins
vegna umferðarteppunnar sem
þá er viss passi. Síðast þegar ég
tók þátt í henni taldi ég að gamni
mínu farþegana í hinum bílun-
um. Tuttugasti hver bíll reyndist
hafa fleiri um borð en bílstjórann
einan. Þegar allir eru á ferð í einu
og hver einstaklingur þarf 12 fer-
metra af stáli undir rassgatið á sér
einum er auðvitað ekki von að vel
fari. Ég efast um að nokkur maður
myndi kæra sig um að búa í borg
sem væri undirlögð af vegakerfi
sem réði við slík ósköp.
Í raun væri einfalt mál að minnka
umferðarþungann á álagstímum
um helming. Það þyrfti aðeins að
skikka fólk til að taka einhvern
með sér sem væri á sömu leið. Í
sumum löndum er hvatt til þess
að fólk taki sig saman um bílferð-
ir með sérstökum akreinum fyrir
bíla með farþegum. Hér á landi fer
neyslustýring á hinn bóginn fram
með sköttun og verðlagningu.
Í síðustu viku heyrði ég útvarps-
mann nokkurn býsnast ósköpin
öll yfir því hvað það væri orðið
dýrt að aka í vinnuna. Reyndar
var honum svo misboðið að hann
hvatti til þess að fólk færi niður á
Austurvöll með sleifar og potta til
að mótmæla því að það væri orðið
skynsamlegra að taka strætó í
vinnunna eða að nokkrir vinnu-
félagar væru samferða á morgn-
ana en að rúnta þennan spöl einn
á sínum prívatbíl. Það voru ekki
hagsmunir atvinnubílstjóra sem
honum voru svona hugleiknir,
heldur fannst honum einfaldlega
með öllu óverjandi að hinar óhjá-
kvæmilegu efnahagsaðgerðir
vegna óstjórnar undanfarinna ára
skyldu miða að því að draga úr
svifryks- og koltvísýringsmengun í
borginni, jafnframt því að stemma
stigu við hinu hömlulausa bensín-
bruðli sem Íslendingar hafa tamið
sér, með því að gera verðlagningu
á eldsneyti hér á landi sambæri-
legri því sem tíðkast meðal siðaðra
þjóða.
ÉG er ósammála honum.
Bensínbruðl
Opið frá kl. 9:30-19
• Sumarblómamarkaður
• Útigrill – ókeypis pylsur og gos kl. 11–17
• Ókeypis íspinnar fyrir börnin
• Hoppukastalar kl. 11-17
• Prúttmarkaður í Umbúðalaust
• Andlitsmálun kl. 11-17
• Ókeypis myndataka kl. 11-17
• Landsliðskokkur bakar kl. 11-17
• Emil og Lína koma í heimsókn kl. 13-17
Veitingastaður opinn 9-18:30
• Ókeypis brunch kl. 9-11
• 50% afsláttur af sænskum réttum;
kjötbollum, laxi og pyttipanna
• IKEA tertan og kaffi 250,-
Dagskrá helgarinnar:
IKEA FESTIVAL
helgina 6.-7. júní
Í tilefni af þjóðhátíðardegi Svía 6. júní höldum við