Fréttablaðið - 08.06.2009, Síða 12
12 8. júní 2009 MÁNUDAGUR
Heillandi her
„Þótt heragi, armbeygjur og
„situps“ hljómi ekki skemmti-
lega er margt mjög heillandi
við herinn.“
HARPA MAGNÚSDÓTTIR, UNDIR-
LAUTINANT Í BANDARÍSKA
HERNUM.
Fréttablaðið 6. júní.
Hjartað og lungun
„Sjávarútvegurinn er hjartað
og lungun í þjóðarlíkamanum
og verður áfram.“
ANTON BENJAMÍNSSON FRAM-
KVÆMDASTJÓRI SLIPPSINS Á
AKUREYRI.
Útvegsblaðið í júní.
„ORÐRÉTT“
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
46
41
4
05
/0
9
Hjól í sumarsól
Trail X 1.0
Enduro II 7005 álstell, Shimano Acera 21 gíra, V-bremsur
og 60 mm dempari.Vandað alhliða fjallahjól í skemmri eða
lengri ferðir.
Verð: 49.990 kr.
Jamis X24
20”, 7–12 ára, álstell, 7 gíra.
Svart/hvítt og blátt/hvítt.
Verð: 39.990 kr.
Jamis Lady Bug
12”, 2–5 ára. Bleikt.
Verð: 19.990 kr.
Jamis Laser 2.0
20”, 5–9 ára álstell, fótbremsa.
Hvítt/svart og grænt/svart.
Verð: 25.990 kr.
Explorer 1.0
Álstell 6061 TIG, SRAM 3.0 sjö gíra og Tektro V-bremsur.
Hjólið hentar vel innanbæjar og á malarvegum. Upprétt
setstaða ásamt dempara í sætispósti auka enn á þægindin.
Verð: 49.990 kr.
Hjóladeildin er í Holtagörðum!
Þótt tíminn líði hratt á
gervihnattaöld hafa hjónin
í Freyju ákveðið að hafa
svolítið meira fyrir hlutun-
um og sólþurrka saltfiskinn
á gamla mátann. Fiskurinn
verður tilbúinn í haust.
Sólin setur gjarnan mark sitt á
mannlífið þegar hún vermir land-
ann hér á norðanverðu Atlantshafi.
Það er þó afar sjaldgæft fólk nýti
sólarglætuna til að þurrka saltfisk-
inn líkt og gert var snemma á síð-
ustu öld. En hjónin Linda Jörunds-
dóttir og Guðmundur Gísli Geirdal
sem reka Fiskbúðina Freyju láta
ekki nútímann reka á eftir sér með
verkunina á saltfisknum og því var
kjörið tækifæri að breiða úr honum
á planinu við Kópavogshöfn í gær.
„Ég er frá Ísafirði og maðurinn
minn frá Grímsey,“ útskýrir Linda,
„og á báðum þessum stöðum kann
fólk virkilega að vinna saltfisk og
við verðum að reyna að standa
undir þessari pressu frá átthögun-
um.“
Hún segist sannfærð um það að
fiskurinn sé bestur sólþurrkaður.
„Þeir hafa verið að sólþurrka salt-
fisk í Neðstakaupstað á Ísafirði.
Þar höfum við yfirleitt farið í salt-
fiskveislu Byggðasafns Vestfjarða
á sumrin þar sem er boðið upp
á þetta lostæti og þar höfum við
sannfærst um að hann er áberandi
bestur sólþurrkaður.“
Viðskiptavinir Freyju verða hins
vegar að bíða til haustmánaða áður
en þeir geta keypt einn þurrkað-
an.
Guðmundur Gísli rær til fiskjar
á morgnana og kemur með aflann
beint í Freyju. „Ég er ansi viss um
að þeir við Miðjarðarhafið myndu
nú biðja okkur Íslendinga um að
tileinka okkur þolinmæðina aftur
við saltfisksvinnsluna ef þeir
fengju aftur fisk sem er almenni-
lega þurrkaður,“ segir hann. „En
við þurfum alltaf að vera að drífa
okkur svo svakalega.“
jse@frettabladid.is
Sólþurrka saltfisk í Kópavogi
MEÐ SALTFISKINN Á PLANINU Linda er hér fremst og breiðir úr saltfisknum. Fyrir
aftan hana heldur Valgerður Jónsdóttir á einum og Unnur Sif Erlendsdóttir er að
koma öðrum betur fyrir. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
■ Jörfagleði var vikivakadansleikur
sem haldinn
var árlega á
jólum í Hauka-
dal í Dalasýslu
seint á 17. öld
og snemma
á 18. öld.
Ákveðin tegund
af veislum
sem haldnar
voru á Íslandi fram á 18. öld var
kölluð gleði. Stórhöfðingjar héldu
vanalega gleði og buðu upp á
mikið magn af mat og áfeng-
um drykkjum. Gat gleðin staðið
dögum saman. Slíkar veislur voru
bannaðar á 18. öld af yfirvöldum,
þar sem þeim fylgdi oft kynferðis-
legt lauslæti, sem ósæmilegt þótti.
JÖRFAGLEÐI:
GLEÐI BÖNNUÐ Á 18. ÖLD
„Ég er að vinna hjá fyrirtæki sem heitir Betware,
sem er hugbúnaðarfyrirtæki og vinnur að lausn-
um fyrir lotterí, leiki og svoleiðis,“
segir Þorsteinn Hreggviðsson
margmiðlunarhönnuður,
oft nefndur Þossi.
Þossi starfaði um langt
skeið á útvarpsstöðinni X-
inu, stýrði meðal annars
hinum stórskemmtilegu
þáttum Í klóm drekans
og Helstirninu, ásamt Sig-
mari Guðmundssyni, sem nú
starfar í Kastljósi Sjónvarps-
ins.
Þossi ákvað hins
vegar að söðla um og
fór til Danmerkur þar
sem hann lagði fyrir
sig margmiðlunarhönnun og fjölmiðlafræði.
Þossi sneri þó aftur á X-ið fyrir stuttu, en þá
sem sumarafleysingarmaður.
„Þá var ég orðinn mjög blankur svo ég varð
að gera það. Það var samt mikið fjör. Mér
finnst alltaf gaman að vera í útvarpi,“ segir
Þossi og hlær. Hann útilokar ekki endurkomu
sína í útvarp. „Þá yrði það þó að vera eitthvað
sérstaklega áhugavert og á mínum forsendum.
Ekki bara til að fá salt í grautinn,“ segir Þossi og
bætir við: „Ég segi það allavega núna.“
Þossi segist þessa stundina vera að vinna
að þróunarverkefni hjá Betware. „Sem er víst
frekar sjaldgæft núna hjá íslenskum fyrirtækj-
um skilst mér. Annars er kreppan bara hress.
Hún er gjörsamlega að taka úr mér allan mátt.
Það gengur hins vegar súpervel hjá okkur. Ég er
að búa til gjaldeyri á hverjum degi, svona eins
og í fiskinum.“
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? ÞORSTEINN HREGGVIÐSSON MARGMIÐLUNARHÖNNUÐUR
Skapar gjaldeyri á hverjum degi
„Því miður hafa allar aðgerðir í sam-
bandi við þessi mál verið afar lengi
á leiðinni,“ segir
Valdimar Örn
Flygenring, leikari,
guðfræðinemi
og málari, um
aðgerðir sérstaks
saksóknara vegna
bankahrunsins í
síðustu viku.
„Skynsamlegast
hefði verið að fá
alþjóðlega lögreglu til að rannsaka
málið strax í upphafi. Það er alveg
ljóst að hér hefur verið framið stór-
kostlegasta bankarán sögunnar. Þess-
ir menn ganga hér um göturnar eins
og ekkert sé og monta sig jafnvel af
þessu. Þetta eru meira og minna allt
landráðamenn sem ættu fyrir löngu
að vera komnir bak við lás og slá.
SJÓNARHÓLL
AÐGERÐIR SÉRSTAKS SAKSÓKNARA
Bankarán
VALDIMAR ÖRN
FLYGENRING
nær og fjær