Fréttablaðið - 08.06.2009, Page 16

Fréttablaðið - 08.06.2009, Page 16
 8. júní 2009 MÁNUDAGUR2 GÓÐI HIRÐIRINN var opnaður á ný í síðustu viku eftir nokkurra daga skipulagsbreytingar. Aðgengi viðskiptavina að versluninni var bætt og reynt var að ná fram betri nýtingu á húsnæðinu. Þá var kaffihorn verslunarinnar tekið niður. www.sorpa.is Arne Jacobsen hann- aði stólinn Svaninn árið 1958 fyrir Royal hótelið í Kaupmanna- höfn. Af sama tilefni hannaði hann Eggið, sem svo margir þekkja. Báðir stólarnir eru enn í dag fram- leiddir af húsgagna- framleiðandanum Fritz Hansen. Hvar endar hönnun og hvar hefst listin? Charles Eames, einn áhrifa- mesti hönnuður miðrar síðustu aldar sagði: „Hönnun er túlkun á tilgangi. Kannski (ef hún er nógu góð) mun hún síðar verða álitin list.“ Ungir hönnuðir nútímans líta á málin á praktískari hátt. Hinn spænski Jaime Hayon telur að ekki séu lengur skýr mörk milli hönnunar og listar. Nýlegasta svar- ið við þessari eilífu spurningu er svokölluð hönnunarlist. Dæmi um slíka list er að finna á sýningu í Forum Kultur und Wirtschaft í Düsseldorf í Þýskalandi sem stendur yfir til 5. júlí. Þar eru sýnd verk eftir bæði hönnuði og listamenn á borð við Ron Arad, Zaha Hadid, Marc Newson, Rolf Sachs, Ettore Sottsass, Haim Steinbach, Marcel Wanders auk margra annarra. Nánar er hægt að fræðast um sýninguna á www.nrw-forum.de Mörk listar og hönnunar Hönnunarlist er viðfangsefni sýningar sem haldin er í Düsseldorf í Þýskalandi dagana 23. maí til 5. júlí 2009. Þar eru til sýnis verk heimsþekktra hönnuða og listamanna. List eða skilrúm? Verk eftir Ronan & Erwan Bouroullec. www.fritzhansen. com Stóll úr Plútóhund- um eftir Humberto & Fernando Campana. Litríkur stóll eftir Humberto & Fernando Campana. Sérstakur kassalaga stóll sem málaður er á gamall stóll eftir Richard Artschwager. Gestir virða fyrir sér listaverk og hönnun. Borgartúni 25 | Reykjavík | Sími 570 4000 | raudakrosshusid@redcross.is | www.raudakrosshusid.is | Opið virka daga kl. 12-17 Ókeypis námskeið og ráðgjöf Föstudagurinn 12. júní Mánudagurinn 8. júní Þriðjudagurinn 9. júní Miðvikudagurinn 10. júní Fimmtudagurinn 11. júní Einkatímar í söng - Fullt. Tími: 12.00-14.00. Að finna eigin styrk - Fjallað verður um áföll og þá þætti sem geta aukið á tilfinningalega upplifun. Einnig verður fjallað um bjargráð og stuðning við þá sem eiga um sárt að binda. Námskeiðið er blanda af fræðslu og æfingum sem geta hjálpað þér að finna eigin styrk. Tími: 13.00-15.30 Áhugasviðskönnun - Ef þú hefur ákveðið starf eða nám í huga, getur könnunin staðfest hugmyndir þínar. Skráning nauðsynleg. Tími: 13.00-14.30. Kvikmyndirnar og lífið - Skoðuð verða trúar- og siðferðis- myndbrot í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Spjallað um hvernig nota má kvikmyndir, sjónvarpsþætti og tónlistar- myndbönd til að ræða um stórar spurningar á borð við: Hver erum við? Fyrir hvað stöndum við? Hvert stefnum við? Tími: 15.30-16.10. Qi – Gong - Qi – Gong - Æfingar sem hjálpa fólki að afla, varðveita og dreifa orku um líkamann.Tími: 16.10-17.00. Einkatímar í söng - Fullt. Tími: 12.00-14.00. Nokkrir góðir dagar í Japan....á íslandi - Viltu ferðast um Japan í huganum? Toshiki Toma fjallar um sérkenni japansks samfélags, siðvenjur og hegðun, japanska tungu og margt fleira. Tími: 13.00-14.00. Bingó - Veglegir vinningar í boði. Kaffi á könnunni og vöflur í boði hússins. Tími: 14.00-15.30. Hláturjóga - Viltu losa um spennu og fylla lífið af hlátri og gleði? Tími: 15.30-16.30. Franska og frönsk menning - fullt. Tími: 12.15-14.15. Föndur, skrapp myndaalbúm - Lærðu að búa til skrautleg og skemmtileg albúm fyrir uppáhalds myndirnar þínar. Tími: 13.00-15.00 Hugmyndafræði góðra húsráða - Langar þig að skilja betur þín eigin fjármál og læra að skoða þau á gagnrýnin hátt? Fjallað verður um nokkur lykilhugtök, heildarmyndina og þann veruleika sem fólk býr við. Tími: 14.30-15.30. Jóga - Mæta í þægilegum fatnaði. Tími: 15.00-16.00. Franska og frönsk menning - fullt. Tími: 12.15-14.15. Prjónahópur - Allir velkomnir, bæði þeir sem vilja læra að prjóna og þeir sem vilja deila reynslu sinni og hugmyndum með öðrum. Tími: 13.00-15.00. Að breyta lifnaðarháttum - Fjallað verður um árangurs- ríkar leiðir við að breyta hegðunarmynstri sínu, algengar hindranir í breytingarferlinu og leiðir til að homast hjá því að leita aftur í sama farið. Tími: 14.15-15.10. Gítarnámskeið fyrir byrjendur - Fimmti hluti af sex. Áframhaldandi æfingar og nú erum við byrjuð að spila lög! - Úmbarassa. Tími: 15.00-16.00. Veisluhald í heimahúsi - Hér verður fjallað um nokkur grundvallaratriði við undirbúning veislu og bent á hagkvæmar leiðir. Tími: 12.30-14.30. Tölvuaðstoð - Komdu og fáðu persónulega aðstoð. Tölvur á staðnum. Tími: 13.30-15.30. Bókaklúbbur - Spjallað verður um bókina Leiðin til lífs- hamingju eftir Dalai Lama. Tími: 14.00-15.00. Englar og djöflar, leynihreyfingar og samsæris- kenningar - Sr. Þórhallur Heimisson ræðir kvikmyndina Engla og djöfla, samsæriskenningar eins og Illuminati, New World Order, Frímúrara, töluna 666 ofl. Tími: 14.30-16.00. Herrasandalar úr leðri í úrvali. Mjúkir og þægilegir, margar gerðir Stærðir 40 - 47 Verð: 7.550.- til 13.450.- ÁSKORUN – 12 VIKUR Við leitum að 20 aðilum sem er alvara með að létta sig ! Þátttökugjald er aðeins 5.000,- fyrir allar 12 vikurnar. Þegar 20 þátttakendur hafa skráð sig er potturinn orðinn spennandi ! Þá verða 70.000,- greidd út í verðlaunafé fyrir 3 efstu sætin: 1. sæti = 50% af pottinum = 35.000,- 2. sæti = 30% af pottinum = 21.000,- 3. sæti = 20% af pottinum = 14.000,- Verðlaunafé getur aukist ef þáttakendur verða fl eiri. Í hverri viku er vigtun, mæling og persónuleg ráðgjöf. Markviss fræðsla um heilbrigðan lífsstíl og hvataverðlaun í hverri viku. Árangur er mældur sem hlutfall af heildarþyngd. Viltu vita meira ? Skráning og fyrirspurnir sendist á jhelga@visir.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.