Fréttablaðið - 08.06.2009, Qupperneq 28
16 8. júní 2009 MÁNUDAGUR
BONNIE TYLER ER 58 ÁRA Í DAG.
„Við skemmtum okkur allan
daginn. Svo fer ég í háttinn og
vakna morguninn eftir og geri
allt aftur. Ég elska líf mitt.“
Bonnie Tyler er söngkona frá
Wales sem er hvað þekktust fyrir
lag sitt Total Eclipse of the Heart
frá 1983.
Ives W. McGaffey fékk
einkaleyfi fyrir fyrstu ryk-
sugunni þennan dag fyrir
140 árum. Þetta var fyrsta
einkaleyfið sem veitt var
fyrir tæki sem hægt var að
nota til að þrífa teppi.
Ryksugan var létt en
það var erfitt að nota
hana vegna þess að það
þurfti að snúa sveif á sama tíma og henni var ýtt um gólfið. Verð
þessarar fyrstu ryksugu var 25 dalir, sem þótti hátt í þá daga. Erf-
itt er að segja til um það í dag hversu vinsæl fyrsta ryksugan var
vegna þess að flestar þeirra voru seldar í Chicago og Boston í
Bandaríkjunum og líklegt er að margar þeirra hafi orðið eldi að
bráð í hinum mikla bruna í Chicago árið 1871.
McGaffey var einn af mörgum nítjándu aldar uppfinninga-
mönnum sem reyndu að þróa ryksugur. Fyrsta einkaleyfið fyrir
rafmagnsryksugu var veitt Corianne Dufour árið 1900.
ÞETTA GERÐIST: 8. JÚNÍ 1869
Einkaleyfi fyrir ryksugu
Gigtarmiðstöðin fagnaði tuttugu og
fimm ára afmæli sínu síðasta föstu-
dag og hélt upp á það með opnu húsi.
„Hingað komu skemmtilegir fyrirles-
arar og tæplega tvö hundruð manns,“
segir Emil Thoroddsen, framkvæmda-
stjóri Gigtarfélags Íslands. „Björtustu
vonir okkar voru að á milli 120 og 150
manns myndu koma. Þannig að hér var
allt fullt.“
Emil segir að í upphafi hafi verið
ákveðið að setja Gigtarmiðstöðina
á stofn vegna þess að úrræði skorti
fyrir gigtarfólk, eins og hann orðar
það. „Það vantaði sjúkra- og iðjuþjálf-
un á sínum tíma. Síðan hefur bæst við
fræðsla og ráðgjöf.“
Þegar Emil er inntur eftir því hvort
margt hafi breyst í starfsemi Gigtar-
miðstöðvarinnar frá upphafi segir
hann þá svo sannarlega vera raunina.
„Við byrjuðum með nokkurs konar
endurhæfingarmiðstöð sem var hvort
tveggja sjúkraþjálfun og iðjuþjálfun,
með skoti fyrir félagið fyrir fundi þess
og fræðslu. Eftir norræna gigtarárið
árið 1992 verður nokkur breyting. Við
verðum meira sjúklingafélag og tvö-
földum húsnæðið. Þar hreiðrar um sig
félagsstarf, fræðsla og ráðgjöf er stór-
aukin og við förum að skipuleggja leik-
fimi fyrir gigtarfólk, bæði í sundlaug
og sal,“ útskýrir Emil.
„Norræna gigtarárið lagði nokkra
áherslu á hreyfingu. Við byrjuðum á að
skipuleggja leikfimina annars staðar
en nú er hún hér í húsinu og í sund-
laug hjá Sjálfsbjörgu. Fyrir árið 1992
snerist starfsemin mikið í kringum
endurhæfinguna og að bæta meðferð
á ýmsum stöðum,“ segir Emil en bætir
við að eftir 1992 sé starfsemin meira
miðuð út frá sjúklingunum.
Emil segir að skipta megi sögu
Gigtar félags Íslands í þrennt til útskýr-
ingar. „Fram að því að félagið stofnaði
endurhæfingarstöðina þá var það að
beita sér fyrir því að bæta greiningu
á gigt með því að safna fyrir tækjum
á Landspítalann og fleiri staði. Svo er
keyrt á endurhæfingarstöðina vegna
þess að það skorti úrræði fyrir gigtar-
fólk. Næstu árin fer kraftur í að keyra
endurhæfingarstöðina áfram. Þriðja
skrefið verður í kringum árið 1992 en
þá verður starfsemin meira á forsend-
um sjúklinga og alfarið eftir það,“ upp-
lýsir Emil en segir að þó hafi sjúkling-
urinn áður verið inni í myndinni.
Hvernig er starfsemi Gigtarmið-
stöðvarinnar í dag? „Við rekum áfram
endurhæfingarstöðina vegna þess að
við teljum þörf fyrir sérstaka viðhalds-
þjálfun þó hún sé að verða mjög góð hjá
mjög mörgum,“ segir Emil og bætir við
að iðjuþjálfun Gigtarmiðstöðvarinnar
sé sérstök vegna þess að hún hefur
lengi verið eina göngudeildin fyrir
gigtarfólk í iðjuþjálfun. „Við leggjum
líka mikla áherslu á fræðslu, ráðgjöf
og leiðbeiningar til gigtarfólks.“
martaf@frettabladid.is
GIGTARMIÐSTÖÐIN: ER TUTTUGU OG FIMM ÁRA
Fullt út úr dyrum á afmælinu
FRAMKVÆMDASTJÓRINN Einar segir mikið hafa breyst á síðustu 25 árum í starfsemi Gigtarmiðstöðvarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
timamot@frettabladid.is
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför móður okkar, tengdamóð-
ur, ömmu og langömmu,
Sigríðar Eymundsdóttur
sjúkraliða, frá Flögu í Skriðdal,
sem lést 14. maí sl.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengda-
móðir, amma og langamma,
Súsanna Kristín
Stefánsdóttir
Lækjasmára 6, Kópavogi,
lést í Sunnuhlíð Kópavogi mánudaginn 1. júní. Útförin
fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn
10. júní kl. 13.00.
Páll Ólason
Þuríður Pálsdóttir Knútur Kristinsson
Súsanna Kristín Knútsdóttir Auðunn Jónsson
Hólmfríður Knútsdóttir Ingólfur Finnbogason
Páll Óli Knútsson
Knútur Þór og Agnes Lind Auðunsbörn.
Kæra systir okkar og mágkona,
Eyrún Ottadóttir
lést á Sahlgrenska sjúkrahúsinu í Gautaborg sunnu-
daginn 26. apríl. Útförin fer fram frá Fossvogskapellu
þriðjudaginn 9. júní kl. 15.00.
Guðríður Ottadóttir Lúðvík Eiðsson
Anna Ottadóttir Hilmar Smith
Auður Ottadóttir Ágúst Bjarnason
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur hlýhug og vináttu við andlát og
útför elskulegs föður míns og sonar,
Árna Ragnars Árnasonar
Þrastargötu 8, Reykjavík.
Þeir sem vildu minnast hans er bent á reikning Elmars
Freys, kt. 250797-2579, banki 0115-18-750663.
Elmar Freyr Árnason
Ingigerður R. Árnadóttir.
Frænka okkar og mágkona,
Kristín Albertsdóttir
áður til heimilis að Eiðsvallagötu 28,
Akureyri,
lést sunnudaginn 31. maí. Útför hennar fer fram frá
Höfðakapellu fimmtudaginn 11. júní kl. 13.30.
Candice Albertsson
Karolina Albertsson
Jon Albertsson
Dolores Albertsson
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
sonur, bróðir og frændi,
Þórður Viðar Viðarsson
Breiðavangi 57, Hafnarfirði,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut
fimmtudaginn 28. maí. Útför hans verður gerð frá
Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 9. júní kl. 15.00.
Sigurlína Ellertsdóttir
Viðar, Elísa Hildur og Arnar
Viðar Þórðarson Erla Gestsdóttir
Birgir Viðarsson og fjölskylda
Guðrún Ruth Viðarsdóttir og fjölskylda
Alúðarþakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og vináttu við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður, ömmu, lang-
ömmu og kærrar vinkonu,
Sigrúnar Oddgeirsdóttur
Hæðargarði 35, áður Skipasundi 11,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Fríðuhúss,
Foldarbæjar og líknardeildar Landspítala Landakoti,
fyrir hlýja og kærleiksríka umönnun.
Ingvar A. Guðnason Þórunn Guðmundsdóttir
Gunnar Guðnason Sigríður Davíðsdóttir
Haukur Geir Guðnason Anna Sigríður Guðmundsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn, Theódór Halldórsson.
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.