Fréttablaðið - 08.06.2009, Blaðsíða 34
22 8. júní 2009 MÁNUDAGUR
sport@frettabladid.is
Upplifið nýjasta S
ims leikinn sem e
r mun
stærri, opnari og
fjölbreyttari en á
ður!
SENDU SM
S EST SIMS
Á NÚMERIÐ
1900
- ÞÚ GÆ
TIR UNNÐ E
INTAK!
Fullt af aukavinni
ngum: Tölvuleikir
,
DVD myndir, g
os og margt fleira
!
KOMIN
N Í
ELKO!
9. HVER VINNUR!
199 kr/skeytið. Vinningar afhendir í ELKO Lindum. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb.
Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður. 8
Besti leikmaður íslenska liðsins og sá til þess að Ísland var ekki niðurlægt í fyrri hálfleik. Gat lítið gert við
mörkunum. Virkaði á köflum óöruggur í aðgerðum en komst upp með það. Átti margar frábærar vörslur
í leiknum.
Grétar Rafn Steinsson, hægri bakvörður. 5
Óvenju þunnt framlag frá Grétari. Lét leika sig á stundum grátt í fyrri hálfleik en óx ásmegin og var betri í
þeim síðari. Vantaði miklu meira framlag frá honum í sókninni og ferðirnar upp kantinn of fáar.
Hermann Hreiðarsson, miðvörður. 7
Ekki sérstakur í fyrri hálfleik, líkt og aðrir, en steig heldur betur upp í síðari hálfleik. Gekk þá fram með
góðu fordæmi, lét finna fyrir sér, barði frá sér og barði kjark í brjóst félaga sinna.
Kristján Örn Sigurðsson, miðvörður. 7
Var magnaður í síðari hálfleik eins og Hermann. Stöðvaði fjölmargar sóknir og hollensku strákarnir fengu
ekkert ókeypis hjá honum og Hermanni í seinni hálfleiknum. Skoraði svo gott mark í lokin.
Indriði Sigurðsson, vinstri bakvörður. 5
Óx ásmegin eins og öðrum leikmönnum. Indriði þekkir sín takmörk og er ekki að gera hluti sem hann
ræður ekki við. Varðist vel í síðari hálfleik en hefði mátt styðja betur við sóknina eins og Grétar enda
leikmaður með góðar spyrnur.
Stefán Gíslason, tengiliður. 3
Hægur og ekki nógu grimmur. Enn og aftur virkaði hann í það minnsta númeri of lítill fyrir landsleiki.
Hefði mátt fara fyrr af velli.
Helgi Valur Daníelsson, tengiliður. 3
Algjör farþegi í fyrri hálfleik og var réttilega tekinn af velli í hálfleik. Náði ekki að fylgja eftir góðum
síðasta leik hjá sér, því miður.
Pálmi Rafn Pálmason, tengiliður 4
Byrjaði á miðjunni en fór svo fram. Þar var hann ákaflega einmana oft á tíðum. Mátti ekki við margnum
og svo vantaði kannski gæðin líka. Barðist þó vel allan tímann og gerði það sem hann gat.
Bjarni Ólafur Eiríksson, vinstri kantmaður. 6
Stóð sig vel í nýrri stöðu og kom eflaust mörgum á óvart. Var áræðinn, duglegur og reyndi að búa eitt-
hvað til, ólíkt flestum öðrum. Það gekk á stundum ágætlega. Einn besti leikur hans með landsliðinu.
Birkir Már Sævarsson, hægri kantmaður. 2
Áhorfandi með besta sætið á vellinum. Var átakanlega slakur og tók nákvæmlega engan þátt í leiknum.
Ótrúlegt að hann hafi fengið 90 mínútur. Hefur ekki enn sýnt að hann eigi skilið sæti í byrjunarliðinu.
Eiður Smári Guðjohnsen, framherji. 6
Sem fyrr gerðist ekkert í sóknarleik íslenska liðsins á meðan hann var frammi. Bestu sóknartilburðir
leiksins hjá Íslandi komu þegar hann fór inn á miðjuna þar sem hann á að vera.
VARAMENN:
Brynjar Björn Gunnarsson kom inn á fyrir Helga Val á 46. mínútu. 7
Kom með mikinn kraft á miðjuna og veitti ekki af þar sem miðjumenn liðsins voru í hlutverki áhorfenda
í fyrri hálfleik. Spilaði virkilega vel og hlýtur að vera í byrjunarliðinu á miðvikudag.
Aron Einar Gunnarsson kom inn á fyrir Stefán á 68. mínútu. 6
Kom inn fyrir meiddan Stefán sem hefði átt að fara fyrr af velli. Miklu meiri kraftur í honum en Stefáni og
hann skilaði meira á sínum tíma en Stefán á 68 mínútum. Íslenska liðið þarf líka á innköstum hans að
halda enda kemur lítið út úr sóknarleiknum og föstu leikatriðin því liðinu mikilvæg.
Arnór Smárason kom inn fyrir Bjarna Ólaf á 76. mínútu. -
FRAMMISTAÐA LEIKMANNA
Laugardalsv., áhorf.: 10.000
Ísland Holland
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 4–15 (2–9)
Varin skot Gunnleifur 5 – Martin 1
Horn 2–7
Aukaspyrnur fengnar 10–16
Rangstöður 2–3
0-1 Nigel de Jong (9.)
0-2 Mark van Bommel (16.)
1-2 Kristján Örn Sigurðsson (88.)
1-2
Mike Dean (7)
1. RIÐILL
Svíþjóð-Danmörk 0-1
- Thomas Kahlenberg.
Albanía-Portúgal 1-2
Erjon Bogdani - Hugo Almeida, Bruno Alves.
1. Danmörk 16, 2. Ungverjaland 13, 3. Portúgal
9, 4. Svíþóð 6, 5. Albanía 6, 6. Malta 1.
3. RIÐILL
Slóvakía-San Marínó 7-0
1. Slóvakía 15, 2. Norður-Írland 13, 3. Pólland 10,
4. Tékkland 8, 5. Slóvenía 8, 6. San Marínó 0.
4. RIÐILL
Aserbaijan-Wales 0-1
- David Edwards.
Finnland-Liechtenstein 2-1
Mikael Forssell, Jonatan Johansson - Mario Frick.
1. Þýskaland 16, 2. Rússland 12, 3. Finnland 10,
4. Wales 9, 5. Aserbaijan 1, 6. Liechtenstein 1.
6. RIÐILL
Kasakstan-England 0-4
- Gareth Barry, Emile Heskey, Wayne Rooney,
Frank Lampard (víti).
Króatía-Úkraína 2-2
Mladen Petric, Luka Modric - Andriy Shevchenko,
Oleksiy Gai.
Hvíta-Rússland-Andorra 5-1
1. England 18, 2. Króatía 11, 3. Hvíta Rússland 9,
4. Úkraína 8, 5. Kasakstan 3, 6. Andorra 0.
7. RIÐILL
Litháen-Rúmenía 0-1
Serbía-Austurríki 1-0
1. Serbía 15, 2. Frakkland 10, 3. Litháen 9, 4.
Austurríki 7, 5. Rúmenía 7, 6. Færeyjar 1.
8. RIÐILL
Búlgaría-Írland 1-1
Dimitar Telkiyski - Richard Dunne.
Kýpur-Svartfjallaland 2-2
1. Ítalía 14, 2. Írland 13, 3. Búlgaría 8, 4. Kýpur 5,
5. Svartfjallaland 4, 6. Georgía 3.
9. RIÐILL
Ísland-Holland 1-2
Makedónía-Noregur 0-0
1. Holland 18, 2. Skotland 7, 3. Ísland 4, 4. Make-
dónía 4, 5. Noregur 3.
ÚRSLIT Í UNDANKEPPNI HM 2010
FÓTBOLTI Holland tryggði sér far-
seðilinn á HM í Suður-Afríku
næsta sumar með sigri á Íslandi,
1-2, á Laugardalsvelli á laugar-
dag. Mörk hollenska liðsins komu á
fyrstu sextán mínútum leiksins en
Kristján Örn Sigurðsson klóraði í
bakkann fyrir Ísland undir lokin.
Fótboltinn sem Hollendingar
spiluðu í fyrri hálfleik er einhver
sá allra flottasti sem undirritaður
hefur séð á Laugardalsvelli. Hol-
lendingar hreinlega léku sér að
íslenska liðinu og sundurspiluðu
það. Holland átti ellefu skot í hálf-
leiknum en Ísland aðeins eitt. Sú
tölfræði segir meira en mörg orð
um gang mála í hálfleiknum.
Nigel de Jong kom Hollandi yfir
eftir níu mínútna leik með skalla
af stuttu færi. Þar klikkaði varnar-
leikurinn og talningin í vörninni og
var enginn að dekka de Jong sem
þakkaði fyrir sig. Ódýrt mark.
Síðara mark Hollendinga var
einnig aðeins of ódýrt. Þá fékk
Mark van Bommel allt of mikinn
tíma til að athafna sig fyrir utan
teig áður en hann skaut boltanum
í markið. Að sama skapi fóru Hol-
lendingar illa með sín bestu færi.
Þá skutu þeir framhjá, í stöng eða
létu Gunnleif verja frá sér en hann
bjargaði oft vel. Holland hefði
hæglega getað leitt með fjórum til
fimm mörkum í hálfleik.
Það var allt annað íslenskt lið
sem spilaði síðari hálfleikinn. Bar-
áttan og grimmdin loksins til stað-
ar og ljóst að menn ætluðu ekki að
láta niðurlægja sig. Munaði þar
miklu um að fá Brynjar á miðjuna
sem var handónýt í fyrri hálfleik.
Menn fóru að berja frá sér og Hol-
lendingar, sem reyndar lækkuðu
sig um nokkra gíra, sköpuðu afar
lítið í síðari hálfleik. Íslenska liðið
gerði það ekki heldur þó svo að
betur hafi gengið að eiga við gest-
ina úti á vellinum. Liðið uppskar
þó mark eftir horn undir lokin.
Nær komst Ísland ekki.
Það er að sjálfsögðu ekki hægt
að kvarta mikið yfir því að hafa
tapað með einu marki gegn frá-
bæru liði eins og Hollandi. Leik-
ur liðsins í fyrri hálfleik var samt
langt frá því að vera ásættanlegur,
sama við hvaða lið er spilað. Það
er ekki boðlegt að byrja landsleik
í síðari hálfleik.
Uppstillingin vakti nokkra
athygli þar sem bakverðir voru í
báðum kantstöðum. Það skilaði lið-
inu lítilli ógnun fram á við og hefði
mátt bregðast fyrr við þar. Reynd-
ar var skrítið að betri kantmaður-
inn var tekinn af velli.
Það er síðan algjörlega óskilj-
anlegt af hverju Eiður Smári er
settur fremst. Það hefur mar-
goft sýnt sig að það gerist ekk-
ert í sóknarleik Íslands með hann
einan frammi. Það er ekki fyrr en
hann dregur sig til baka sem eitt-
hvað fer að gerast og þar á hann að
sjálfsögðu að spila.
henry@frettabladid.is
Svart og hvítt hjá Íslandi
Íslenska knattspyrnulandsliðið var tekið í kennslustund í knattspyrnu í fyrri
hálfleik á Laugardalsvelli gegn Hollandi. Gunnleifur Gunnleifsson bjargaði
liðinu þá frá niðurlægingu. Allt annað var að sjá til liðsins í síðari hálfleik.
LEIKURINN AFGREIDDUR Mark van Bommel skorar hér síðara mark Hollands án þess að góður markvörður Íslands, Gunnleifur
Gunnleifsson, fái rönd við reist. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
> Fimm nýir með til Makedóníu
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu,
þurfti að kalla á fimm nýja leikmenn í hópinn fyrir leik-
inn gegn Makedóníu á miðvikudag. Her-
mann Hreiðarsson, Indriði Sigurðsson og
Aron Einar Gunnarsson eru í leikbanni.
Eiður Smári Guðjohnsen er meiddur
og Theodór Elmar Bjarnason dró sig
út úr hópnum. Í þeirra stað voru
valdir Jóhann Berg Guðmundsson,
Hjálmar Jónsson, Guðmundur
Steinarsson, Davíð Þór Viðarsson
og Rúrik Gíslason.
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari viðurkenndi eftir ósigur Íslands
gegn Hollandi að íslenska liðið hefði farið full geyst af stað.
„Ég tók áhættu með því að þykjast fara hærra á þá en þeir
sundurspiluðu okkur fram og til baka. Það hefði svo sem ekki
skipt miklu máli við hverja þeir voru að spila. En við gerðum
þeim svo sannarlega ekki erfitt fyrir,“ sagði Ólafur eftir leik-
inn.
Ólafur ákvað að stilla upp Eiði Smára Guðjohnsen í
fremstu víglínu en ekki í frjálsu hlutverki á miðjunni eins
og oft áður.
„Ég sagði um daginn að ég ætlaði að reyna að
færa Eið aftar á völlinn. Ég stillti honum svo upp sem
framherja, sem var ekki í samræmi við það sem ég
sagði. Auðvitað þurfum við að koma honum sem mest
í boltann en okkur skortir enn þann framherja sem við
höfum verið að leita að,“ sagði Ólafur og viðurkenndi
að besta staða Eiðs væri á miðjum vellinum. Því er
Eiður sammála.
„Ég spila þar sem þjálfarinn segir mér að spila,“ sagði
Eiður um málið. „Ég ræð engu um það. En það gaf augaleið að
þegar ég fór að færa mig aftar á völlinn gekk betur að fá boltann
og koma mér meira inn í spilið. Þessar fáu skyndisóknir sem
við fengum komu ef til vill af því að ég var að fá boltann og
koma einhverju af stað,“ sagði Eiður Smári.
Ólafur skýrði einnig ástæðuna fyrir því að Bjarni Ólafur
Eiríksson var á vinstri kantinum en Indriði Sigurðsson í
bakverðinum – öfugt við leikstöður þeirra í leiknum í
Skotlandi fyrr á árinu. Hann sagðist hafa verið búinn
að ákveða að láta Indriða spila í stöðu bakvarðar.
„Emil hefði spilað í þessum leik ef hann hefði
ekki meiðst. En ég var samt alls ekki ósáttur við
frammistöðu þeirra Bjarna og Indriða í leiknum.
Ég var svo sem ekki ánægður með liðið allt í fyrri
hálfleik en á heildina litið var þetta í lagi,“ sagði
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari, sem nú
heldur til Makedóníu með strákana sína þar sem
þeirra bíður erfitt verkefni án lykilmanna eins og
Eiðs Smára og Hermanns Hreiðarssonar.
ÓLAFUR JÓHANNESSON OG EIÐUR SMÁRI GUÐJOHNSEN: ERFITT AÐ SPILA GEGN HOLLANDI
Þeir sundurspiluðu okkur fram og til baka