Fréttablaðið - 11.06.2009, Qupperneq 6
6 11. júní 2009 FIMMTUDAGUR
Ný lausn í heimabanka Byrs
Það er einfaldara en þú heldur!
Einföld aðgerð í heimabanka Byrs þér að kostnaðarlausu
Stakar eða fastar mánaðarlegar greiðslur
Ekkert uppgreiðslugjald á íslenskum lánum undir 50 m.kr. hjá Byr
Sjáðu hvað þú sparar á byr.is
Nýttu þér persónulega þjónustu
og faglega ráðgjöf í sparisjóðnum
Milljóna sparnaður með 10.000 kr.
aukagreiðslu á mánuði
Tökum sem dæmi 11 milljón króna verð-
tryggt íbúðalán sem tekið var í septem-
ber 2007. Með því að greiða 10.000
krónur aukalega á mánuði, sparast
10.671.376 krónur á lánstímanum.
Miðað er við 6% vexti og 5% verðbólgu á
40 ára lánstíma. Aukagreiðslan bætist við
mánaðarlega afborgun og lækkar
höfuðstól lánsins. Höfuðstóllinn lækkar
hraðar en upphaflegar afborganir gera ráð
fyrir og við það sparast milljónir í
vaxtakostnaði og verðbótum.
Þú getur
sparað
milljooo.ooonir
með niðurgreiðslu
íslenskra lána!
-það er fjárhagsleg heilsa!
90
80
100
70
60
50
40
30
20
10
0
Fyrir
104
93,5
Eftir
Fj
ár
hæ
ði
r
í m
ill
jó
n
IS
K
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur dæmt
tvær konur og karlmann til að
sæta áfram gæsluvarðhaldi vegna
líkamsárásar á Grettisgötu í byrj-
un júní. Til viðbótar sitja þrír
karlmenn í gæsluvarðhaldi.
Þegar lögregla kom á vettvang
var fyrir maður sem lá hreyfing-
arlaus í rúmi. Hann var alblóðug-
ur og andlit hans bólgið og marið.
Ekki var að sjá blóð í rúmfötun-
um svo talið er að maðurinn hafi
verið lagður þar eftir að honum
voru veittir áverkar.
Á vettvangi fann lögregla blóð-
uga inniskó undir laki í rusla-
tunnu, merkta tilteknu hóteli sem
önnur kvennanna vann á. Þá voru
víðs vegar blóðblettir á gangi sem
liggur að herberginu sem maður-
inn fannst í. Í herberginu sjálfu
fannst meðal annars blóðugt júdó-
eða karatebelti í vaskinum.
Við yfirheyrslur kom fram að
einn þeirra sem eru í gæsluvarð-
haldi hafi sagt vitni að hann hefði
barið manninn því hann hefði
stolið tuttugu þúsund krónum af
debetkorti sínu.
Sá sem fyrir árásinni varð slas-
aðist mjög mikið. Við læknisskoð-
un sást blæðing inn á heila og
heilahimnu, auk þess sem maður-
inn var með heilabjúg.
Fólkið er allt frá Litháen.
- jss
Áfram í gæsluvarðhaldi vegna líkamsárásar á Grettisgötu:
Blóðugir inniskór undir laki
GRETTISGATA 43 Maðurinn sem ráðist
var á hafði búið í húsinu en var fluttur
þaðan.
STANGVEIÐI „Það er með ólíkind-
um að fólk skuli leggjast svo lágt
að stela aflanum frá öðrum,“ segir
Stefán Árnason sem um síðustu
helgi var ásamt fimm ára syni
sinum við silungsveiðar í Hítar-
vatni.
Stefán og sonur hans, auk vinar
Stefáns, dvöldu í tjaldi við Hít-
arvatn á Mýrum og veiddu rúm-
lega þrjátíu silunga yfir helgina.
„Við veiddum meira en flestir og
geymdum aflann í sterkum sil-
ungapokum út í læk,“ segir Stefán
sem á sunnudagsmorguninn sendi
Nökkvi litla son sinn að ná í aflann
á meðan hann sjálfur var að ganga
frá viðleguútbúnaðinum.
„Ég sé að hann var búinn að
ná pokunum upp úr og var eitt-
hvað að bisa við þá og að skima í
kringum sig, greinilega að leita
að einhverju. Ég fór til hans eftir
nokkra stund og sá þá að pokarnir
voru tómir og allir fiskarnir nema
minnsti titturinn horfnir,“ lýsir
Stefán sem kveður það öruggt að
þar hafi veiðiþjófar verið að verki
því að pokarnir hafi verið skornir
upp með hnífi.
„Í pokanum var fyrsti fiskur-
inn sem hann Nökkvi veiddi alveg
sjálfur, einn og óstuddur. Hann
varð auðvitað hálfsúr en tók þessu
samt eins og karlmaður og skip-
aði pabba sínum að finna þjófana,“
segir Stefán sem gerði nokkra leit
að hugsanlegum þjófum og lét líka
bóndann í Hítardal vita af því sem
gerst hafði. „Hann var alveg gátt-
aður og sagðist aldrei hafa heyrt
þvílíkt áður og lét lögregluna
vita.“
Að sögn Stefáns var aðallega
fjölskyldufólk við Hítarvatn um
síðustu helgi. Hann hafi gengið
milli manna og spurst fyrir um
mannaferðir en enginn kannast við
neitt óvenjulegt umrædda nótt og
ekkert spurðist til þjófanna. „Þarna
voru reyndar strákar sem voru
svo fullir alla helgina að þeir gátu
varla gengið. Einn fannst meira að
segja áfengisdauður við vatnsbakk-
ann þar hann svaf úr sér mest allan
laugardaginn. Þessir piltar rifu upp
tjaldið og voru horfnir eldsnemma
á sunnudagsmorguninn.“
Þrátt fyrir þessa uppákomu segir
Stefán son sinn síður en svo orðinn
frábitinn veiðiskapnum. „Nei, alls
ekki. Nökkvi er rétt að byrja og við
erum ekki hættir.“
gar@frettabladid.is
Veiðiþjófar stálu frá
barni við Hítarvatn
Fyrsta fiskinum sem hinn fimm ára Nökkvi Stefánsson veiddi alveg sjálfur var
stolið ásamt 30 öðrum silungum við Hítarvatn um helgina. Faðir Nökkva segir
þá feðga alls ekki af baki dottna í veiðinni þótt á móti hafi blásið í þetta sinn.
NÖKKVI STEFÁNSSON Hreykinn fimm ára snáði með silung sem hann veiddi
sjálfur í Hítarvatni. Veiðiþjófar stálu af honum fiskinum og skildu eftir aðeins einn
titt í silungapokum Nökkva Stefánssonar og pabba hans. MYND/STEFÁN ÁRNASON
MENNTUN „Við munum ekki skrifa
upp á svona plagg,“ segir Ingólf-
ur Birgir Sigurgeirsson, fulltrúi
stúdenta í stjórn LÍN, um lána-
sjóðssamning-
inn sem stjórn
LÍN mun að
öllum líkindum
undirrita í dag.
Þar er gert ráð
fyrir að lána-
kjör stúdenta
verði óbreytt.
Stúdentar eru
afar óánægð-
ir með það og
því munu náms-
mannahreyfingarnar sem eiga
sæti í stjórninni efna til sam-
stöðufundar í dag klukkan fjögur
á Austurvelli.
„Í fyrstu grein laga um LÍN
segir: „Hlutverk Lánasjóðs
íslenskra námsmanna er að
tryggja þeim sem falla undir lög
þessi tækifæri til náms án tillits
til efnahags.“ Við teljum þetta
staðlausa stafi eins og komið er.
Nám er að verða forréttindi fyrir
þá efnameiri.“
Hann segir að námslán séu um
100 þúsund á mánuði, sem sé 50
þúsundum undir lægstu atvinnu-
leysisbótum og 30 þúsund krón-
um undir því sem skilgreind séu
fátæktarmörk hjá Stéttarfélaginu
Framsýn.
Hann segir að Katrín Júlíus-
dóttir menntamálaráðherra hafi
sagt á opnum fundi með stúd-
entum, 16. apríl síðastliðinn, að
námslán yrðu hækkuð í skrefum
í átt að markmiðum Stúdentaráðs.
„Við áttum þess vegna ekki von á
þessum skrefum sem eru aftur á
bak,“ segir hann. - jse
Lánasjóðssamningurinn undirritaður í dag en ekki af nemendum:
Nemendur leggja á ráðin
EFNAHAGSMÁL Stjórnarformað-
ur Fjármálaeftirlitsins, Gunn-
ar Haraldsson, ætlar að kynna
sér störf Árna Tómassonar, for-
manns skilanefndar Glitnis, fyrir
Alfesca, fyrirtæki í eigu Ólafs
Ólafssonar, áður en hann tjáir sig
um þau. Þar situr Árni í stjórn og
mun þiggja um milljón krónur á
mánuði fyrir.
Gunnar var spurður hvað
honum fyndist um þetta og feng-
ust fyrrgreind svör. Hann vildi
heldur ekki tjá sig um stefnu
FME almennt séð í slíkum
málum. - kóþ
Stjórnarformaður FME:
Vill kynna sér
störf formanns
skilanefndar
NEMENDUR VIÐ SKRÆÐURNAR Háskóla-
nám er að verða forréttindi hinna
efnameiri segir Ingólfur.
INGÓLFUR BIRGIR
SIGURGEIRSSON
KJÖRKASSINN
Á Gunnar Birgisson að segja af
sér sem bæjarstjóri í Kópavogi?
Já 84%
Nei 16%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ætti dómsmálaráðherra að fara
að kröfum Evu Joly um fjölgun
sérstakra saksóknara?
Segðu skoðun þína á visir.is.