Fréttablaðið - 11.06.2009, Síða 8

Fréttablaðið - 11.06.2009, Síða 8
8 11. júní 2009 FIMMTUDAGUR 1. Hvað heitir sjávarútvegsráð- herra? 2. Hver mun leika Jón Hregg- viðsson í uppsetningu Þjóðleik- hússins á Íslandsklukkunni? 3. Hvaða Íslendingur er kall- aður Íslenska undrið af Good Morning America? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 46 DÓMSMÁL Fimm manns á þrítugs- aldri, fjórir karlmenn og ein kona, hafa verið ákærð fyrir að svíkja út eða reyna að svíkja út varning fyrir rúmlega þrettán milljónir úr sex verslunum á árunum 2007 og 2008. Tveir mannanna og konan sviku út tölvuskjá, myndavél og tölvu, að verðmæti hátt á fjórða hundr- að þúsund í verslun í Reykjavík. Mennirnir höfðu samráð um að annar þeirra hringdi í hinn, sem starfaði í versluninni, pantaði bún- aðinn og léti skuldfæra hann á til- tekið fyrirtæki. Konan sá svo um að sækja góssið og kvitta fyrir með röngu nafni. Þrír hinna ákærðu sviku svo eða reyndu að svíkja vörur út úr fjór- um verslunum til viðbótar. Um var að ræða hljómflutningstæki, þrjá- tíu farsíma og fylgihluti, fartölvur, tölvur og kvikmyndatökuvél. Enn fóru tveir úr hópnum á stúf- ana og reyndu að svíkja út tölvu- leiki og fleira úr verslun fyrir tæpar 200 þúsund krónur. Í ofan- greindum tilvikum reyndu menn- irnir að falsa millifærslukvittanir eða svíkja vöruna út með ýmsum tilfæringum öðrum. Tveir úr hópnum voru einnig ákærðir fyrir að hafa fíkniefni undir höndum þegar lögregla handtók þá. - jss Sviku eða reyndu að svíkja út varning fyrir nær þrettán milljónir: Þjófagengi dregið fyrir dóm TÖLVUBÚNAÐUR Andvirði varningsins sem fólkinu tókst að stela nam tæplega 1,7 milljónum króna. 4 10 4 0 0 0 | l an d sb an ki nn .is L AU S N I R F Y R I R H E I M I L I Ð Er greiðslubyrðin að þyngjast? Pantaðu ráðgjöf á landsbankinn.is, í útibúinu þínu eða í síma 410 4000 Landsbankinn býður upp á mörg úrræði fyrir heimili sem eiga við greiðsluerfiðleika að etja. Við aðstoðum þig við að velja lausn sem kemur til móts við þínar þarfir. TILBOÐSDAGAR N1.ISN1 Hjólbarðaþjónusta Fellsmúla Sími 440 1322 í N1 Fellsmúla af völdum felgum dagana 10.–13. júní. AFSLÁTTUR 30-80% Auglýsingasími – Mest lesið PAKISTAN Að minnsta kosti átján eru látnir eftir sjálfsmorðsárás á lúxushótel í Peshawar í Pakistan á þriðjudag. Að minnsta kosti 60 eru slasaðir, en talið er að tala látinna og slasaðra muni hækka. Verið er að leita að fleira fólki í rústum hót- elsins. Hótelið er vinsælt á meðal erlendra ferðamanna og efna- mikilla Pakistana, auk þess sem Bandaríkin skoðuðu að koma upp aðsetri ræðismanns þar. Enginn hefur enn lýst spreng- ingunni á hendur sér, en pakist- önsk stjórnvöld kenna talibönum um. Fjöldi sprenginga hefur orðið á svæðinu undanfarið, og þær hafa aukist eftir að átök hörðnuðu í Swat-héraði. Sprengingarnar eru svar talibana við hernaðarað- gerðum gegn þeim þar og annars staðar í norðvesturhluta landsins. Árásin á þriðjudag er sögð mjög lík árás sem var gerð á lögreglu- stöð í Lahore í síðasta mánuði. Þeirri árás hafa talibanar lýst á hendur sér. Að minnsta kosti þrír árásarmenn réðust með byssur í gegnum öryggishlið og skutu á öryggisverði. Því næst var sendiferðabíll sem var fullur af sprengiefnum sprengdur á bíla- stæði. Talið er að yfir 500 kíló af sprengiefnum hafi verið í bílnum. Sprengingin jafnaði hluta hótels- ins við jörðu. Sameinuðu þjóðirnar hafa greint frá því að tveir starfsmenn þeirra séu á meðal hinna látnu og fjórir aðrir hafi særst. Flest hjálp- arstarfsfólk á vegum SÞ var flutt frá Pershawar til Islamabad í gær í kjölfar árásanna. Sama dag og árásin var gerð gerði pakistanski herinn árás á skæruliða í Bannu, sem er á milli tveggja af sterkustu vígum tali- bana. Um 70 þeirra létust. thorunn@frettabladid.is Hjálparstarfsmenn meðal fórnarlamba Bíll með yfir 500 kíló af sprengiefnum var sprengdur í loft upp við lúxushótel í Pakistan seint á þriðjudag. Átján eru látnir og margra enn saknað. Meðal hinna látnu eru hjálparstarfsmenn frá Sameinuðu þjóðunum. VIÐ HÓTELIÐ Sjálfboðaliðar við störf í rústum hótelsins Pearl Continental í Peshawar í Pakistan í gær. Verið er að leita að fólki í rústunum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP BRETLAND Starfsmaður á leik- skóla í Plymouth í Bretlandi hefur verið ákærður fyrir kyn- ferðisbrot gagnvart börnum og að hafa búið til og dreift barna- klámsmyndum. Hin ákærða er 39 ára gömul kona sem hefur starfað á leik- skóla í að minnsta kosti tíu ár. Lögregla rannsakar nú málið. Leikskólanum var lokað eftir að konan var handtekin og er nú unnið að því að koma þeim 85 börnum sem þar voru fyrir annars staðar. Leikskólinn verður lokaður áfram, og ekki er víst hvort hann hefji aftur starfsemi. - þeb Kona sem starfaði á leikskóla: Ákærð fyrir kynferðisbrot VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.