Fréttablaðið - 11.06.2009, Page 12
12 11. júní 2009 FIMMTUDAGUR
Áform sprotafyrirtækisins
ORF Líftækni um að hefja
ræktun á erfðabreyttu
byggi utandyra vekja sífellt
fleiri til umhugsunar um
þau áhrif sem slíkt gæti
haft á náttúru, menn og dýr.
Fræðimenn og leikmenn
skipast í tvær fylkingar.
Hér verður reynt að varpa
ljósi á helstu sjónarmið
beggja.
Umhverfisstofnun hefur nú til með-
ferðar umsókn frá fyrirtækinu
ORF Líftækni um að fá að hefja
útiræktun á erfðabreyttu byggi
í tilraunaskyni. Ef vel tekst til er
ætlunin að rækta erfðabreytt bygg
og vinna úr því sérvirkt prótein.
Björn Lárus Örvar, framkvæmda-
stjóri ORF, segir fyrirtækið ekki
anna eftirspurn á vöru sinni og því
þurfi að huga að framsæknum leið-
um til að auka framleiðsluna.
En sitt sýnist hverjum um þessi
áform. Ráðgjafarnefnd um erfða-
breyttar lífverur, sem er níu manna
nefnd, var ekki sammála í afstöðu
sinni um málið. Meirihlutinn mælti
með því að leyfið yrði veitt en þeir
Gunnar Á. Gunnarsson, félagsvís-
indamaður og framkvæmdastjóri,
og Jón Á. Kalmansson heimspek-
ingur skiluðu séráliti. Umhverfis-
stofnun hélt opinn kynningarfund
um málið síðastliðinn þriðjudag og
þar mátti glögglega heyra og sjá
að vísindamenn sem og leikmenn
skiptast í tvær fylkingar en sjón-
armiðin eru margslungin sem skipa
fólkinu í þær. Þyngstu áhyggjur
þeirra sem eru á móti þessum
áformum lúta að því að hið erfða-
breytta bygg dreifist um íslenska
náttúru með óafturkræfum afleið-
ingum.
Í lok fundarins var fulltrúum
Umhverfisstofnunar afhent áskor-
un, árituð af rúmlega þúsund
manns, um að synja ORF um leyf-
ið. Að minnsta kosti tvær slíkar
undirskriftasafnanir fara fram á
fésbókinni.
Segir álitamálin mörg
En þeir sem vilja ekki að Umhverf-
isstofnun veiti þetta leyfi, að
minnsta kosti ekki enn, vilja einnig
gjalda varhug við fleiru. „Þetta er
mjög margþætt mál og ber að með-
höndla sem slíkt,“ segir Gunnar
Á. Gunnarsson. „Vönduð meðferð
á umsókn um sleppingu [ræktun
utandyra] erfðabreyttra lífvera
útheimtir það að þú farir í gegnum
mat á mögulegri umhverfisáhættu,
mögulegri heilsufarsáhættu, mögu-
legri blöndun viðkomandi lífvera
og áhrif þeirra á líffræðilega fjöl-
breytni. Þar að auki þarf að meta
siðferðileg og félagsleg álitamál svo
ég vitni nú í fyrstu grein laga um
erfðabreyttar lífverur.“ Segir hann
nokkuð skorta upp á svo hægt sé að
segja að þannig hafi verið staðið að
málum við þessa umsókn.
Hefur þetta áhrif á plöntur, dýr og
menn?
Hann segir enn fremur að rann-
saka þurfi mun betur áhrif þessa
erfðabreytta byggs sem ORF
hyggst rækta utandyra. „Athygli
sjálfstæðra vísindastofnana og
vísindamanna erlendis er í aukn-
um mæli að beinast að áhrifum
erfðabreytingarferilsins sjálfs á
þá sem neyta þessara afurða, hvort
sem það eru dýr eða menn,“ segir
hann. „Það telja margir vísinda-
menn að við erfðabreytingu verði
til gífurleg röskun á genamengi
viðkomandi lífveru með ófyrirsjá-
anlegum afleiðingum. Þetta þarf að
rannsaka betur. Síðast en ekki síst
hafa verið settar fram gífurlega
dramatískar fullyrðingar um það
að þessi slepping muni ekki hafa
nein áhrif á lífríkið, heilsufar dýra
sem kunna að neyta plöntunnar eða
þá menn, komist þetta í fæðukeðj-
una. Þessar fullyrðingar eru því
miður ekki rökstuddar með neinum
vísindalegum tilraunum. Og þegar
um svona viðamikla ákvörðun er að
ræða á hikstalaust að krefjast þess
að varúðarreglan gildi frá upphafi
til enda.“
Jón Kalmansson segir í sínu sér-
áliti að fyrst þurfi að fara fram opin
og lýðræðisleg umræða um þetta
viðamikla mál áður en hægt sé að
taka ákvörðun um það. Segir hann
hagsmunaaðila verða að þola þá bið
meðan slík umræða fari fram.
Sjö af níu nefndarmönnum telja
öllu óhætt
En meirihluti nefndarinnar var
ósammála þeim Gunnari og Jóni
og vill veita leyfið. Eva Benedikts-
dóttir, formaður nefndarinnar, segir
að vandlega hafi verið farið yfir
mögulegar hættur. „Stór hluti af
umsókninni er áhættumat þar sem
umhverfis- og heilbrigðissjónarmið
eru tekin fyrir,“ segir hún. „Og það
mætti komast þannig að orði að þeir
[ORF] séu bæði með belti og axla-
bönd gagnvart allri áhættu. Fyrir
það fyrsta þá kemur byggið ekki til
með að breiðast út, öll okkar þekk-
ing og öll okkar reynsla segir okkur
það. Það getur ekki blandast við
neitt í íslenskri náttúru og þar að
auki berst fræið lítið um. Og hvað
varðar þessi prótein sem rækta
á í plöntunni, þá koma þau fram
síðla sumars. Þau finnast í fræjun-
um og við vitum vel að þegar þeir
uppskera fræin þá verður svolít-
ið eftir af þessu próteini í jarðveg-
inum en það teljum við ekki skipta
neinu máli. Þetta er lítið magn og
kemur ekki til með að skaða neinn.
Við skulum ekki gleyma því að
þetta prótein er víða að finna; það
er í mjólk, svo dæmi séu tekin. Það
finnst líka eðlilega í blóði og vefjum
manna og dýra.“
Meirihluti nefndarinnar vill þó
að tvö skilyrði verði sett við leyf-
inu sem gilda á í fimm ár. Þau eru
að fram fari grenndarkynning á
fyrir hugaðri tilraun og eins að ráð-
gjafarnefnd fái árlega skýrslu um
framgang tilraunarinnar frá fram-
kvæmdaraðilum og óháðum aðila á
vegum Umhverfisstofnunar.
Mun sprotinn særa fjallkonuna?
Í ERFÐABREYTTU BYGGI Í hátæknigróðurhúsi fyrirtækisins ORF, Grænu smiðjunni
svokölluðu í Grindavík, er verið að rækta erfðabreytt bygg. Nú vilja menn reyna það
utandyra en ekki er hlaupið að því.
FRÉTTASKÝRING: Ræktun utandyra á erfðabreyttu byggi
FRÉTTASKÝRING
JÓN SIGURÐUR EYJÓLFSSON
jse@frettabladid.is
TIL HVERS Á AÐ RÆKTA ERFÐABREYTTA BYGGIÐ?
Erfðabreytta byggið, sem Orf vill fá að rækta utandyra, er eins og annað bygg
nema að í því eru tvö ný gen í erfðamenginu og það getur framleitt sérvirkt
prótein í fræjum sínum. Þetta sérvirka prótein, sem kallað er vaxtaþættir, er
selt í litlum flöskum sem fastþurrkað duft. Það er notað í læknisrannsóknir,
eins og stofnfrumurannsóknir, krabbameinsrannsóknir og rannsóknir í ónæm-
isfræði en einnig til að búa til líkamsvefi sem ræktaðir eru en síðan komið
fyrir í sjúklingi. Það er einnig notað við framleiðslu á lyfjum.
HEIMUR
LEIKJA
OPNUNART
ÍMAR
GRAFARVO
GUR
KÓPAVOGU
R
MÁNUDA
GA-FÖST
UDAGA
11 - 19
LAUGARD
AGA 10 -
18
SUNNUD
AGA
12 - 18
OPNUNARTÍMARAKUREYRIMÁNUDAGA-FÖSTUDAGA 10 - 18.30LAUGARDAGA 10 - 17SUNNUDAGA 13 - 17
14.999
1/2
VIRÐI
SPARIÐ 15.000
14.999
1/2
VIRÐI
SPARIÐ 15.000
Kópavogur Smáratorg 3 sími 550 0800 Grafarvogur Blikastaðarvegur 2-8 sími 585 0600 Akureyri Glerártorg sími 461 4500
591211
16” EXHAUST
REIÐHJÓL
591210
16” SHEER FUN REIÐHJÓL
T
ilb
o
ð
in
g
ild
a
ti
l o
g
m
eð
1
7.
06
.2
00
9.
Í
ve
rð
un
um
e
r
in
ni
fa
lin
n
vi
rð
is
au
ka
sk
at
tu
r.
Þa
ð
e
r
te
ki
nn
f
yr
ir
va
ri
á
p
re
nt
vi
llu
m
o
g
u
p
p
se
ld
um
v
ö
ru
m
.
Sætishæð
56-67 sm
Sætishæð
56-67 sm