Fréttablaðið - 11.06.2009, Blaðsíða 26
Herrasandalar úr leðri í
úrvali. Mjúkir og þægilegir,
margar gerðir
Stærðir 40 - 47
Verð: 7.550.- til 13.450.-
Sérverslun með
FÁKAFENI 9 - (við hliðina á ísbúðinni)
Sími: 553 7060
Ný sending
Skór & töskur
OG FLYTJUM Í FÁKAFEN 9
Augnháralitur og augnbrúnalitur
Tana® Cosmetics
SÖLUSTAÐIR: APÓTEK OG SNYRTIVÖRUVERSLANIR
NÝTT!!
Plokkari með ljósi
„Útskriftarverkefnið mitt voru
sex gerðir af alklæðnaði en ég
sótti innblástur til fimmta áratug-
arins,“ segir Borghildur Gunnars-
dóttir, nýútskrifaður fatahönn-
uður, sem hannar undir nafninu
milla snorrason.
Borghildur lék sér með köflótt
efni í línunni og segist aldrei hafa
notað sama köflótta efnið. „Ég
hafði eina tegund af köflóttu efni
í hverjum alklæðnaði. Ég er mjög
hrifin af köflóttu efni vegna þess
að yfir því er gamaldags stemn-
ing,“ útskýrir Borghildur og bætir
við að hún velti litum mjög
mikið fyrir sér. „Það er oft
frá litasamsetningu sem
ég fæ hugmyndir. Lita-
samsetningin er þess
vegna mjög mikilvæg
í línunni.“
Borghildur hann-
aði auk alklæðnað-
ar fylgihluti úr tré.
„Ég hannaði gler-
augu, utanáliggj-
andi axlapúða
og skjalatösk-
ur. Hægt er að
taka axlapúðana
af flíkunum því
þeir eru festir
með segli. Þetta
er sterkur seg-
ull og það er
hægt að taka axlapúðana af án
þess að það sjáist nokkur ummerki
eftir þá,“ segir Borghildur.
Þegar Borghildur er innt eftir
því af hverju hún hafi ákveðið að
nota tré í fylgihluti sína segist hún
hafa kynnst efninu í fylgihluta kúrs
fyrr um veturinn. „Ég var heilluð
af við og viðaráferð. Mig langaði
til að tvinna hann aðeins inn í lín-
una. Ég notaði viðinn þó ekki alveg
eins og í fylgihlutakúrsinum held-
ur þróaði hugmyndina aðeins.“
„Ég stefni á að fara í meistara-
nám annaðhvort í New York eða
London,“ segir Borghildur þegar
hún er spurð um hvað taki við
eftir útskriftina úr Listahá-
skólanum. „Það verður samt
ekki fyrr en haustið 2010.
Ég er mjög ánægð í þess-
um bransa og finnst þetta
hrikalega skemmti-
legt.“
Trégleraugu Borg-
hildar verða fáan-
leg í versluninni
Belleville seinna í
sumar.
martaf@frettabladid.is
Ánægð í bransanum
Borghildur Gunnarsdóttir útskrifaðist úr hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands með hæstu
einkunn í vor. Hún stefnir á frekara nám í fatahönnun erlendis en býst við að það verði ekki fyrr en 2010.
Borghildur segist vera mjög ánægð í
hönnunarnámið og finnst hrikalega
gaman að hanna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Útskriftarverkefni
Borghildar voru
sex gerðir af
alklæðnaði ásamt
fylgihlutum úr tré.
Borghildur
lék sér með
köflótt efni í
fötunum og
notaði aldrei
sama köfl-
ótta efnið.
Borgildur segist
oft fá hugmyndir
út frá litasam-
setningu fata.
EMMA WATSON leikkonan unga sem flestir þekkja úr kvikmyndunum um
Harry Potter er orðin andlit tískufyrirtækisins Burberry. Í nýútgefnum auglýsing-
um fyrir fyrirtækið er Watson töluvert ólík hinni ungu Hermione Granger enda
orðin fullvaxta og falleg ung kona.