Fréttablaðið - 11.06.2009, Qupperneq 27
FIMMTUDAGUR 11. júní 2009 3
Barnastjarnan Miley Cyrus
hefur tekið höndum saman við
fatahönnuðinum Max Azria og
hannar fatalínu fyrir verslunina
Walmart.
Aðeins degi eftir að barnastjarn-
an Miley Cyrus staðfesti að hún
myndi halda áfram í sjónvarps-
seríu Disney, Hannah Montana,
lét hún aðra frétt berast.
Hún mun, með aðstoð fatahönn-
uðarins Max Azria, sem er mað-
urinn á bak við BCBG og Hervé
Léger, setja á markað nýja
fatalínu. Línan mun bera
heitið Miley Cyrus &
Max Azria. Lögð verður
áhersla á sæt og þægi-
leg föt á lágu verði sem
seld verða í verslunar-
keðjunni Wal-Mart.
„Samstarfið við Max
Azria hefur verið
óborganleg reynsla,“
sagði Miley þegar
hún tilkynnti um
samstarfið.
Í f a t a l í n -
u n n i v e r ð a
bol ir, buxur,
stutt ermabolir,
skór og fylgi-
hlutir en hver
flík verður
seld á innan
við 20 dollara.
Fatalínan
verður tilbúin
í ágúst og hægt
verður að skoða
hana og panta á
www.walmart.
com.
- sg
Miley hannar föt
fyrir Walmart
Frá vorsýningu
hönnuðarins
Max Azria sem
mun hanna
þægileg föt fyrir
Wal mart með
aðstoð Miley
Cyrus.
Í kreppu, þegar ekki er hægt að
sleppa sér alveg í fatakaupum,
verða fylgihlutir enn mikilvæg-
ari en áður því litríkt belti, skór
eða þykkar sokkabuxur gera
gamlan kjól sem nýjan. Sem
betur fer er sumt í tísku sem
hefur sést áður og því auðveld-
ara að draga eitthvað gamalt
fram. Að auki er mikil fortíðar-
hyggja í tísku og því upplagt að
skoða í fataskápa hjá mæðrum,
frænkum eða jafnvel ömmum
sem engu henda.
Í sumar er til dæmis upplagt
að poppa upp á útlitið með endur-
útgáfu á frægum ferköntuðum
sólgleraugum frá Ninu Ricci
sem Jacqueline Kennedy notaði
sem forsetafrú. Sólgleraugun
fást í ýmsum litum, til dæmis
grænu eins og upprunalegu sól-
gleraugun. Annars eiga sól-
gleraugu almennt að vera stór,
minna jafnvel á augu í fiski-
flugu (lunette mouche eins og
þau eru kölluð hér). Litirnir eru
margbreytilegir svo sem hvítt,
blátt, rautt og áfram mætti telja.
Reyndar eru fölfjólubláu sól-
gleraugun frá MiuMiu, ódýrari
línu Prada, nánast eins og sól-
gleraugun hennar mömmu frá
því að ég var lítill og smellpassa
við ´70-stílinn. Enn og aftur,
farið og gramsið í fataskápun-
um og finnið gleraugu sem eru
í rétta stílnum. Hjá Ray-Ban
hafa sömuleiðis verið framleidd
gömul módel eins og hin nýtísku
„Clubmaster“, mjög í anda rokk-
áranna og þykja fín í sumar.
Ef þið eigið sandala með fyllt-
um hæl er örugglega hægt að
taka þá fram aftur því enn á ný
eru fylltu hælarnir alls staðar.
Þeir eru einnig praktískir fyrir
íslenska veðráttu þar sem þeir
eru fyrir ofan vatnsborð þegar
rignir. Eini gallinn er sá að
hælarnir eru ekki eins og síð-
asta sumar og glöggir tísku-
fræðingar sjá kannski muninn.
En svo er auðvitað hver sinnar
tísku smiður og þá er bara að
gefa fræðingunum langt nef því
nú er það buddan sem ræður.
Einnig eru flatir sandalar víða
í boði í anda Forn-Grikkja eða
Rómverja. Ekki alveg eins góðir
fyrir íslenskar aðstæður.
Um töskur má það segja að
þær sem helst sjást í götutísk-
unni eru með kögri og fara vel
við síða bómullarkjóla með
blómamunstri.
Að vanda koma sumarilmteg-
undirnar á markað á vorin og
fara reyndar saman við mæðra-
daginn sem var hér á sunnu-
dag og mikil sala í ilmvötnum.
Sífellt meira er lagt upp úr fal-
legum flöskum með ýmsu lagi
til að gleðja augað. Sem dæmi
má nefna Love frá Ninu Ricci,
Flora frá Gucci og Daisy frá
Marc Jacobs. Miklu ódýrara og
umhverfisvænna er White musk
hot summer frá Body Shop. Ilm-
vatnsiðnaðurinn er reyndar
sá eini hluti lúxusgeirans sem
heldur sínu meðan bæði fatnað-
ur og fylgihlutir seljast minna.
Neytendur sem eyða minna í
föt leyfa sér enn að kaupa fínar
snyrtivörur, ilmvötn og í það
minnsta ein sólgleraugu.
bergb75@free.fr
Fiskiflugugleraugu og fylltir hælar
ÚR HÁBORG TÍSKUNNAR
Bergþór Bjarnason skrifar frá París
Sýning stendur yfir í London
á þróun undirfata á síðustu
áratugum.
Í Tísku- og textílsafni Lundúna
stendur yfir sýningin, Undercov-
er – The Evolution Of Underwear,
sem fjallar um þróun undirfatn-
aðar og tengingu hans við tísku,
konur, líkama þeirra og hvernig
undirfötin undirstrika, eða fela,
ýmsa líkamsparta.
Þar verða til sýnis allt frá odd-
hvössum brjóstahöldurum sjötta
áratugarins til hátæknilegra nær-
buxna nútímans. Undirföt hafa
enda breyst ótrúlega á síðustu ára-
tugum. Brjóstahaldarar komu til
að mynda fyrst fram á sjötta ára-
tugnum þegar lína Christians Dior,
New Look, var sett á markað.
Undirföt eru fyrst og fremst prakt-
ísk í dagsins amstri. Þau geta þó
einnig þjónað mörgum öðrum til-
gangi. Þau eru notuð til að draga á
tálar og jafnvel til að sjokkera. Þá
hafa hönnuðir löngum fengið mikið
út úr því að spreyta sig á undirföt-
um og mótað þau í hin ýmsu form.
- sg
Saga brjósta-
haldarans
Hollywood-stjarnan Jayne Mansfield árið
1953 í bikiníi sem hefur líklega verið
talið mjög kynþokkafullt á sínum tíma.